Íþróttablaðið - 01.10.1965, Blaðsíða 6
með erfiðustu íþróttagreinun-
um. Aðrar keppnisgreinar er
ekki talin þörf á að flytja af
Olympíuleikvanginum í Mexico
City. — Loks má geta þess, að
þeir hafa fengið fyrrv. forseta
landsins, Adolfo Lopez Mateos,
til að takast á hendur forystu
og framkvæmdastjórn Olympíu-
leikanna. Og mun ekkert til
sparað að þeir megi fara sem
bezt úr hendi og verða þjóðinni
til sóma. Vitanlega færa þeir
sér í nyt allt það bezta, sem
fram hefur komið á undanförn-
um Olympíuleikum.
Þá voru nokkrir nýir fulltrú-
ar samþykktir í Alþjóða-
Olympíunefndina, og nokkrar
þjóða-Olympíunefndir, sem nú
eru orðnar 120 að tölu, — og í
öllum heimsálfum. Á næsta
Olympíuþingi, sem haldið verð-
ur í Rómaborg næsta ár, verð-
ur tekin ákvörðun um hvar
Olympíuleikirnir 1972 skulu
háðir. Sagt er að Frakkar vilji
halda þá í Parísarborg. En fleiri
koma þar við sögu eins og t.d.
Bandaríkjamenn.
Loks var rætt um fjármálin
og framtíð Olympíuleikanna og
þá hugsjón, sem við þá eru
tengdir.
Olympíunefnd Islands þarf
að taka það til athugunar,
hvort ekki er hægt að fá að
sýna ísl. ghmuna á Olympíuleik-
unum 1968, eins og á leikunum
1908 og 1912. Ekki er um það
að ræða að glíman okkar verði
keppnisíþrótt á Olympíuleikun-
um, þar sem a.m.k. 25 þjóðir
verða að iðka íþróttina, svo hún
sé talin Olympíuíþrótt.
Oft vilja menn gleyma því;
að Olympíuleikirnir eru annað
og fleira en íþróttakeppni. Þar
geta menn hka þreytt andlegar
íþróttir, tekið þátt í t.d. bók-
menntum, hljómleikum, högg-
mynda- og málverkakeppni.
Höfum við áður tekið þátt í
höggmynda- og málverkakeppni
1948 í Lundúnaborg og 1952 í
Helsinki. Voru það listamenn-
irnir Ásgeir Bjarnþórsson og
Guðmundur heitinn Einarsson
frá Miðdal, sem það gerðu, með
góðum árangri.
Sjálfsagt er að hinn fagri þrí-
liti krossfáni vor blakti á
Olympíuleikunum í framtíð-
inni, meðal annarra fána full-
valda þjóða, svo vor litla þjóð
á Norðurslóðum gleymist ei,
þegar keppt er um manndóm og
menningu. Gleymum ekki, að
manndómur og menning fer
ekki eftir mannfjölda, heldur
eftir ágæti og afreki hvers og
eins.
Heim frá Spáni fór ég um
Kaupmannahöfn, þar sem ég
heyrði um vinsældir sendiherra-
hjónanna Gunnars Thoroddsens
og hans glæsilegu húsfreyju.
Allir Islendingar, sem ég hitti
í utanförinni, en þeir voru
margir, báðu að heilsa heim.
Reykjavík,
fyrsta vetrardag 1965.
B e n n ó .
Keppnin i 1. deild
Deildarskiptingin í knattspyrnu hófst árið 1955.
Fróðlegt er því að sjá hvernig liðunum hefur vegnað
í I. deild frá upphafi til þessa dags.
Staðan er þessi:
KR 90 53 21 16 254:117 127 st.
ÍA 90 56 13 21 254:139 125 st.
Valur 90 39 20 31 173:170 98 st.
Fram 90 28 22 40 136:163 78 st.
IBK 55 17 12 26 96:120 46 st.
ÍBA 60 19 8 33 107:145 46 st.
Þróttur 25 2 5 18 25:88 9 st.
ÍBH 20 1 4 15 17:62 6 st.
Víkingur 10 2 0 8 15:39 4 st.
IBÍ 10 0 1 9 2:26 1 st.
Hér er ahs um að ræða 270 leiki á 11 árum og mörk-
in eru samtals 1079. Aukaleikir eru ekki taldir með.
Frekari útskýringar ættu að vera óþarfar, en benda
má þó á, að jafnari getur útkoma KR-inga og Akur-
nesinga ekki verið: jafnmörg mörk skoruð og tveggja
stiga munur á 11 árum!
V.W.^WAVVV^.VAWAV.V.V.V.V.W.V.W.V.'.V.V.V.’.V
186