Íþróttablaðið - 01.10.1965, Síða 7
Islandsmeistarar í 19 sinn
*
- KR sigraði í Islandsmótinu í knattspyrnu
eftir sögulegan aukaleik við Akurnesinga
Islandsmótið í knattspyrnu
varð að þessu sinni tvísýnna en
oftast áður og úrslit fengust
ekki fyrr en eftir aukaleik milli
Akraness og KR — og sigruðu
KR-ingar þá í hörðum leik með
tveimur mörkum gegn einu og
hlutu Islandsbikarinn í 19. sinn
og titilinn „Bezta knattspyrnu-
félag íslands 1965“. Sigur KR
kom engan veginn á óvart og
þegar mótið var vel hálfnað
hafði félagið langmestar sigur-
líkur, en staðan breyttist þá
skyndilega eftir tapleik á Akra-
nesi og Akurnesingar, sem
höfðu byrjað verst af öllum í
mótinu — hlutu eitt stig úr
þremur fyrstu leikjum sínum í
mótinu — komust uppfyrir KR
eftir sex sigurleiki í röð.
Akurnesingar áttu þá einn
leik eftir — gegn Islandsmeist-
urum fyrra árs, Keflvíkingum,
á heimavelli sínum við Langa-
sand á Akranesi. Sigur eða jafn-
tefli hefði fært Akurnesingum
Islandsbikarinn að nýju — en
það átti ekki fyrir þeim að
hggja að þessu sinni. Keflvík-
ingar sigruðu í leiknum, þrátt
fyrir þá staðreynd, að þrír af
hinum föstu leikmönnum liðsins
léku ekki með að þessu sinni,
þar sem þeir tepptust erlendis.
Og þessi sigur Keflvíkinga gaf
KR aftur möguleika. Síðasti
leikur mótsins samkvæmt
leikjaskrá var milli KR og
Keflavíkur á Laugardalsvelli
og eftir óvenju skemmtilegan
leik — sennilega hinn bezta í
mótinu — varð jafntefli 3—3.
Þar með var lokastaðan sú, að
Akranes og KR voru jöfn í
efsta sæti með 13 stig — en
Keflvíkingar náðu Akureyring-
um á 11 stigum. Valur, sem
hafði náð beztum árangri í
fyrri umferðinni — en tapaði
öllum leikjum í þeirri síðari —
varð í fimmta sæti og Fram
féll niður í 2. deild í fyrsta
skipti í sögu félagsins og sæti
liðsins í 1. deild næsta ár tek-
ur Þróttur.
Og þá var komið að hinum
sögulega úrslitaleik milli KR og
Akraness, sem háður var á
Laugardalsvelli sunnudaginn 3.
Einar Isfeld skorar fyrsta markið í úrslitaleik KR og Akraness.
187