Íþróttablaðið - 01.12.1970, Síða 7
2) ALÍÞRÓTTAMAÐUR: vera
alíþróttamaður, sbr., vera íþrótta-
maður. Þeir eru alíþróttamenn,
sér til heilsubótar.
3!) ALÆFINGAR: stunda al-
æfingar, sbr. stunda æfingar. Það
þarf ekki endilega íþróttavelli
til þess að geta stundað alæfing-
ar með ánægjulegum árangri.
4) ALÆFING: fara á alæf-
ingu, sbr. fara á æfingu; vera á
alæfingu, sbr. vera á æfingu,
koma af alæfingu, sbr. koma af
æfingu. Forstjórinn fór á æf-
ingu, þér að segja alæfingu. All-
ir, sem vettlingi geta valdið, eru
á alæfingu þessa stundina. Þeir
koma allaf bressir og kátir af
alæfingu.
5) ALÆFA SIG, sbr. æfa sig.
Vinnufélagarnir eru að alæfa
sig.
Að sjálfsögðu kunna þessi orð
að koma einhverjum spánskt
fyrir sjónir í fyrstu, en sama
gildir um flest öll nýyrði. Til
marks um það má t. d. nefna
hið margumtalaða ál fyrir alum-
iníum, alúmin eða alúm. Það orð
sem slíkt þætti óumdeilanlega
ómissandi nú, enda er það stutt
og laggott og því hentugt í öll-
um orðasamböndum m. a., sbr.
t. d. álverksmiðja. Hvorugkyns-
orðið ál vrðist ekki hafa verið
til áður, en þó fer það vel 1 mál-
inu. Hví skyldu þá ekki þeir,
sem það kjósa, með sama rétti í
gamni og alvöru nota hvorug-
kynsorðið AL, er beygist eins
og ál, sem styttingu fyrir al-
íþróttir, eða jafnvel einungis A,
enda mættu alíþróttir gjama
vera íslenzku þjóðinni jafnofar-
lega í huga og fyrsti stafur staf-
rófsins. Þá gætumenn t. d. spurt:
Ertu með í alið eftir vinnutíma?
Þá má ekki heldur gleyma orð-
inu sími, sem leysti algerlega af
hólmi útlenzka orðið telefon,
enda verður jafnan að leggja
áherzlu á að finna gjaldgeng ís-
lenzk orð yfir erlend hugtök,
jafnvel þótt það kosti e. t. v.
eitthvað í upphafi.
Að lokum óskar undirritaður
þess, að íþróttasambandi íslands
megi auðnast að ná hið fyrsta
hinu mikilvæga takmarki sínu
— alíþróttaiðkun — og óskar
ekki sízt Sigurði Magnússyni al-
íþróttastjóra gæfu og gengis í
starfinu.
Jón Ögmundur Þormóðsson,
laganemi.“
/-------■— -- ■ ^
ALLTAF FJÖLGAR
VOLKSWAGEN
H E K L A hf., Laugavegi 170-172 — Sími 21240
___________________________________________________________________________________________z
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
239