Íþróttablaðið - 01.12.1970, Qupperneq 14
hann Statens Gymnastikskole.
Eftir fyrri hluta nám, braut-
skráði skólinn íþróttakennara, er
störfuðu við barnaskólann, en
framhaldsdeildin veitti réttindi
til kennslu í öllum framhalds-
skclum, og til námstjórastarfa.
Leikfimin er komin víða að, helzt
frá Þýzkalandi, Danmörku
og Svípjóð.
Notaðir eru boltar, bönd, staf-
ir og keilur, einnig eru æfingar
gerðar eftir hljómfalli með músik.
Þá er kennd ýtarlega rétt beit-
ing líkamans, við ýmis störf. Nú
hefur skólinn flutt í ný húsa-
kynni fyrir utan Osló, og heitir
Norges Idrætshöjskole.
Leiðbeinendaskólar eru í Sogni
og Jessheim.
FINNLAND
Á fyrrihluta 19. aldar var ein-
göngu um sænska leikfimi að
ræða í Finnlandi, en um 1860
byrjuðu Finnar að sækja íþrótta-
skóla til Þýzkalands og síðan hef-
ur þýzkra áhrifa gætt mjög.
Annars má segja að finnsk
leikfimi sé orðin til úr sænskri
og þýzkri leikfimi.
Prófessor Victor Heikel
(1842-1927)
Hann er talinn vera brautryðj-
andi finnskrar leikfimi. Hann
nam við G.C.I. og síðar í Þýzka-
landi. Árið 1894 var hann gerður
að forstöðumanni við íþrótta-
kennaradeild við háskólann í
Helsingfors.
Hann ritaði allmikið um
íþróttamál, meðal annars hina
r
DREKKIÐ
SANITAS HF
Sími 35350
L___________________________
merkustu íþróttasögu sem til er
á Norðurlöndum.
Frú Asp er brautryðjandi í
kvennaleikfimi. Hún hóf nám
við G.C.I. í Stokkhólmi, og féll
ekki í geð sænska leikfimin, fór
hún þá til Þýzkalands. Árið
1868 kom hún til Finnlands og
stofnsetti einkaskóla fyrir stxilk-
ur. Henni var ljóst, að stúlkur
áttu að annast kennslu kvenna.
Hún er jafnan talin brautryðj-
andi i kvennaleikfimi.
Kallío (1859-1927)
Hxxn var nemandi frxx Asp,
nam síðar við G.C.I., en áhrif
frá Asp einkenndu kennslu henn-
ar. Hún ritaði bækur um íþrótt-
ir, bæði á finnsku og sænsku,
kenndi á námskeiðum og kvenna-
í&tm
ÍSKALT
246
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ