Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 17

Íþróttablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 17
Kunnar eru hér 13 fornar bað- laugar og á Grænlandi ein, þar sem íslendingabyggðir voru. Fjórar þessara baðlauga og jarð- baða eru enn nothæfar. Fræg- ust þeirra er Snorralaug í Reyk- holti. Borgarfjarðarsýslu. Ber hún nafn sitt af Snorra Sturlu- syni, sem mun hafa reist hana í því formi, sem hún hefur nú (Snorri Sturluson d. 1241). Þær líkamsíþróttir, sem Skandinavarnir fluttu út hing- að, voru fyrst og fremst hernað- arlegs eðlis. Menn iðkuðu því mjög að beita sverðum af ýms- um gerðum, öxum og atgeirum. Spjótum var kastað til marks og æft að handsama þau á lofti og senda til baka. Eftir því sem bogar voru þyngri, þ. e. erfið- ara að draga þá eða spenna til fullnustu, því skotharðari voru þeir. Vegna þessa þurfti við bogaskot að þjálfa vöðvastyrk, svo hinn þyngsti bogi væri spenntur til fulls án þess að mið- un örvar yrði óörugg. Þá var engu minni áherzla lögð á að geta varizt með þungum skildi og vera mjúkur, snar og snarp- ur í vörn eða sókn. Oft átti það fyrir einhverjum að liggja að berjast á skipi eða í húsi, þar sem ýmsar hindranir gátu ver- ið á vegi, hvort sem hopað var eða sótt. Vegna þess æfðu forn- menn stökk fram fyrir sig og aftur, í loft upp eða þeir fóru á stikli yfir hindrun, þ. e. stukku yfir hindrun og höfðu stuðning af hendi. Ef vopn eyðilagðist, tapaðist úr hendi eða óvinir mættust vopnlausir, þá var grip- ið til fangbragðanna, þ. e. leit- azt við að koma andstæðingnum undir með átökum handa og brögðum fóta. Voru þá oft litl- ir hnífar eða tennurnar notaðar til þess að binda endi á viður- Bardagi á Þingvöllum eignina eða nærstæð ójafna til þess fallin að brjóta á hrygg eða bringspalir. Jafnvel sundið var æft í þeim tilgangi að geta grip- ið andstæðinginn fangbrögðum, ef þeir kæmu í vatn saman, færa hann í kaf og halda honum niðri þar til meðvitund hvarf. Slíkt fangbragð á sundi var íþrótta- leikur sá sem þeir Ólafur Tryggvason Noregkonungur og Kjartan Ólafsson bóndasonur ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 249

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.