Íþróttablaðið - 01.12.1970, Síða 20
HEIMILIS
BIFREIDA-
FULLKOMIN ÞJÓNUSTA TRYGGINGAR FYRIR SANNVIRÐI
TRYGGING
SAMVirVNUTRYGGINGAR ARMÚLA3 • SÍMI 38500
reynt hafi verið að draga úr
heiðnum hamförum leikja og
íþrótta og gera þá kristilegri, ef
þeir voru þá ekki afnumdir með
öllu. Öruggt er að efnt var til
leikja í sambandi við ýmis kon-
ar hátíðir, t. d. veizlur og þing-
hald, eftir 1200 og fram á 14.
öld.
Þegar Þjóðveldinu lýkur á 13.
öld og erlend kúgun hefst,
langæ harðindi steðja að sam-
fara einhverju hinu langvinn-
asta eldgosatímabili, dregur mjög
úr atorku þjóðarinnar. Iþrótt-
irnar nær því hverfa úr þjóðlíf-
inu í 4 aldir. Sund og glíma eru
þær einu, sem hjara. Leikmót-
in fornu þoka urn set fyrir sam-
komuformi, sem nefnist gleði.
Dansinn er þar allsráðandi ásamt
áreynslulausum leikjum. Dans-
inn er borinn uppi af kvæða-
formi, sem nefnist dans. Kvæði
þessi eru oft léttúðug og dans-
inn hvetur til ástleitni og svo
eru hinir léttu leikir oft klúrir.
Frá því í byrjun 12. aldar hefur
klerkdómurinn sókn sína að
kveða niður hringdansa fólksins.
Þessum bannfæringum heldur
kirkjan áfram og ekkert minnka
þær þó kaþólskur siður sé niður
lagður. Hinir lúthersku klerk-
ar ganga jafnvel lengra í því að
kveða niður leiki og dansa al-
þýðunnar, sem þeir flokka und-
ir þóknanlegar athafnir skratt-
anum og tilgangslaust erfiði.
Jafnvel í barnalærdómsbókum
18. aldar kveður við þennan tón
og á þeirri öld ritar einn prest-
ur bók gegn leikjum, þar sem
hann jafnvel telur brúðuleik
barna skrattanum þóknanlegan
hvað þá glímuna og aðrar líkam-
legar lystisemdir. Á þessum 4
öldum eru það sjómenn í ver-
Eitt af ensku áhugamannafé-
lögunum í knattspyrnu, Hendon,
beitir allnýstárlegum aðferðum
til að lokka áhorfendur að leikj-
um félagsins. Ef ekkert mark er
skorað í leik hjá félaginu á heima-
velli, fá áhorfendur ókeypis að-
gang að næsta leik á eftir. Fram-
vísa þeir þá leikskrá frá leikn-
um á undan og gildir hún sem
aðgöngumiði.
„Áhorfendur kaupa sig inn á
leiki til að sjá mörk skoruð," seg-
ir framkvæmdastjóri félagsins,
Les Fenson. „Ef ekkert mark er
skorað, er okkur skylt að endur-
greiða aðgöngumiða með þessum
hætli.“
Hendon er eitt af beztu áhuga-
mannaliðum Englands. Nýlega
lauk leik, sem félagið lék gegn
Barking, með jafntefli, 0:0. og
fengu áhorfendur því ókeypis að-
gang að næsta leik á eftir. En
annars hafa leikmenn Hendon
verið duglegir að skora mörk, því
að í 16 síðustu leikjum hefur
liðið skorað 45 mörk — eða 3
mörk að meðaltali í leik.
252
ÍÞRÓTTABLABIÐ