Íþróttablaðið - 01.12.1970, Síða 22
korðaæfingar, göngu- og réttstöðu-
æfingar, gönguæfingar fyrir sjó-
liða og stökk yið áhöld.
Um aldamótin er hafin íþrótta-
kennsla í nokkrum barnaskólum
— og kennarar, sem dvelja í
Danmörku, læra að segja fyrir
um leikfimi, en það er eigi fyrr
en 1906, að fyrsti íslendingurinn
lýkur dönsku kennaraprófi í leik-
fimi.
Fyrstu fræðslulögin voru sett
1907, og eru þá börn skólaskyld
10—14 ára. Þó ekki hafi verið
ákvæði í lögunum um íþrótta-
kennslu, lctu nrargir kennarar
nemendur sína iðka leikfimi. Og
í sumum kaupstaðaskólum verð-
ur leikfimi námsgrein.
Með lögunum frá 1929 eru
stofnaðir héraðsskólar. í þeim
öllum er fljótlega sköpuð aðstaða
til þess að iðka sund og leikfimi.
Undanfarar þessara skóla voru
tveir alþýðuskólar, sem báðir
höfðu mikil áhrif á líkamsmennt
með þjóðinni, Hvítárbakkaskóli
og Núpsskóli.
Með aukinni þjóðernistilfinn-
ingu, sem nærist af þeim frelsis-
öldum, sem rísa með nágranna-
þjóðunum vex sjálfsbjargarvið-
leitnin. Bændur stofna ræktunar-
félög. í lögum sumra þeirra eru
ákvæði um iðkun glímu og
sunds.
Árið 1940 er leitt í lög, að
leikfimi skuli kenna í öllum
skólum landsins og börn læra
sund. Jafnhliða þessum íþrótta-
iðkunum í skólum er leitazt við
að gefa nemendum tækifæri til
þess að iðka skíðaíþróttir, knatt-
leiki, frjálsar íþróttir og glímu.
Islenzk skólaleikfimi er ekki
bundin ákveðnu kerfi, en leitazt
hefur verið við að fella inn í
hana beztu aðferðir, sem þekkt-
ar eru á hverjum tíma.
Frá því kennaraskóli var stofn-
aður (1908) hefur leikfimi verið
ein námsgreina undir kennara-
próf. Árið 1932 er stofnaður einka-
skóli til þess að mennta íþrótta-
kennara. Þessi skóli er árið 1943
gerður að ríkisskóla. Með stofn-
un þessara skóla var unnt að koma
á leikfimi- og sundskyldu í skól-
um. Góður hugur ahnennings á
íþróttum, svo og skilningur kenn-
ara og forráðamanna skóla hefur
haldizt í hendur um að veita
nemendum sund- og leikfimi-
iðkanir.
Eins og fyrr getur var það ís-
lenzk alþýða, studd af mennta-
mönnum, semendurvaktiíþrótta-
iðkanir. Fyrir tilverknað þessar-
ar vakningar eru íþróttir komn-
ar svo vel á veg innan skólanna.
Áhugafélög þau um íþróttir,
sem stofnuð voru fyrir og upp
úr síðustu aldamótum í kaup-
stöðum og kauptúnum unnu öt-
ullega að framgangi glímu, leik-
fimi, sunds og knattspyrnu.
Um það leyti, sem þessi félög
voru að myndast, voru stofnuð í
v
LÁGT SKAL LÆKKA!
ERTU AÐ BYGGJA?
VILTU BREYTA?
ÞARFTU AÐ BÆTA?
Lítið við í
LITAVERI
v.___________________________________>
254
ÍÞRÓTTABI.AÐIÐ