Íþróttablaðið - 01.12.1970, Blaðsíða 24
Hvor hefur skorað
fleiri mörk,
PuSKAS eða PELE?
Ferenc Puskas, ungverski
knattspyrnumaðurinn, sem yfir-
gaf heimaland sitt fyrir 14 ár-
um býr nú í Madrid á Spáni,
ásamt konu sinni og 19 ára gam-
alli dóttur, sem er sundkona
mikil. Hann er hamingjusam-
ur, svolítð órólegur og óþolin-
móður, en tryggur þeirri íþrótt,
sem hann hefur helgað mest lífi
sínu. Fyrir skömmu var frá því
sagt í frönsku knattspyrnublaði,
að Puskas væri í þann veginn
að hverfa aftur heim, hefði
fengið uppreisn og meira að
segja að ungverska stjórnin
hefði í hyggju að gera hann að
„einvaldi“ íþrótta þar í landi.
Grein þessi, eða gróusaga, er
ósönn. Brezkur blaðamaður, sem
þekkir Puskas vel og hittir hann
FORSÍÐUMYNDINA
tók Gunnar V. Andrésson
og gæti hún heitið
„Jólaósk íþróttamannsins"
oft, segir að hann sé alls ekki
að velta fyrir sér, að snúa aftur,
hann elski Spán, þar sé lieim-
ili hans og öll áhugamál. Sú til-
gáta, að hann langi mjög til að
sjá forelclra sína, er einnig úr
lausu lofti gripin. Hann hefur
stöðugt samband við móður sína
og systur, sem búa í Ungverja-
landi og þær hafa nýlega heim-
sótt hann til Madrid.
Það merkilegasta við Puskas,
er spurning, sem ekki hefur feng-
izt svar við: ... Er liann mark-
vissasti knattspyrnumaður heims-
ins? Allir vita, að 1000 mörkin
hans Peles eru met og enginn
vill ræna hann þeim heiðri, en
hvar stendur Puskas raunveru-
lega?
Margir, sem velta þessum
málum fyrir sér, hafa opinber-
lega sagt, að öllum líkindum
hafi Puskas skorað fleiri mörk
en Pele, en fullyrða það þó ekki.
Puskas sjálfur, sem aldrei hefur
viljað trana sér fram, segist
„halda“ að hann hafi skorað
fleiri mörk en brasilíska undra-
barnið. En Puskas reynir ekki
að fá það staðfest, þótt hann ef-
laust gæti það.
Síðan hann fór frá Ungverja-
landi, er vitað, hvað hann hefur
skorað mörg mörk, en ekki eru
til áreiðanlegar tölur um það,
frá því að hann lék með Hon-
ved heima fyrir. Það, sem vitað
er, er að hann skoraði 25 mörk
í ýmsum góðgerðaleikjum . ..
324 fyrir Real Madrid ... 31 í
úrvalsleikjum á Spáni ... 90 í
landsleikjum fyrir Ungverja-
land og 54 fyrir Honved árið
1945—46- Áreiðanlegar heim-
ildir eru ekki til um afrek hans,
en þau vann hann 1943—45 og
1955—56, en þá var hann einn
markhæsti knattspyrnumaður
Ungverjalands.
Knattspyrnusérfræðingar á
Spáni, þar sem Puskas er mjög
dáður, segja að hann hafi skor-
að 1176 mörk um dagana, en
vegna heimildaskorts, segjast þeir
ekki þora að sverja, að svo sé.
Puskas fæddist í Budapest 2.
apríl 1927 og lærði snemma
knattspyrnu af föður sínum,
sem var góður knattspyrnumað-
ur. Allan feril sinn lék hann að-
eins með tveim liðum, Real
Madrid og Honved. Hann gekk
í Honved 1943, þá 16 ára. Fé-
lagið var þekkt undir nafninu
Kispest, sem er útborg Búdapest,
en þegar stríðið skall á, 1939,
voru einkafélög bönnuð og her-
málaráðuneytið tók yfir félagið
og nafninu var breytt í Hon-
ved.
Árið 1945, ári eftir að stríð-
inu lauk í Ungverjalandi, varð
Puskas markhæsti maður lands-
ins, þegar hann skoraði 54 mörk
í 22 leikjum. Næstu 11 árin
liélt. hann titlinum, en síðan varð
hann landsliðsmaður og skor-
aði sigurmark gegn Austurríki
í fyrsta leiknum sem slíkur. Eft-
ir það skoraði hann 90 mörk í
84 leikjum.
Eftir hina misheppnuðu upp-
256
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ