Fréttablaðið - 30.07.2020, Side 8
Ef tölurnar fyrir
útlán bankanna í
júní eru réttar gæti hann
orðið fyrsti mánuðurinn í
langan tíma þar sem það eru
meiri uppgreiðslur en útlán
hjá lífeyris-
sjóðunum.
Ólafur Sigurðsson,
framkvæmda-
stjóri Birtu lífeyris-
sjóðs
✿ Húsnæðislán
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
Ap
r.
‘1
7
Jú
l.
‘1
7
O
kt
. ‘
17
Ja
n.
‘1
8
Ap
r.
‘1
8
Jú
l.
‘1
8
O
kt
. ‘
18
Ja
n.
‘1
9
Ap
r.
‘1
9
Jú
l.
‘1
9
O
kt
. ‘
19
Ja
n.
‘2
0
Ap
r.
‘2
0
n Lífeyrirssjóðir
n Bankar
Verðtryggt Óverðtryggt
01.07.2020 57% 43%
01.01.2020 62% 38%
01.01.2019 68% 32%
✿ Húsnæðislánasafn
bankanna
Lít il l munu r á verð-tr yg gðum og óverð-t r y g g ð u m v ö x t u m veldur því að það er lítill hvati til að taka verð-tryggð lán í langflestum
tilfellum. Heimilin eru að sýna
að þau eru með á nótunum, segir
Konráð S. Guðjónsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Íslands, í samtali við Fréttablaðið.
Ný óverðtryggð húsnæðislán
banka til heimila, að frádregnum
uppgreiðslum, hafa á síðustu
þremur mánuðum numið samtals
146 milljörðum króna samkvæmt
gögnum Seðlabanka Íslands. Á
sama tímabili hafa ný verðtryggð
lán verið nettó neikvæð um 5,8
milljarða.
Húsnæðislán íslensku bankanna
til heimila námu samtals 1.052
milljörðum króna í lok júní. Hlut-
deild verðtryggðra lána nam 57
prósentum á móti 43 prósenta
hlutdeild óverðtryggðra lána.
Til samanburðar nam hlutdeild
óverðtryggðra lána 38 prósentum í
byrjun árs og 32 prósentum í byrjun
árs 2019.
Konráð segir að þróunin hafi
verið í þessa átt um nokkurt skeið.
Vægi verðtryggingarinnar hafi
minnkað hægt og bítandi, en nú fari
það hratt minnkandi.
„Vægi verðtryggingarinnar verð-
ur ekki neitt ef þetta heldur svona
áfram. Þó að vextir hækki lítillega
í framtíðinni held ég að heimilin
muni áfram sækja í óverðtryggð
lán,“ segir Konráð og bætir við að
allar forsendur séu fyrir því að
vaxtastig verði lágt til lengri tíma
litið. „Ef lágvaxtaumhverfið verður
varanlegt deyr verðtryggingin
drottni sínum.“
Hlutdeild lífeyrissjóða í nýjum
húsnæðislánum hefur hrunið frá
byrjun árs. Nettó ný útlán lífeyris-
sjóða til heimila námu einungis 918
milljónum króna í maí samanborið
við 11,6 milljarða króna í janúar. Á
sama tíma hefur hlutdeild bank-
anna stóraukist en nettó útlán
þeirra námu 27,5 milljörðum króna
í júní samanborið við tæplega 11
milljarða í janúar.
Tölurnar fyrir útlán lífeyrissjóða í
júní hafa ekki verið birtar en umsvif
bankanna gefa til kynna að tölu-
verður samdráttur sé hjá mörgum
sjóðum.
„Ef tölurnar fyrir útlán bankanna
í júní eru réttar gæti hann orðið
fyrsti mánuðurinn í langan tíma
þar sem það eru meiri uppgreiðslur
en útlán hjá lífeyrissjóðunum,“ segir
Ólafur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Birtu lífeyrissjóðs.
Ólafur segir að munurinn á
nýjum útlánum bankanna annars
vegar og lífeyrissjóðanna hins vegar
komi sér á óvart. Mikil ásókn hafi
verið í sjóðsfélagalán Birtu í júní en
sjóðurinn býður upp á óverðtryggð
lán með breytilegum vöxtum sem
eru þeir lægstu á markaðinum.
„Það eru ekki svo margir lífeyris-
sjóðir sem bjóða upp á óverðtryggð
lán með breytilegum vöxtum og
bankarnir bjóða betri kjör á þessum
lánum en flestir sjóðir. Skýringin á
þessari sundurleitni milli útlána
bankanna og lífeyrissjóðanna gæti
verið sú að fólk finnur frekar lánin
og kjörin sem það er að leita eftir hjá
bönkunum. Og það gæti skýrt hvers
vegna við höfum ekki séð eins mik-
inn samdrátt og aðrir sjóðir,“ segir
Ólafur.
Alls námu sjóðsfélagalán lífeyris-
sjóða 544 milljörðum króna í lok
maí. Þar af voru 422 milljarðar verð-
tryggð lán og 122 óverðtryggð lán.
Harpa Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna rík-
isins (LSR), segist hafa merkt tölu-
verðar uppgreiðslur sjóðsfélaga á
allra síðustu mánuðum. Bankarnir
hafi lækkað vexti meira en lífeyris-
sjóðirnir.
„Án þess að hafa séð bækur bank-
anna er mín ágiskun sú að þeir eigi
erfiðara með að koma peningum í
vinnu því samdráttur í hagkerfinu
gerir það að verkum að þeir lána
ekki eins mikið til fyrirtækja en
vextir á húsnæðislánum eru lækk-
aðir til að lána meira til heimil-
anna,“ segir Harpa.
Aðspurð segir Harpa að upp-
greiðslur sjóðsfélaga haf i ekki
valdið miklum röskunum fyrir
lífeyrissjóðinn. „Á tímabili var of
mikil aukning í sjóðsfélagalánum
og þá þrengdum við lánareglurnar.
Við erum með þúsund milljarða af
eignum og aðeins meiri uppgreiðsl-
ur í nokkra mánuði telja því lítið,“
segir Harpa.
Innlán lífeyrissjóða í íslensku
bönkunum hefur aukist um tæp-
lega 40 milljarða króna frá ársbyrj-
un, eða úr 153 milljörðum og upp í
190 milljarða. Spurð hvort LSR eigi
auðvelt með að finna peningunum
annan farveg segir Harpa að svarið
sé bæði já og nei.
„Við komum peningunum í vinnu
með öðrum hætti en það verður
að segjast eins og er að lækkandi
vextir eru áskorun í því að ná þeirri
ávöxtun sem við þurfum að ná til
þess að geta staðið við okkar skuld-
bindingar.“
Merki um töluverðar
uppgreiðslur lána
Óverðtryggð lán nálgast það að vera helmingur af húsnæðislánum bankanna.
Sópa til sín hlutdeild á lánamarkaði á kostnað lífeyrissjóða. Framkvæmda-
stjóri LSR segist hafa merkt töluverðar uppgreiðslur á sjóðsfélagalánum.
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Verðtryggingin er á undanhaldi í lágvaxtaumhverfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
MARKAÐURINN
3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð