Fréttablaðið - 30.07.2020, Page 12

Fréttablaðið - 30.07.2020, Page 12
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Fróðlegt væri að vita hvort þeir sem þar góla hæst, og umlykja sig helgislepju, treysti sér til að framvísa hreinu siðferðisvott- orði. Þetta þýðir að í það minnsta 225 – 240 milljónir verða eftir hjá olíu- félögunum, í boði ríkis- stjórnar- innar. Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag Styttur eru yfirleitt til prýði í umhverfi sínu, jafnvel þótt sá einstaklingur sem á þær horfir viti ekki alltaf af hverjum viðkomandi stytta er. Stundum er einfaldlega engin merking til að skýra það út fyrir honum. „Þetta var greinilega einhver merkilegur sem gerði mannkyninu gagn,“ hugsar hinn jákvæði áhorfandi sem er gefinn fyrir styttur. Styttur eru venjulega af hvítum karlmönnum, enda hafa þeir um aldir fengið að valsa um frjálsir og hampa hver öðrum. Einhver breyting er þó að verða á þessu en í kjölfar grimmdarlegs morðs á blökkumanninum George Floyd hefur karlastyttum fækkað nokkuð. Æstur lýður hefur fellt þær af stalli, hverja á fætur ann­ arri. Eins og alkunna er þá er rökhugsun ekki efst í huga þess sem er reiður og æstur. Þannig framkallar það sjálfkrafa gremju hjá einhverjum hópum að sjá styttu af hvítum karlmanni í gamaldags múnderingu og hann er samstundis stimplaður sem afturhaldssinni, afsprengi nýlenduveldis og hatursmaður minnihlutahópa. Ekki er lagt upp úr því að kanna hvort svo hafi raunverulega verið, enda er það alltof tímafrekt. Styttan skal eyði­ lögð, meðan gleðióp viðstaddra hljóma. Eins og alltaf gerist þegar fólk gengur berserksgang þá falla hinir saklausu einnig. Það þykir nánast sjálf­ sagður fórnarkostnaður í þágu málstaðarins. Ekki er langt síðan sjá mátti safnvörð í Noregi nánast grátandi vegna þess að í Bandaríkjunum var eyðilögð stytta af norskum innflytjanda, Hans Christian Heg, sem var einarður talsmaður mannréttinda svartra og barðist í þrælastríðinu. Hann var hvítur karlmaður í múnd­ eringu og þar að auki barn síns tíma. Það nægir til að setja hann út af sakramentinu. Vitaskuld er engin ástæða til að allar styttur standi um aldir og ævi. Sumar hefði aldrei átt að reisa. Ástæðulaust er til dæmis að hylla sérstaklega þá grimmdarseggi, sem lögðu allt upp úr því að auðgast sem mest af þrælasölu og þrælahaldi. Þeir sem fá af sér styttu verða helst að hafa gert eitthvað jákvætt, sem skiptir máli fyrir marga. Sem merkir samt alls ekki að þeir þurfi að hafa verið gallalausir og aldrei gert afdrifarík mistök. Manneskjur eru ekki englar. Þær eru mótsagna­ kenndar, þeim verður á og gera alls kyns mistök. Skyndilega er einhver sem uppgötvar að Baden Powell, Churchill og Gandhi voru ekki algóðir og samstundis er æpt: Styttan skal falla! Fróðlegt væri að vita hvort þeir sem þar góla hæst, og umlykja sig helgislepju, treysti sér til að framvísa hreinu siðferðisvottorði. Lið æsingafólks tekur sér vald til að ákveða hvort styttur skuli standa eða ekki og fær sitt í gegn með handafli. Grænlendingar fóru góða leið á dögunum þegar þeir efndu til íbúakosningar um það hvort stytta af danska trúboðanum Hans Egede skyldi standa eða víkja. Mikill meirihluti kaus að Egede skyldi fá að vera á sínum stað. Fólkinu þykir vænt um styttuna og notar það ekki gegn Egede að hann var barn síns tíma – eins og við erum öll. Fallnar styttur Fyrir lok vorþings voru samþykkt ríflega 130 laga­frumvörp á Alþingi. Meðal þeirra voru lög um breytingar á lögum um svæðisbundna flutnings­ jöfnun. Lög um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara voru jafnframt felld úr gildi. Byggðastofnun verður eftirleiðis falið á grundvelli reglugerðar ráðherra að annast úthlutun styrkja vegna flutningskostnaðar olíuvara. Þessar breytingar skipta ekki sköpum fyrir þjóðarhag en hafa þýðingu fyrir íbúa í dreifðum byggðum á Íslandi. Eflaust kann einhverjum að finnast tímaskekkja að viðhalda flutningsjöfnun á jarðefnaeldsneyti sem samfélagið er markvisst að hverfa frá. Hafa verður þó í huga að framboð á orkugjöfum til samgangna á byggðarlega viðkvæmum stöðum er misjafnt. Enn verður því ekki við komið að nýta stór og þung, vélknúin tæki með nýjum orkugjöfum, til dæmis í landbúnaði, í vöruflutningum og smábátaútgerð sem er snar þáttur á ýmsum svæðum á landsbyggðinni. Þeir tímar munu koma að þarna verði breytingar á, en á meðan er eðlilegt að leitað sé viðleitni til jafnræðis. Lykilatriði er að lagabreytingin hafi ekki letjandi áhrif, að ekki verði gefinn minnsti afsláttur af markmiðum Íslendinga um orkuskipti í samgöngum. Á þessu sviði er þróunin ör og spennandi lausnir handan við hornið. Enginn vafi er á að með þessari lagabreytingu er verið að létta álögum af olíufélögunum. Til þessa hafa þau verið að greiða, eða réttara sagt kaupendur eldsneytis, ríf lega 400 milljónir árlega með sérstöku flutningsjöfnunargjaldi en samkvæmt nýjum lögum fellur það burt. Mun lægri fjárhæð rennur til f lutn­ ingsjöfnunar eða 175 milljónir króna eins og staðan er um þessar mundir og verður innheimt með breyttum vörugjöldum af olíuvörum. Þetta þýðir að í það minnsta 225­240 milljónir verða eftir hjá olíufélögunum, í boði ríkisstjórnarinnar. Það verður fróðlegt að sjá hvort neytendur fá að njóta þessara hagstæðu breytinga í lægra verði á eldsneyti. Ef hinn elskaði samkeppnismarkaður sem núverandi stjórnvöld hafa svo mikla trú á virkar, ætti það sannarlega að gerast. Olíufélögin hrósa happi Guðjón S. Brjánsson þingmaður Samfylkingar- innar Riddarar réttlætisins Fyrir áhugamenn um réttlæti eru það ánægjuleg tíðindi að norska lögmannsstofan Wik- borg Rein hefur lokið rannsókn á starfsemi Samherja í Namibíu. Búið er að kynna skýrslu stof- unnar fyrir stjórn fyrirtækisins sem mun síðan meta hvað sé hægt að birta opinberlega. Í tilkynningu á vef fyrir- tækisins er haft eftir formanni stjórnar Samherja að frá fyrstu tíð hafi stjórnendur fyrir- tækisins verið sannfærðir um að ásakanirnar væru tilhæfulausar. Það skyldi því enginn fá áfall ef Wikborg Rein kemst að sömu niðurstöðu eftir að hafa kynnt sér innihald milljóna skjala. Ekki er með öllu útilokað að niðurstaðan verði sú að allt sé Jóhannesi Stefánssyni að kenna og réttlætinu þar með fullnægt. Stutt stopp Átta berjast um tvö laus embætti í Hæstarétti Íslands. Athygli vekur að lögum sam- kvæmt geta hæstaréttardóm- arar farið á eftirlaun við 65 ára aldur. Flestir ákveða um það leyti að stíga til hliðar. Elsti umsækjandinn um emb- ættin tvö er Davíð Þór Björg- vinsson, varaforseti Landsrétt- ar, sem verður 65 ára næsta vor. Enginn vafi er á að Davíð Þór er í hópi hæfustu umsækjendanna og því talsverðar líkur á því að hann hljóti aðra stöðuna. Það gæti orðið stutt stopp. 3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.