Fréttablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 16
Mér finnst mikil-
vægt að fá börn til
þess að stunda hreyfingu og
fá þau út úr símanum og
tölvunni í smá tíma hið
minnsta.
FÓTBOLTI Þar mætir Moli vopnaður
knattspyrnubúnaði og visku sinni
og dreifir þeirri gleði sem knatt-
spyrnan á að veita fólki. Moli er
Akureyringur í húð og hár og lék um
árabil með Þór, auk þess sem hann
hefur þjálfað hjá félaginu í mörg ár.
Þess má einnig geta að hann á tvo
A-landsleiki að baki.
Settar eru upp skemmtilegar og
fjölbreyttar fótboltabúðir á hverj-
um stað, til að efla áhuga iðkenda og
styðja við bakið á knattspyrnustarf-
inu á staðnum. Moli hefur nú þegar
farið í 22 heimsóknir víðs vegar um
landið en hann fór alls til 35 sveitar-
félaga síðasta sumar. Hann ætlar að
efna loforð sitt um að heimsækja
þessa staði á nýjan leik en áætlað er
að verkefnið standi til loka ágúst-
mánaðar í ár. Mola langar að stækka
og þróa verkefnið næstu misserin.
„Þetta er náttúrulega fyrst og
fremst ótrúlega gaman og gefandi
að sjá glampann í augunum á
krökkunum á þeim stöðum sem
ég hef heimsótt. Það er ánægjulegt
að sjá núna í ár meirihluta þeirra
andlita sem ég sá í fyrra skjóta
upp kollinum aftur að þessu sinni.
Markmiðið er bara að vekja gleði og
hjálpa til við að minnka kvíða hjá
börnunum með knattspyrnuna að
vopni ef svo má segja,“ segir Moli í
samtali við Fréttablaðið.
„Fyrirkomulagið er í raun sára-
einfalt þar sem ég set upp svokall-
aða pönnuvelli. Sem er í raun bara
lítill battavöllur og þar er spilað
einn á móti einum og það eru allir
velkomnir, sama á hvaða aldri fólk
er. Uppleggið er að krakkarnir fái
sem mest út úr þessu og þau hafa
gaman af því að kljást við jafn-
aldra, vini á öðrum aldri og tækla
mömmu, pabba og frænda. Svo set
ég líka upp skemmtilegar þrauta-
brautir,“ segir hann um uppsetn-
inguna á verkefninu.
„Mér finnst mikilvægt að fá börn
til þess að stunda hreyfingu og fá
þau út úr símanum og tölvunni í
smá tíma hið minnsta. Þá held ég
smá fyrirlestur um mikilvægi hollr-
ar næringar og svefns. Aðaláherslan
er eins og áður segir að vekja gleði
í hjörtum barnanna og freista þess
að minnka kvíðann hjá þeim Það
getur fylgt því mikil pressa að spila
fótbolta en ég vil fara í grunninn
og minna á að fótbolti á að vera
skemmtun,“ segir þessi margreyndi
þjálfari.
„Ætli ég hafi ekki keyrt hringinn
svona sirka þrisvar sinnum síðasta
sumar og þetta stefnir í annað
eins sumar. Það er hins vegar klár-
lega þess virði þegar ég sé gleðina
í augum krakkanna og eldmóðinn
í þeim sem standa að knattspyrn-
unni í þessum minni bæjarfélögum.
Gefandi að sjá gleðina skína
Siguróli Kristjánsson eða Moli, eins og hann er ávallt kallaður, er annað sumarið í röð á ferð um landið.
Moli er í forsvari fyrir „Komdu í fótbolta“ sem felur í sér heimsóknir til minni sveitarfélaga um land allt.
Næst á dagskránni hjá Mola er að heimsækja Vestfirðina. Hann stefnir á að fara þangað um miðjan ágúst.
Siguróli Kjartansson, Moli, hefur ferðast um landið síðustu tvö ár og breitt út boðskap knattspyrnunnar. MYND/KSÍ
Ég set ekki fyrir mig að keyra frá
Akureyri til Patreksfjarðar, sem
eru tæpir 600 kílómetrar svo dæmi
sé tekið. Það er mikilvægt að sinna
grasrótinni vel og ég geri það með
glöðu bragði,“ segir Moli um ferða-
lögin sem fylgja verkefninu.
„Síðasta sumar heimsótti ég
35 sveitarfélög og ég lofaði þeim
sem ég hitti að ég ætlaði að koma
aftur í sumar. Ég ætla að standa við
gefið loforð. Svo væri ég meira en
til í að stækka verkefnið og bæta
öðrum 35 sveitarfélögum við og
hafa verkefnið í gangi allan ársins
hring. Það er hins vegar í höndum
KSÍ hversu stórt verkefnið verður.
Til er ég allavega og ég merki gleði
og þakklæti í þeim bæjum sem ég
heimsæki,“ segir Þórsarinn um
framhaldið.
hjorvaro@frettabladid.is
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Alþjóða frjáls-
íþróttasambandið, tilkynnti í gær
á hvaða tímum og lengdum frjáls-
íþróttamenn þurfa að hlaupa, kasta
eða stökkva, til þess að ná lágmarki
fyrir Ólympíuleikana sem áætlað er
að halda í Tókýó á næsta ári.
Lokað var fyrir þann glugga að
komast á Ólympíuleikana þegar
kórónaveirufaraldurinn skall á og
leikunum var frestað.
Fram kemur í t ilk y nning u
alþjóða frjálsíþróttasambandsins
að ákveðið hafi verið að opna á
nýjan leik möguleikann á að ná lág-
mörkum fyrir leikana, 1. september
í staðinn. Íþróttafólk hefur svo tíma
til loka nóvembermánaðar til þess
að tryggja sér farseðilinn til Tókýó.
Eins og staðan er núna er sund-
maðurinn Anton Sveinn McKee
eini íslenski keppandinn sem hefur
tryggt sér þátttökurétt á leikunum
sem fram eiga að fara á næsta ári. – hó
Þrír mánuðir
til þess að ná
lágmörkum
FÓTBOLTI Ragnar Sigurðsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, hefur
framlengt samning sinn við danska
úrvalsdeildarliðið FC Köbenhavn út
ágústmánuð. Það er vefmiðillinn
Copenhagen Sundays sem greinir
frá þessu.
Samningur Ragnars við FC
Köbenhavn átti að renna út 30. júní
síðastliðinn, en hann var fram-
lengdur fyrst fram í lok júlí og nú
aftur til loka ágústmánaðar vegna
seinkunar keppnistímabilsins í
Danmörku og þátttöku FC Köben-
havn í Evrópudeildinni.
FC Köbenhavn leikur seinni leik
sinn við nýkrýnda Tyrklandsmeist-
ara, Istanbul Basaksehir, á heima-
velli sínum, Parken, miðvikudaginn
5. ágúst. Ragnar sem varð 34 ára
gamall fyrr í sumar, kom á frjálsri
sölu til FC Köbenhavn í upphafi
þessa árs eftir dvöl sína hjá Rostov
í Rússlandi. – hó
Ragnar verður
áfram í Köben
FÓTBOLTI Alþjóðaknattspyrnusam-
bandið, FIFA, kynnti á heimasíðu
sinni í gær að sambandið hefði
ákveðið að styrkja aðildarsam-
bönd sín um 1,5 milljónir Banda-
ríkjadala.
Það samsvarar rúmlega 200 millj-
ónum íslenskra króna. Þriðjungur
þeirrar upphæðar er eyrnamerktur
kvennaknattspyrnu í löndunum.
Styrkurinn er vegna þeirra áhrifa
sem kórónaveirufaraldurinn hefur
haft á knattspyrnusamfélagið um
allan heim. Fram kemur í frétt FIFA
að KSÍ fái styrkinn í sinn hlut í
næsta mánuði. – hó
FIFA styrkir
sambönd sín
vegna COVID
Ragnar er hérna í leik með FCK.
3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Knattspyrnudeild Vals
kynnti í gær til leiks nýjan leik-
mann hjá karlaliði félagsins. Um er
að ræða 19 ára danskan framherja,
Kasper Högh, sem gengur í raðir
félagins þegar félagaskiptaglugginn
opnar 5. ágúst næstkomandi.
Högh er samningsbundinn Rand-
ers í Danmörku en hann kemur til
Vals á lánssamningi sem gildir út
yfirstandandi leiktíð.
Hann hefur leikið 17 leiki í
dönsku úrvalsdeildinni með Rand-
ers og skorað í þeim leikjum eitt
mark, auk þess að hafa leikið fyrir
U-18 og U-19 ára landslið Dan-
merkur.
Þessi efnilegi leikmaður hefur
raðað inn mörkum fyrir U-19 ára
lið Randers og skorað 48 mörk í 47
leikjum. Hann skrifaði undir fimm
ára atvinnumannasamning við
Randers sumarið 2019.
Honum er ætlað að veita sam-
landa sínum, Patrick Pedersen,
samkeppni og liðsinni í fremstu
víglínu hjá Valsliðinu, en Peder-
sen fór meiddur af velli í sigri Vals
gegn Fylki á dögunum og missti af
sigurleiknum gegn Fjölni í síðustu
umferð Íslandsmótsins, vegna
þeirra meiðsla.
Högh verður löglegur með Val
þegar liðið mætir FH í næstu umferð
Íslandsmótsins, en sá leikur fer fram
miðvikudaginn 5. ágúst. – hó
Valur bætir framherja í flóruna
Kasper Högh er nýr leikmaður Vals.
Félagaskiptaglugginn
opnar hér heima miðviku-
daginn 5. ágúst og félögin
eru farin að styrkja hópa
sína fyrir seinni hluta
keppnistímabilsins.