Fréttablaðið - 30.07.2020, Side 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Fyrirsætan Ísold Halldóru-dóttir hefur ferðast um allan heim vegna starfsins
og meðal annars unnið með
þekktum vörumerkjum eins og
Dazed Magazine og Marc Jacobs.
Hún segir að samkeppnin sé hörð
og það sé nauðsynlegt að þola
höfnun, en fyrirsætustörfin hafi
kennt henni að vera stolt af eigin
líkama og elska sjálfa sig.
Ísold, sem verður 24 ára í ágúst,
segist líta á sig sem menningarleg-
an sígauna. „Ég er alltaf á f lakki.
En mér finnst erfitt að lýsa sjálfri
mér,“ segir hún. „Hvenær veit
maður í rauninni hver maður er?
Ég er endalaust að þróast og með
tímanum er ég orðin allt öðruvísi
manneskja en ég var fyrir viku
síðan.“
Ísold segir að hún hafi ekki
vitað hvað hana langaði að verða
þegar hún var yngri og að hún
hafi ekki haft áhuga á fyrirsætu-
störfum lengi áður en hún fór að
starfa sem slík. „En ég hef alltaf
verið mjög listnæm og hef þróast
mjög mikið með listinni,“ segir
hún.
Í nýrri herferð Marc Jacobs
Fyrirsætuferillinn hófst svo í lok
ársins 2016. „Ég tók þátt í keppni
fyrir Love Magazine, sem er tíma-
rit úti í Bretlandi. Keppnin var
eftirsótt af fólki um allan heim
því hún bauð upp á tækifæri til
að fá auglýsingu í blaðinu og hún
var mynduð af Kendall Jenner,“
segir hún. „Eftir það hélt ég áfram
að vinna sem fyrirsæta og þó að
byrjunin hafi verið hæg hélt það
ekki aftur af mér og ég lét það ekki
koma í veg fyrir að ég elti drauma
mína.
Eitt af stærstu verkefnunum
mínum var þegar ég vann með
Dazed Magazine í fyrra. Þar birt-
ust 12 blaðsíður af mér í f líkum
eftir þekkta hönnuði, þar á meðal
Vivienne Westwood. Það var eitt-
hvað sem ég hafði aldrei upplifað
áður,“ segir Ísold. „En nýjasta og
kannski skemmtilegasta tækifær-
ið sem ég hef fengið var að vinna
með Marc Jacobs fyrir auglýsinga-
herferð fyrir nýja ilmvatnið hans,
sem fjallar um það hvað það þýðir
að vera fullkomin.“
Ilmurinn ber nafnið Perfect
Marc Jacobs og kemur út í dag, 30.
júlí.
Allt eða ekkert í þessu starfi
„Eitt af því skemmtilegasta við
að vinna sem fyrirsæta er að
geta ferðast um allan heim, þó
að maður sé oftast ekki lengi á
hverjum stað,“ segir Ísold. „Eftir
að COVID-19 faraldurinn hófst
hefur mér líka þótt það mjög
áhugavert hvernig það er alltaf
hægt að finna nýjar lausnir til
þess að skapa.
Ég hef líka lært óskaplega mikið
af þessu starfi. Til dæmis að elska
sjálfa mig fyrir framan myndavél-
ina en ekki bakvið hana. Áður en
ég varð fyrirsæta var ég lengi að
reyna að fela mig og líkama minn,
þrátt fyrir að allir í kringum mig
og ég sjálf vissu að ég væri feit,“
segir Ísold. „Í dag ber ég það með
stolti. Ekki fyrir aðra, heldur fyrir
sjálfa mig, því þetta er mitt líf og
minn líkami.
Það erfiðasta við þetta starf
er að þurfa mjög oft að vera
undirbúin undir höfnun. Það er
mjög mikil samkeppni um hvert
Ísold segir að
þrátt fyrir hæga
byrjun á ferl-
inum hafi hún
ekki látið neitt
aftra sér frá því
að elta drauma
sína.
Það erfiðasta
við starf fyrir-
sætunnar er að
þurfa að þola
mikla höfnun,
segir Ísold.
Það er mikil
samkeppni um
hvert verkefni
en það þarf
alltaf að henda
sér út í djúpu
laugina með því
að sækjast eftir
verkefnunum
sem allir hafa
áhuga á.
Ísold segist
hafa lært mikið
af starfinu. Til
dæmis það að
elska sjálfa sig
og hætta að
reyna að fela
sig. Á mynd-
unum er hún
klædd í íslenska
hönnun frá
Geysi.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
verkefni og það getur verið erfitt
að sætta sig við það að fá ekki
þau verkefni sem mann langar í
og dreymir um,“ segir Ísold. „Þú
þarft alltaf að vera að henda þér
út í djúpu laugina með því að
sækjast eftir tækifæri sem allir
hafa áhuga á. Það er ekki hægt að
fela sig eða vera feimin. Það er allt
eða ekkert.“
Gefur öðrum hugrekki
Ísold segir að árangurinn sem hún
hefur náð hingað til sem fyrir-
sæta hafi ekki beint komið henni
á óvart. „Ég held að innst inni geri
ég mér alveg grein fyrir því hvað ég
er búin að vinna mikið fyrir stöðu
minni í dag sem fyrirsæta, en ég
hef líka verið ótrúlega heppin með
verkefni og tek því alls ekki sem
sjálfsögðum hlut,“ segir hún.
Hún veit ekki hvort hún
hafi komið öðrum á óvart með
árangrinum. „Jú, örugglega
svona yfir höfuð. Það finnst ekki
öllum raunhæft að sjá mann-
eskju eins og mig njóta velgengi
í þessum bransa,“ segir hún. „Þó
að ég láti það ekki hafa áhrif á
mína reynslu, þá er það að vissu
leyti mjög mikilvægt að fólk tali
um fjölbreytni og sjái mig bera
höfuðið hátt, því þá finnur það
hugrekki til að gera það sama.“
Núna er kvikmynd næst á dag-
skrá hjá Ísold. „Ég er að undirbúa
mig fyrir að leika aðahlutverk
í kvikmynd sem gerist í Þýska-
landi, en annars er ég alltaf að
sækjast eftir nýjum tækifærum til
þess að breyta heiminum,“ segir
hún að lokum.
Nýjasta og
kannski skemmti-
legasta tækifærið sem ég
hef fengið var að vinna
með Marc Jacobs fyrir
auglýsingaherferð fyrir
nýja ilmvatnið hans,
sem fjallar um það hvað
það þýðir að vera full-
komin.
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
ÚTSALA
30-50% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R