Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 22
Í sumum tilfellum er hálstau hluti af einkennisbúningi, í öðrum eru þau notuð sem skrautmun- ur, og í einstaka tilfellum getur það jafnvel jaðrað við pólitíska yfir- lýsingu að skarta ekki bindi. Tískukóngurinn Loðvík XIV. Forfaðir hálsbindisins, sem við þekkjum flest vel í dag, er rekjan- legur aftur á sautjándu öld, þar sem króatískir málaliðar í franska hernum skörtuðu litlum, hefð- bundnum, hnýttum hálsklútum sem nefndust kravat-klútar. Þessi framandi tíska vakti áhuga Parísar- búa sem þyrsti í nýja tískustrauma. Þessi nýja og spennandi tíska stimplaði sig rækilega inn í hefðar- lífið þegar Loðvík fjórtándi byrjaði að ganga með kravat-klút upp úr 1646, þegar hann var einungis sjö ára. Stuttu síðar fór tískufyrirbærið eins og eldur í sinu um alla Evrópu. Bæði menn og konur kepptust við að binda upp fínofna blúnduklúta eftir kúnstarinnar reglum í slaufur og fallega knúta. Upp úr 1715 fór svo að bera á nýrri tísku í hálstaui. Komu þá fram svokallaðir stokkar og á hugtakið við meðal annars um leðurkraga sem reimaður er saman að aftan. Hermenn skörtuðu þessum krögum til að sýna að þeir bæru höfuðið hátt, en að auki veitti kraginn nokkra vörn fyrir stórar slagæðar í hálsinum gegn byssu- stingsárásum. Bindið kemur til sögunnar Á sama tíma var enn mikill áhugi fyrir því hvernig binda skyldi kravat-klúta sem leiddi af sér blómlega bóka- og bæklingaút- gáfu, um hinar ýmsu leiðir til kravat-bindinga. Árið 1818 var gefin út Neckclothitania, sem var handrit með teiknuðu kennsluefni um fjórtán leiðir til þess að binda kravat-klút. Þetta er alla jafna talið fyrsta ritið sem notar orðið „bindi“ í tengslum við hálstau. Með iðnbyltingunni eða upp úr 1820 jókst krafan um þægi- legri, einfaldari og endingarbetri bindi. Fólk vildi hálstau sem voru þægileg og entust út vinnudaginn. Hálsbindin voru því hönnuð til að vera lengri og grennri og væri auðvelt að binda saman án þess að þau losnuðu í tíma og ótíma. Þessi tegund hálsbindis er enn þann dag í dag vinsælasta hálstauið. Langsdorfinn mætir á svæðið Um 1926 fann bindagerðarmaður- inn Jesse Langsdorf upp nýja aðferð við að klippa bindisefnið á ská, á móti því hvernig efnistrefjarnar liggja og sauma bindið saman í þremur pörtum. Þessi tækni jók teygjanleika bindisins og sá til þess að bindið hélt betur formi sínu. Síðan þá eru flest bindi svo- kölluð „Langsdorf“-bindi. Fyrir síðari heimsstyrjöld var bindatískan styttri en hún er í dag, að hluta til vegna þess að buxur voru hærra sniðnar. Auknar vin- sældir jakkavesta gerðu það einnig að verkum að lengd bindis skipti ekki jafnmiklu máli. Um 1944 urðu bindin bæði þykkari og villtari sem tengist meðal annars heim- komu hermanna, sem voru komnir með nóg af einkennisbúningum herþjónustunnar. Bindisþykktin var allt að 13 cm í þvermál og fór að bera á alls konar litríkum myndum, mynstrum og jafnvel landslagsmyndum. Lengdin var í kringum 120 cm. Mister T Þetta villta útlit dvínaði upp úr 1951 þegar „Herra T“-útlitið („Mis- ter T“ eins og Esquire-tímaritið nefndi það) var kynnt til sögunnar. Þetta nýja og ferska útlit einkennd- ist af frammjókkandi jakkafötum, grennri boðungum, minni hatta- brík sem og einfaldari og grennri bindum. Bindisþykkt fer niður í ríflega 8 cm og þau héldu áfram að mjókka fram til 1960 í kjölfar vinsælda breskra hljómsveita eins og Bítlanna og the Kinks. Bindin lengdust í 130 cm eftir því sem karlar fóru að ganga í buxum sem sátu neðar á mjöðmunum. Um 1960 voru einlit, dökk og allt niður í 2,5 cm mjó bindi mest í tísku. Svo fór aftur að bera á villtari litum og þykkara hálstaui. Strax um 1970 slógu mjóu bindin aftur í gegn með nýbylgjunni og popphljómsveitum eins og Knack, Blondie og Duran Duran. Upp úr 1980 og fram til 1990 fór einnig að bera á grínbindum og bindum sem skörtuðu meðvitað hallærislegu mynstri og myndum. Seint á tíunda áratugnum tóku tveir menn að nafni Thomas Fink and Yong Mao, sig til á vegum Cam- bridge Cavendish rannsóknar- stofunnar og svöruðu aldagamalli spurningu, sem hafði líklega legið þungt á mörgum, um fjölda leiða til þess að binda bindi. Þessir fræknu menn notuðu stærðfræðilíkan til þess að finna út hina 85 hnúta sem mögulegir eru, þegar kemur að bindingu hálsbindis. Rannsóknir þeirra miðuðust við að hreyfingar við bindishnútagerðina væru eigi fleiri en níu, þar sem fleiri yrðu til þess að hnúturinn yrði of stór eða endarnir of stuttir. Af þessum 85 hnútum völdu Mao og Fink þret- tán bindishnúta með aðferðum fagurfræðinnar og útnefndu sem þá nothæfustu. Af þessum þrettán eru fjórir algengastir enn í dag, og er hinn svokallaði „fjórir í hendi“ þeirra allra vinsælastur. Einnig eru þar á meðal Pratt hnúturinn, hálfur Windsor hnútur og svo Windsor hnútur. Upp úr 2000 þróast meðalþvermál binda í að vera um 9-9,5 cm og hefðbundin lengd binda í um 140 cm. Tískan er afar fjölbreytt þegar kemur að mynstrum, myndum og litum. Tískutau fyrir góða hálsa Hálstau eru til margs nýtanleg og geta verið til mikillar prýði. Þau koma í ýmsum stærðum og gerðum, þykktum og lengdum og fólk hefur fundið ótal leiðir til að gera bindishnúta við hæfi. Paul McCartney, John Lennon, George Harrison og Ringo Starr eru flottir með mjóbindin sín í kringum 1962. Loðvík XIV. með fylgdarliði sínu. Að sjálfsögðu skarta allir forkunnarfögru hálstaui fyrir tíma bindanna. Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Myndin er tekin í Borg englanna árið 1977. Sjá má meðlimi hljómsveitarinnar Blondie með söngkonuna Debbie Harry til hægri. Tveir meðlimir skarta reffilegum mjóbindum af mikilli reisn. MYNDIR/GETTY IMAGES. Bindin lengdust í 130 cm eftir því sem karlar fóru að ganga í buxum sem sátu neðar á mjöðmunum. HJÓLABLAÐ Föstudaginn 7. ágúst gefur Fréttablaðið út sérblaðið Hjólablað. Í þessu skemmtilega blaði er fjallað um allt sem viðkemur hjólreiðum á Íslandi. Allir sem stunda hjólreiðar að einhverju marki munu finna áhugavert efni í blaðinu. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir Arnar Magnússon sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5652 / arnarm@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryg u þér gott uglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . J Ú L Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.