Fréttablaðið - 06.08.2020, Side 22

Fréttablaðið - 06.08.2020, Side 22
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Lemmy Kilmister, sem fæddist á aðfangadag árið 1945 og lést 28. desember 2015, var óum­ deilanlega einhver mesti töffari mannkynssögunnar. Allt frá því hann var ungur að árum og fram á síðasta dag var hann tískufyrir­ mynd sem hafði víðtæk áhrif. Stíll Lemmy og hljómsveitar hans, Motörhead, varð gríðarlega áhrifa­ mikill í þungarokksheiminum, en áhrif þeirra voru svo mikil að þau sjást mun víðar. Frummynd þungarokkara Hljómsveitin Motörhead var stofnuð á Englandi árið 1975 og var virk þar til Lemmy lést. Sveitin varð snemma áhrifamikil í þunga­ rokks heiminum og það væri hægt að skrifa heila bók um hvernig hún hefur mótað og haft áhrif á menn­ ingu og hljóm þungarokks. Árið 1980 gaf sveitin svo út plötuna Ace of Spades, sem innihélt vinsælasta lag sveitarinnar fyrr og síðar og hafði einnig gríðarleg tískuáhrif. Framan á plötuumslaginu standa meðlimirnir leðurklæddir með byssukúlubelti, kúrekahatta og kúrekastígvél. Þeir urðu fljótlega Svalasti töffari sögunnar Lemmy Kilmister, forsprakki Motörhead, var einhver alsvalasti töffari mannkynssögunnar og stíll hans og sveitarinnar hafði mjög víðtæk tískuáhrif, sem hafa náð langt út fyrir þungarokkið. Stíll Lemmys Kilmister hefur verið mjög áhrifamikill og áhrifa hans gætir ekki bara í þungarokksheiminum. Alls konar fólk klæðist eins og hann. Lemmy á sviði árið 2010 með útskorna Rickenbacker-bassann, kúreka- hattinn og hljóðnemann upp í loft, eins og var hans stíll. MYNDIR/GETTY Bresku kúrekarnir Þessi „einkennisbúningur“ hefur verið notaður af langflestum þungarokkssveitum síðan. Metal­ lica, Slayer, Pantera, Megadeth, Guns N’ Roses, Immortal, Fields of Nephilim og okkar eigin Sólstafir eru allt dæmi um frægar sveitir sem hafa nýtt sér tískufyrirmynd Motörhead að einhverju leyti. Aðalbjörn Tryggvason, söngvari Sólstafa, hefur talað um þessi áhrif. „Ég hef notað Fender Strato­ caster eins og fyrsti gítarleikari Motörhead, ég er með byssu­ kúlubelti, ég er með sérútskorinn gítar eins og Rickenbacker­inn hans Lemmys og auðvitað nota ég hattinn og var einu sinni með skegg eins og hann,“ sagði hann við Loudersound. Í samtali við Fréttablaðið bætti hann við: „Þegar ég sá útskorna bassann hans Lemmys varð ég bara að gera nákvæmlega það sama við Flying V­gítarinn minn, en eðlilega hafði ég munstrið meira norrænt. En ég stal þessu beint af honum. Svo að sjálfsögðu hefur hann haft áhrif á mig og kynslóðina á undan mér! Hann hefur haft bein áhrif á mig og áhrif hans hafa komið í gegnum annað fólk,“ sagði Aðalbjörn. „Hann hafði áhrif á [James] Hetfield [söngvara Metal­ lica] og Hetfield hafði auðvitað áhrif á mjög marga líka.“ Það er skondin staðreynd að margar bandarískar sveitir nýti þungarokkskúrekaútlit sem á upp­ runa sinn í Bretlandi. „Það er það fyndnasta!“ segir Aðalbjörn. „Það eru ekki til neinir breskir kúrekar, en þeir í Motörhead voru það, þannig að við erum líklega undir áhrifum frá breskum kúrekum.“ Gërmönsk áhrif Ö­ið í merki Motörhead hefur líka haft mikil áhrif og oft er gripið til tvöföldu kommunnar þegar vísa á í heim þungarokksins. Grín­ hljómsveitin Spınal Tap (já, þetta er í alvörunni skrifað svona) er eitt dæmi, en „metalkommurnar“ eru líka í nafni sveitanna Blue Öyster Cult, Queensrÿche, The Accüsed og Mötley Crüe, svo nokkur dæmi séu nefnd. Lemmy hefur sagt að hann hafi stolið þessu af Blue Öyster Cult, en það er líka til saga frá hönn­ uði merkisins sem er á þá leið að Lemmy hafi beðið hann um að hafa merkið svolítið „germanskt“. Fyrir slysni enduðu tveir punktar yfir seinna O­inu, en það var svo germanskt í útliti að það var látið standa. Hönnuðurinn var líka búinn með H­in sín, þannig að hann bjó H­ið til úr L­i og hálfu W­i á hvolfi. Þessi tvöfalda komma hefur líka sést utan þungarokks. Til dæmis setti rapparinn Jay­Z hana yfir Y­ið í nafni sínu á umslagi plötunnar Reasonable Doubt árið 2015 og Shawn Stussy smellti henni yfir eftirnafnið sitt til að skapa tískumerkið Stüssy. Líka á sýningarpöllunum Tískuáhrif Motörhead hafa teygt sig langt út fyrir svið þunga­ rokksins. Alls konar fólk klæðist leðurjökkum, stórum beltis­ sylgjum og kúrekastígvélum í anda Motörhead og meira að segja sjást Motörhead­bolir á fólki sem þekkir ekki endilega sveitina. Tónlist Motörhead hefur líka hljómað í ótal kvikmyndum, sjón­ varpsþáttum og tölvuleikjum og jafnvel yfir tískusýningum, bæði hjá Prada og hönnuðinum Asger Juel Larsen. Stíll og hugmynda­ fræði Lemmys hafði líka mikil áhrif á tískumerkið SSS World Corp. Lemmy söng um að hann vildi ekki lifa endalaust, en í gegnum tónlistina og ómælanleg áhrif hans og Motörhead varð hann ódauðlegur. eins og frummynd Platós fyrir þungarokkstöffara. Það er líklega bara einn maður sem hefur haft svipuð áhrif á þungarokkstísku og Lemmy. Það er Rob Halford, söngvari Judas Priest, sem hitti Lemmy fyrst á klúbbi í London seint á 8. áratugn­ um. „Við bárum mikla virðingu fyrir Lemmy og Motörhead,“ sagði hann við Loudersound. „Hann var þarna með Phil Taylor [trommara Motörhead] að detta í það og við hugsuðum „okkur líkar strax vel við þennan gaur!“ Á þessum tíma var hann ímynd skítuga rokkarans,“ sagði Halford. „Kúrekastígvél, Levi’s gallabuxur, stuttermabolur, leðurjakki og sólgleraugu og það lýsti honum, Motörhead og tónlist þeirra full­ komlega. Og þetta varð einkennis­ búningurinn fyrir alla metalhausa sem á eftir komu!“ Beta Glucans IMMUNE SUPPORT+ FYRIR ÓNÆMISKERFIÐ n Sýnt hefur verið fram á að Beta-Glúkan lækki kolesteról og viðhaldi eðlilegu kolesterólmagni í blóði. Einnig er það talið vera ónæmisvari sem efli svörun ónæmiskerfisins. n C-vítamín er mest notaða vítamínið gegn flensu og kvefi og stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmis- og taugakerfis líkamans, getur dregið úr þreytu og lúa. n D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. n A-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins, auk þess að stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans. n Hvítlaukur er talinn bakteríudrepandi ásamt því að stykja ónæmiskerfið og stuðla að vörnum gegn umgangspestum. n Sínk stuðlar að eðlilegri DNA-nýmyndun og eðlilegum sýru- og basaefnaskiptum sem er mikilvægt jafnvægi fyrir öflugt ónæmiskerfi. n Selen stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og verndar frumur fyrir oxunarálagi. n Elderberry hefur í aldanna raðir verið notuð til að styrkja ónæmiskerfið, sérstaklega gegn vírusum og er talin góð við hósta og vandamálum í öndunarfærum. Beta Glucans Immune Support+ inniheldur öfluga blöndu af vítamínum, jurtum og steinefnum sem styrkja og styðja við ónæmiskerfi líkamans eins og sjá má af neðangreindum Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.