Fréttablaðið - 06.08.2020, Page 34

Fréttablaðið - 06.08.2020, Page 34
Það fylla mann afskap-leg a blend na r t i l-finningar núna þegar tæpur mánuður er eftir af sumrinu. Vanalega heldur maður í  vonina svona á lokasprettinum um að fá nokkra fallega sólardaga til við- bótar og jafnvel að ná að skreppa aðeins út á land. Sökum þess að allt lítur út fyrir að nú sé önnur bylgja COVID-19 faraldursins að ríða yfir landið þá hafa landsmenn  verið hvattir til að halda sig helst heima. Þá er um að gera að reyna einfald- lega að hafa það notalegt og finna sér eitthvert hámhorf til að stytta stundirnar. Hér er samantekt yfir nokkra góða þætti á myndbands- veitunni Netf lix sem hafa ef laust farið fram hjá mörgum. steingerdur@frettabladid.is Þættir sem vert er að tékka á Nú er tæpur mánuður eftir af hinu íslenska sumri. Við erum þó hvött til þess að halda okkur heima, hvað er þá betra en gott gláp? Peep show Bresku þættirnir Peep Show eiga vissulega sinn aðdáendahóp en hafa þó farið fram hjá mörgum. Fyrir þá sem fíla breskan húmor og aðstæðu-grín á borð við Curb your Enthusiasm. The Politician Þættir úr smiðju Ryans Murphy sem gerði Glee og American Horror Story. Gwyneth Paltrow sýnir stjörnuleik sem móðir hins unga Paytons, sem gerir allt til að komast í pólitíkina og verða forseti. Brot Þættirnir Brot eru komnir inn á Netflix, en þeir voru framleiddir í samstarfi RÚV og myndbandsveiturisans. Þar með urðu þeir eitt kostnaðarsamasta og stærsta sjónvarpsverk Íslandssögunnar. Það er alltaf gaman að styðja íslenska framleiðslu. Toast of London Leikarinn Matt Berry, sem margir þekkja úr sjónvarps- þáttunum The IT Crowd, leikur miðaldra og mis- heppnaðan leikara í þessari bresku gamanseríu. Rectify Þættirnir fjalla um Daniel Holden sem situr saklaus í fangelsi með dauðadóm á bakinu þar til DNA-gögn afsanna aðild hans að glæpnum. Gífurlega spennandi atburðir gerast svo í framhaldinu. Never have I ever Fyndnir þættir úr smiðju Mindy Kaling, sem gerði The Mindy Project og skrifaði og lék í The Office. Dark Þýskir spennuþættir sem hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda. Spennandi og vel gerðir þættir sem taka á fjölskyldudrama kynslóða og tímaflakki. Avatar: The Last Airbender Teiknimyndaþættir sem eru engu síður fyrir fullorðna en börn. Það má finna allar þrjár seríurnar á Netflix, sem þykja þó nokkuð betri en samnefnd kvikmynd frá árinu 2003. 6 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.