Fréttablaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 2
Tvær síðustu hafa
verið mun auðveld-
ari en þá hef ég líka haft
félagsskap í sóttkvínni.
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Það er lítið talað við
íbúa og maður fær
það oft á tilfinninguna að
hverfið sé skilið eftir. Fólk
var það ánægt með tillöguna
að hún var kosin.
Berglind
Hönnudóttir,
íbúi á Kjalarnesi
Veður
Norðaustan 5-13 m/s, en 10-15 í
vindstrengjum á Austfjörðum og
Suðausturlandi. Víða léttskýjað.
SJÁ SÍÐU 20
Útför Gísla Rúnars Jónssonar
VELDU GÆÐI!
PREN
TU
N
.IS
................................................
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
PREN
TU
N
.IS
3 TEGUNDIR AF SÚRDEIGSBRAUÐUM
REYKJAVÍK Borgarráð samþykkti
í gær að opna nýtt áfangaheimili
fyrir konur í miðborginni. Unnið
verður eftir áfallamiðaðri hug-
myndafræði í samstarfi við Land-
spítalann og Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins. Þá verður gengið
til viðræðna við Rótina um rekstur
Konukots.
Í húsinu verða fjórtán góðar ein-
staklingsíbúðir, ein starfsmanna-
íbúð og sameiginlegt rými. Áætlað
er að kostnaður vegna reksturs
áfangaheimilisins verði allt að
25 milljónir króna á ári og að þar
verði forstöðumaður í dagvinnu og
félagsráðgjafi í hálfu starfi.
Markmiðið er að bjóða einstakl-
ingum sem hætt hafa neyslu öruggt
heimili, stuðning og aðhald meðan
þeir aðlagast samfélaginu á nýjan
leik. Í dag eru níu áfangaheimili í
Reykjavík, ýmist rekin af félaga-
samtökum eða Reykjavíkurborg,
þar sem rými er fyrir um það bil 200
einstaklinga. – ab
Opna nýtt
áfangaheimili
REYKJAVÍK Gerð minnisvarða um
brostin loforð Reykjavíkur við
Kjalarnes hefur verið sett á bið.
Um er að ræða verkefni sem íbúar
Kjalarness kusu um í Hverfið mitt-
kosningunum sem fóru fram síðasta
haust. Alls var 91 verkefni kosið til
framkvæmda sem bætast átti við
þau hátt í sjö hundruð sem fyrir eru.
Minnisvarðinn á Kjalarnesi er
eina verkefnið sem kosið var um
síðasta haust sem sett var á bið.
Öðrum verkefnum er ýmist lokið,
eru við það að hefjast, í vinnslu eða
í undirbúningi hjá verktaka.
Hverfið mitt gengur út á að leyfa
íbúum að kjósa um ýmis verkefni
í hverfum sínum, allt frá klifur-
grindum og trampólínum til bættra
göngustíga og lýsingar. Í fyrra var
íbúum í fyrsta sinn leyft að koma
með hugmyndir á kjörseðilinn um
hvað skyldi fram kvæmt í verk efninu
Hverfið mitt, árin á undan var það í
höndum hverfisráða.
Samkvæmt tillögunni er ætl-
aður heildarkostnaður f imm
milljónir króna og var hugmyndin
metin tæk af fagteymi sérfræðinga
frá umhverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar.
Hópur íbúa á Kjalarnesi átti til-
löguna. „Hugmyndin á rætur að
rekja til samningsins sem var gerður
þegar Reykjavík og Kjalarnes sam-
einuðust árið 1998, samningur sem
var kallaður Bláa bókin. Margt þar
var ekki uppfyllt,“ segir Berglind
Hönnudóttir, íbúi á Kjalarnesi,
sem sendi tillöguna inn fyrir hönd
hópsins. „Ég var ekki viss um að til-
lagan yrði kosin, þetta var aðallega
pönk til að vekja athygli á málefnum
hverfisins. Það er lítið talað við íbúa
og maður fær það oft á tilfinninguna
að hverfið sé skilið eftir. Fólk var það
ánægt með tillöguna að hún var
kosin.“
Berglind segir það ekki koma á
óvart að verkefnið hafi ekki komið
til framkvæmda. „Eftir að ég lagði
fram tillöguna fékk ég símtal frá
starfsmanni borgarinnar þar sem
ég er spurð hvort mér sé alvara
með þessari hugmynd, hvort þetta
sé jákvætt og hvort þetta auki
jákvæðni í hverfinu. Ég svaraði
neitandi, þetta sé ekki jákvætt, en
mér sé alvara og að mér finnist að
fólk megi kjósa um þetta.“
Berglind segir að síðustu sam-
skiptin við borgina hafi verið að
verkið væri í hönnunarferli. „Það er
ekkert í þessari tillögu sem er óger-
legt, það er ekkert í þessu sem þau
geta neitað. Eina frá okkur var að
þetta á að vera blá bók á áberandi
stað í hverfinu, við höfum ekkert
komið að hönnunarferlinu.“
Berglind segir það vel koma til
greina að leggja tillöguna fram aftur
í næstu kosningum ef hún kemur
ekki til framkvæmda. „Algjörlega,
það þarf að halda þessu á lífi.“
Reykjavíkurborg hefur ekki svar-
að erindum Fréttablaðsins vegna
málsins. arib@frettabladid.is
Setti minnisvarða um
brostin loforð á bið
Reykjavíkurborg hefur sett gerð minnismerkis um brostin loforð borgarinnar
á Kjalarnesi á bið. Er þetta eina verkefnið úr hverfiskosningunum sem sett
hefur verið á bið. Líklegt að tillagan verði aftur borin upp í næstu kosningum.
Kjalarnes, eða Grundarhverfi, hefur verið hluti af Reykjavík frá árinu 1998.
Sumum íbúum finnst loforð svikin sem þá voru gefin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
COVID-19 Knattspyrnukonan Þór-
dís Hrönn Sigfúsdóttir, leikmaður
KR, var í gær skikkuð í sína fjórðu
sóttkví frá því að faraldurinn hófst
eftir að einstaklingur í þjálfara-
teymi liðsins greindist með smit.
Þórdís lauk þriðju sóttkví sumars-
ins síðastliðinn föstudag og náði því
að njóta frelsisins í fimm daga.
„Þetta er ekkert sérstaklega
skemmtilegt en maður verður að
reyna að taka þetta með jákvæðni.
Það bjargar manni alveg að fara út í
göngutúra og stunda sem mest aðra
hreyfingu,“ segir Þórdís.
Hún segir að fyrsta sóttkvíin hafi
verið erfiðust. Þá hafi veður verið
slæmt og mikil óvissa og ótti í sam-
félaginu.
„Tvær síðustu hafa verið mun
auðveldari en þá hef ég líka haft
félagsskap í sóttkvínni,“ segir Þór-
dís. Það er eins nú en Þórdís verður í
sóttkví með liðsfélaga sínum. Spurð
hvort hún eigi eftir einhverja þætti
á Netf lix svarar hún: „Ég kláraði
Netflix í fyrstu sóttkvínni.“
KR-liðið hefur spilað leiki sína
vel strax að lokinni sóttkví. „Já, við
höfum mætt banhungraðar í þá
leiki. Við erum farnar að halda að
þetta séu samantekin ráð þjálfar-
anna að koma okkur sem oftast í
sóttkví,“ segir Þórdís og hlær. – bþ
Situr í sóttkví
í fjórða skiptið
Fyrsta sóttkvíin var erfiðust.
Útför Gísla Rúnars Jónssonar var gerð frá Háteigskirkju síðdegis í gær. Vegna reglna í samkomubanni komu aðeins nánustu aðstandendur saman
við athöfnina, en hún var sýnd í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans. Fjöldamargir vina Gísla tóku þátt í athöfninni. Meðal þeirra þau Björgvin
Halldórsson, Arnar Jónsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Sigríður Thorlacius, Ari Eldjárn og Sigrún Hjálmtýsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð