Fréttablaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 36
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Það er eiginlega merkilegt
hvað hefur verið vandað til
mín í upphafi af karli föður
mínum, úr Flatey á Breiðafirði,
og móður minni blessuninni,
héðan úr Arnarfirði. Oft er búið
að berja á manni eins og hörðu
roði.
Útför
Dóru S. Bjarnason
prófessors emerítus,
við Háskóla Íslands, fer fram
21. ágúst kl. 13 í Neskirkju.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu er
athöfnin fyrir nánustu aðstandendur
eingöngu, en verður streymt á slóðinni
https://youtu.be/ybVU8Oa5Loo og deilt á Facebook-síðu
Dóru. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á bankareikning Benna,
nr. 311-26-9991, kt. 221280-5399.
Benedikt H. Bjarnason
Inga Bjarnason
Ingi Þ. Bjarnason
Theodór Karlsson og Helle Kristensen
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sigurður Sigurðsson
húsa- og skipasmíðameistari,
frá Vatnsdal í Vestmannaeyjum,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði, 16. ágúst sl.
Í ljósi aðstæðna fer útförin fram með nánustu fjölskyldu.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
Sigurðar er bent á Minningarsjóð Hrafnistu í Hafnarfirði.
Atli Sigurðsson Harpa Andersen
Bjartey Sigurðardóttir
Gylfi Sigurðsson Guðrún Erlingsdóttir
Arnar Sigurðsson Margrét Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Sigrún Ragna Skúladóttir
hárgreiðslumeistari,
Arnarsmára 2, Kópavogi,
lést á heimili sínu 10. ágúst sl.
Útför hennar fer fram 24. ágúst nk.
Vegna aðstæðna er athöfnin einungis fyrir nánustu
fjölskyldu og vini.
Jónas Þór Kristinsson
Birna Dís Birgisdóttir Andri Janusson
Kristinn Viktor Jónasson Fanney Rós Magnúsdóttir
Heiðar Snær Jónasson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Gerðar Kristínar
Kristinsdóttur
Sigurður Kristjánsson Sigþóra Baldursdóttir
Sigurborg Kristjánsdóttir Andreas Þráinn Kristinsson
Heiðar Birnir Kristjánsson Kristín Helga Pétursdóttir
Víkingur Kristjánsson
Hlynur Kristjánsson Eva Sigurbjörnsdóttir
Júlía Hrönn Kristjánsdóttir Erlendur Eyvindarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ég sit hér í glampandi sól í fallegu stofunni minni. Nú fer ferðamannasumrinu að ljúka, það komu bara tveir gestir í gær en ég er búinn að fá marga góða og skemmti-
lega gesti í sumar,“ segir söngvarinn
góðkunni Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal
sem hefur rekið eigið tónlistarsafn í
tuttugu ár. „Ég hefði ekki lagt meira á
mig þó ég hefði farið gegnum hundrað
sálfræðikúrsa, enda hef ég verið alger-
lega einn og allir koma bara yfir blásum-
arið. Bíldudalur er í raun of lítill staður
fyrir svona safn – og er ekki í alfaraleið
á þessu landi. Víst lagast samgöngurnar
þegar Dynjandisheiðin verður malbikuð
en vegurinn þangað upp úr Trostans-
firðinum er nú dálítið spúkí.“
Jón verður áttræður á morgun og
ætlar að fagna því hjá góðum kunn-
ingjum sínum í Bolungarvík, séra Ástu
Pétursdóttur og Helga Hjálmtýssyni
bókmenntafræðingi. „Ég var búinn að
plana ferð til útlanda, ætlaði að bjóða
mínum besta kunningja í Scala á Ítalíu,
við ætluðum líka til Vínar en ég held
við getum alveg gleymt því á þessu ári
– eins og ég er nú mikið fyrir frestanir!
Ég dreg nefnilega aldrei það sem ég ætla
að gera, hvorki fyrir sjálfan mig né aðra.
Það er bara ekki minn stíll. Raggi, vinur
minn, Bjarna kom hingað 2011, blessuð
sé minning hans. Þá héldum við tónleika
á lóðinni hjá mér og ætli það hafi ekki
verið um sex hundruð manns? – í sól-
skini og blankalogni. Þegar Bjarnason
fór sagði hann: „Jón minn, hvernig fórstu
að þessu?“
Saknar gamalla vina
Bíldudalur hefur verið heimabær Jóns
frá upphafi en hann segir fæðingarstað
sinn löngu horfinn. „Hann var brenndur
því á tímabili mátti ekkert gamalt vera
hér,“ útskýrir hann og virðist pínu sár.
„Veistu, ég væri alveg sáttur við að vera
farinn héðan. Ég á enga ættingja hér
– og svo sem enga strollu af þeim yfir-
leitt, ég er fyrst og síðast einstæðingur.
En ég er frjáls eins og fuglinn og þokka-
lega heilsuhraustur nema hvað ég er
slæmur núna af einhverju sem ég held
að sé gikt. Þarf að druslast til læknis á
Patreksfjörð því hingað á Bíldudal og
Tálknafjörð koma engir læknar í tvo
mánuði. Það er nýjasta nýtt. Mér finnst
svívirðing að bjóða fullorðnu fólki upp
á svona þjónustu.“
En hvar langar Jón helst að eiga heima
annars staðar?
„Ég held það yrði langheppilegast að
vera í Reykjavík þennan síðasta spöl en
ég verð flottastur þegar ég verð kominn
í kerið í Fossvogi. Þá mun haninn gala
í þriðja sinn, eins og stendur í ritning-
unni.“
Eigum við að hafa þetta lokaorð? spyr
ég. „Já, eins og Raggi, vinur minn hefði
sagt: „Er þetta ekki næs?“ Mikið rosalega
sakna ég þeirrar elsku. Við vorum miklir
mátar. Við Haukur Morthens vorum líka
miklir vinir og ég ætla ekki að skilja
hann Svavar Gests út undan, því honum
á ég margt að þakka. Hann bjargaði
klassískum upptökum þar sem ég söng
við undirleik Ólafs Vignis og hann gaf
okkur Facon-mönnum á Bíldudal kost
á að gera fjögurra laga plötu þegar við
vorum að hætta, vorið 1969. Þetta eru
hlutir sem ég gleymi ekki.“
Ekki bara á Bíldudal
Jón söng í kirkjukór Bíldudals frá fimm-
tán ára aldri en lagið sem oftast hefur
heyrst á öldum ljósvakans er Ég er frjáls.
Að baki eru átta plötur, sú nýjasta frá
2018, sú heitir Jón Kr. Ólafsson í sextíu
ár. Hann söng Tondeleyó, eftir vin sinn
Sigfús Halldórsson, inn á myndina Börn
náttúrunnar sem búin er að fara um allan
heim, hélt tvenna tónleika í Jónshúsi í
Kaupmannahöfn, við húsfylli, og söng
fyrir íslensku sendiherrahjónin í Ósló.
„Það hefur ekki bara heyrst í mér á
Bíldudal,“ segir Jón þegar skautað er
yfir ferilinn. „Það er eiginlega merkilegt
hvað hefur verið vandað til mín í upp-
hafi af karli föður mínum, úr Flatey á
Breiðafirði og móður minni blessuninni,
héðan úr Arnarfirði. Oft er búið að berja
á manni eins og hörðu roði en engum
tekist að ganga endanlega frá mér enn.
Ég verð samt langf lottastur þegar ég
verð kominn í krúsina.“
gun@frettabladidi.is
Er frjáls eins og fuglinn
Söngvarinn og safnstjórinn Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal verður áttræður á morgun.
Honum skaut fyrst upp á stjörnuhimininn á sjöunda áratugnum með sveitinni Facon.
“Bíldudalur er í raun of lítill fyrir svona safn,” segir Jón. MYND/SÓLVEIG M. JÓNSDÓTTIR
Ástkæri faðir, tengdafaðir,
afi og ástvinur,
Kristján Jakob Valdimarsson
Breiðuvík 9, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans að
morgni 18. ágúst. Útförin fer fram frá
Lindakirkju mánudaginn 31. ágúst kl. 13.00.
Í ljósi aðstæðna er athöfnin aðeins fyrir nánustu
aðstandendur og boðsgesti. Athöfninni verður streymt
frá facebook-hópnum „Útför Kristjáns Valdimarssonar“
(https:// www.facebook.com/groups/3210436175688141/).
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið,
blóm og kransar afþakkaðir.
Hrafn Kristjánsson Maríanna Hansen
Mikael Máni Hrafnsson
Kristján Breki Hrafnsson
Alexander Jan Hrafnsson
Árný Eir Kristjánsdóttir
Ásta María Björnsdóttir
Merkisatburðir
1905 Lagning ritsíma til Íslands og símalína frá Austfjörð-
um til Akureyrar og Reykjavíkur er samþykkt á Alþingi.
1932 Vígð er 170 metra löng brú yfir Þverá í Rangárvalla-
sýslu að viðstöddu fjölmenni.
1942 Sjö manna áhöfn vélbátsins Skaftfellings bjargar
52 Þjóðverjum af sökkvandi kafbáti undan Bretlands-
ströndum.
1958 Friðrik Ólafsson verður stórmeistari í skák, 24 ára.
1973 Ásgeir Sigurvinsson, átján ára knattspyrnumaður
úr Vestmannaeyjum, hefur atvinnumannsferil sinn með
belgíska liðinu Standard Liege.
1991 Lettland lýsir yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
2 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT