Fréttablaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 14
E N S K I B O LTI N N Ensk a k nat t-
spy rnusambandið hefur kært
Leeds United fyrir háttsemi leik-
manna liðsins í kjölfar sigurleiks
gegn Derby County á lokaspretti
ensku B-deildarinnar fyrr í sumar.
Leeds United hafði tryggt sér sigur-
inn í deildinni og sæti í efstu deild
í fyrsta skipti síðan liðið féll úr
úrvalsdeildinni vorið 2004 áður
en liðið sótti Derby County heim á
Pride Park um miðjan júlí.
Eftir 3-1 sigur Leeds United
fögnuðu leikmenn og forráðamenn
liðsins vel og innilega. Hömluleysið
var of mikið að mati enska knatt-
spyrnusambandsins en líklegt er
að það að leikmenn voru með blys í
fagnaðarlátunun hafi orðið til þess
að sambandinu þótti rétt að leggja
málið fyrir aganefnd. Talsmaður
enska knattspyrnusambandsins
segir félagið vera borið þeim
sökum að hafa ekki hagað sér með
sómasamlegum hætti eftir leikinn.
Erjur voru á milli félaganna
á þar síðasta tímabili þegar upp
komst að Marcelo Bielsa hefði
njósnað um æfingar Frank Lamp-
ard hjá Derby County í aðdraganda
leiks liðanna á leiktíðinni. Victor
Orta, stjórnar formaður Leeds
United, mætti á leikinn með kíki
og virtist þar vera að vísa í þá deilu
félaganna.
Leeds United hefur fengið frest
til 3. september til andmæla en eftir
þann tíma verður málið tekið fyrir
hjá aganefndinni. Leikjaskipulagið
fyrir ensku úrvalsdeildina fyrir
komandi keppnistímabil var opin-
berað í gær en Leeds United mætir
Liverpool sem er ríkjandi meistari
í fyrstu umferðinni. – hó
Leeds United kært vegna óspekta leikmanna
Leikmenn Leeds United slepptu sér í fagnaðarlátunum. MYND/GETTY
FÓTBOLTI Brasilíska sóknarmann-
inum Neym ar, sem leikur með
franska liðinu PSG, verður ekki
refsað af evrópska knattspyrnu-
sambandinu, UEFA, fyrir háttsemi
sína að loknum sigri liðsins gegn
þýska liðinu RB Leipzig í undan-
úrslitum Meistaradeildar Evrópu í
Lissabon í vikunni.
Eftir leikinn skiptist Neymar á
treyj um við Marcel Hal sten berg,
leik mann RB Leipzig, en UEFA hafði
biðlað til leikmanna að láta af þeim
vana.
Erlendir fjölmiðlar gera því í
skóna að Neymar gæti annaðhvort
verið úrskurðaður í eins leiks bann
eða settur í sóttkví af UEFA, sem
yrði til þess að hann myndi missa
af úrslitaleik keppninnar.
PSG mætir þar Bayern München
en franska liðið hefur aldrei unnið
keppnina, á meðan þýska stórveldið
hefur fagnað sigri fimm sinnum í
Evrópukeppni meistaraliða og síðar
Meistaradeild Evrópu. – hó
Neymar sleppur
með skrekkinn
Neymar eftir leikinn gegn Leipzig.
FÓTBOLTI Enska landsliðskonan í
knattspyrnu, Lucy Bronze, stað-
festi í samtali við BBC að hún muni
yfirgefa herbúðir franska stórliðs-
ins Lyon þegar samningur hennar
við félagið rennur út í lok þessa
mánuðar.
Bronze, sem er 28 ára gömul,
hefur verið orðuð við endurkomu til
fyrra félags síns Manchester City, en
hún gekk til liðs við Lyon frá enska
liðinu árið 2017.
Síðan þá hefur hún unnið átta
titla á þeim þremur keppnistíma-
bilum sem hún hefur leikið með
franska stórliðinu.
„Það er svo sem eðlilegt að fólk
geri ráð fyrir því að ég endurnýi
kynnin við Manchester City þar
sem ég á hús í Manchester og hef
leikið með liðinu. Það eina sem er
klárt hins vegar er að ég er að fara
frá Lyon, annað kemur bara í ljós,“
segir Bronze í samtali við BBC.
Bronze verður þar með enn í leik-
mannahópi Lyon þegar liðið mætir
Bayern München í átta liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu á morgun.
Hún verður hins vegar búin að
yfirgefa herbúðir Lyon þegar liðið
mætir Paris FC í fyrstu umferð
frönsku efstu deildarinnar 6. sept-
ember næstkomandi. – hó
Sara Björk að
missa liðsfélaga
Lucy Bronze er að fara frá Lyon.
FÓTBOLTI Gengi kvennaliðs Breiða-
bliks í knattspyrnu í sumar hefur
verið nánast lygilega gott. Eftir að
hafa leikið níu leiki á mótinu er liðið
með fullt hús stiga á toppi deildar-
innar. Blikar hafa skorað 42 mörk í
þessum og haldið marki sínu hreinu
á fyrri hluta tímabilsins.
Þar með hefur liðið slegið met KR
liðsins frá árinu 1997 í fjölda leikja
án þess að fá sig mark. Sóknar-
þríeykið Berglind Björg Þorvalds-
dóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir og
Agla María Albertsdóttir hafa verið
iðnastar við kolann í markaskorun
liðsins en Berglind Björg hefur
skorað 12 mörk, Sveindís Jane átta
og Agla María sjö.
Þorsteinn H. Halldórsson skoraði
á aðra leikmenn liðsins að gera sig
gildandi fyrir framan markið í sam-
tali við fjölmiðla eftir einn sigur-
leikinn fyrr í sumar. Áslaug Munda
Gunnlaugsdóttir, vinstri bakvörður
Blika, varð við þeirri áskorun Þor-
steins þegar hún skoraði tvö marka
liðsins í 7-0 sigri gegn Þór/KA í
vikunni.
Fyrra markið hennar var einkar
glæsilegt en eftir laglega sókn Blika
prjónaði Áslaug Munda sig í gegnum
þrjá varnarmenn norðanliðsins og
skaut boltanum upp í samskeytin.
Húsvíkingurinn skoraði svo seinna
markið beint úr hornspyrnu.
„Ég svo sem tók það ekkert sér-
staklega til mín það sem Steini sagði
og fyrir mér skiptir engu máli hver
skorar á meðan við erum að skora
mikið og vinna. Ef ég á að vera
hreinskilin þá kom það mér á óvart
að setja tvö í þessum leik. Það var
hins vegar gaman að rifja upp gamla
takta í sóknarleiknum,“ segir Áslaug
Munda í samtali við Fréttablaðið.
„Ég spilaði bæði á kantinum
og inni á miðjunni með Völsungi
þannig að ég var vön að vera
framar á vellinum áður en ég kom
til Blika. Það vantaði svo bakvörð
í einhverjum leik og Steini ákvað
að prufa mig þar. Það gekk bara vel
og ég er að fíla þessa stöðu. Ég fæ að
taka mikinn þátt í sóknarleiknum
í þeim leikstíl sem við spilum. Ég
er hins vegar alveg klár í að spila
framar ef það hentar liðinu,“ segir
hún um ástæðu þess að hún var
færð aftar á völlinn.
„Mér finnst liðið okkar vera sterk-
ara en í fyrra, bæði þéttara og betur
drillaðra varnarlega og með f leiri
vopn í sóknarleiknum með tilkomu
Sveindísar sem hefur mikinn hraða
og Rakelar [Hönnudóttur] sem
kemur með mikil gæði inn í liðið.
Við vorum að sjálfsögðu ekki með
það sem markmið að halda hreinu
í svona mörgum leikjum en það er
bara skemmtilegur bónus,“ segir
Áslaug um gengi liðsins það sem af
er sumars.
Síðasta haust fékk Áslaug Munda
smjörþefinn af atvinnumennsku
þegar henni var boðið að æfa með
franska stórliðinu PSG. Hún segir
það klárlega stefnuna að leika
erlendis á einhverjum tímapunkti
á ferlinum.
„Það er klárlega á stefnuskránni
hjá mér að spila sem atvinnumaður
og geta einbeitt mér að fullu að
fótboltanum í einhvern tíma. Nú
er ég hins vegar mjög ánægð hjá
Breiðabliki og umgjörðin þar og allt
í kringum félagið er í toppmálum.
Það þarf að velja vel til þess að finna
erlent lið sem hentar mér vel og
nær að trompa Blika hvað þjálfun,
aðstöðu og utanumhald varðar.
Mig langar núna að halda áfram
að spila vel með Breiðabliki og festa
mig í sessi hjá landsliðinu. Það eru
forréttindi að fá að æfa með og læra
af þeim reynslumiklu og frábæru
leikmönnum sem þar eru,“ segir
þessi metnaðarfulla knattspyrnu-
kona sem lék sína fyrstu A-lands-
leiki fyrir um það bil ári.
Auk þess að vera í landsliðs-
klassa og á hraðri uppleið í knatt-
spyrnunni er Áslaug Munda góður
námsmaður. Fékk hún sérstaka
v iðu rkenning u f y r ir f ramú r-
skarandi árangur í námi og knatt-
spyrnu þegar hún útskrifaðist frá
afrekssviði Menntaskólans í Kópa-
vogi í lok júní. Hún útskrifaðist með
meðaleinkunnina 9,27 þaðan.
Í haust ætlar Áslaug Munda að
hefja nám í lífeindafræði í Háskóla
Íslands en hún segir það ekki fýsi-
legan kost að hefja nám erlendis
í þeim aðstæðum sem eru í heim-
inum þessa stundina vegna kóróna-
veirufaraldursins.
hjorvaro@frettabladid.is
Það er klárlega á
stefnuskránni hjá
mér að spila sem atvinnu
maður og geta einbeitt mér
að fótboltanum í einhvern
tíma.
2 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Minnti á sig í sóknarleik með
tveimur glæsilegum mörkum
Bakvörðurinn sókndjarfi Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir skoraði tvö marka Breiðabliks þegar liðið
lagði Þór/KA að velli, 7-0, í níundu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu kvenna fyrr í þessari viku.
Munda var vön að spila framar með uppeldisfélagi sínu, Völsungi, og rifjaði því þarna upp gamla takta.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir hefur leikið vel í vinstri bakverðinum hjá Breiðabliki í sumar. MYND/HELGI VIÐAR
SPORT