Fréttablaðið - 21.08.2020, Qupperneq 19
Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar, er sannfærð um að líkamsrækt sé liður í lausninni á COVID-19 faraldrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Við nýttum tímann vel á COVID-lokunartíma-bilinu í vor, gerðum ýmsar
breytingar og endurnýjuðum öll
líkamsræktartækin í tækjasal. Við
tókum inn nýjustu línuna af Life
Fitness-tækjum auk þess sem við
tókum inn ýmsar skemmtilegar
nýjungar í Escape-lyftingagræjum.
Þá gjörbreyttum við gólfskipu-
laginu í tækjasalnum með áherslu
á meira rými fyrir fjölþjálfun (e.
functional training) auk þess sem
við stækkuðum salinn og endur-
nýjuðum gólfefni á efri hæðinni.
Það er einfaldlega allt nýtt í tækja-
salnum hjá okkur og hann er í
algjöru toppformi. Það er ótrúlega
spennandi að fara inn í haustið
með allt nýtt og endurbætt,“ segir
Ágústa Johnson, framkvæmda-
stjóri Hreyfingar.
Ekki gleyma að slaka á
Hreyfing fékk Rut Kára til þess að
hanna nýtt og glæsilegt teygju- og
slökunarrými. „Í endurbótunum
stækkuðum við aðstöðuna með því
að finna illa nýtt rými og betrum-
bæta. Einu af þessum rýmum var
breytt í einstaklega huggulega og
notalega aðstöðu til að slaka á og
teygja eftir æfingar. Sérstaklega er
þá hugað að lýsingu og stemningu
til þess að bæta líðan viðskiptavina
okkar. Okkur finnst þetta einstak-
lega vel heppnuð breyting og gerir
aðstöðuna bara enn betri.
Við leggjum gífurlegan metnað í
að hafa stöðina ávallt í framúrskar-
andi ástandi og því er stöðugt við-
hald, endurnýjun og endurbætur
hluti af okkar rekstrarverkefnum.
Endurbæturnar sem gerðar voru
síðastliðið vor voru þær stærstu frá
því við fluttum í Glæsibæ og fólk
mun sjá mikinn mun á stöðinni frá
því fyrir COVID.“
Hluti af lausninni
Ágústa er sannfærð um að líkams-
rækt sé hluti af lausninni þegar
kemur að því að sigrast á COVID-
19. Heilbrigð sál í hraustum
líkama er betur í stakk búin til
þess að standast veirusýkingar og
rannsóknir hafa sýnt fram á að
regluleg hreyfing bæti ónæmis-
kerfið.
„Það er svo ótal margt sem á sér
stað þegar við hreyfum okkur.
Reglubundin heilsurækt styrkir
alhliða heilsu og byggir upp
mótstöðu líkamans gegn ýmsum
sýkingum og sjúkdómum, þá ekki
síst lífsstílssjúkdómum. Það hefur
komið margoft fram í umræðunni
að þeir sem virðast veikastir fyrir
kórónaveirunni eru þeir sem eru
með undirliggjandi sjúkdóma og
þá helst lífsstílssjúkdóma eins og
sykursýki 2 og háþrýsting. Einnig
getur offita verið áhættuþáttur
í ákveðnum tilfellum. Regluleg
hreyfing ætti að vera jafnsjálfsögð
og að sofa, bursta tennur og að
læra að lesa og skrifa. Okkur líður
mun betur andlega og líkamlega
eftir hæfilega áreynslu og góða
hreyfingu. Líkaminn þarf á þessu
að halda til að starfa sem best, og
aldrei hefur þörfin verið meiri en
núna í heimsfaraldri.“
Hreyfing með þér heim
Hreyfing býður upp á fjölbreyttar
lausnir fyrir þá sem af einhverjum
ástæðum geta ekki mætt á staðinn,
en vilja þó halda áfram að hreyfa
sig reglulega. Þetta getur verið
fólk í áhættuhóp, fólk í sóttkví,
einangrun eða annað. „Allir með-
limir Hreyfingar fá frían aðgang
að fjölda æfingakerfa sem hægt er
að stunda heima eða hvar sem er.
Einnig bjóðum við upp á öflugt
einstaklingsmiðað fjarþjálfunar-
æfingakerfi.“
Aldrei eins mikilvægt
„Að mínu mati hefur aldrei verið
eins mikilvægt að stunda heilbrigt
líferni og hlúa að sjálfum sér, hvort
heldur er að andlegu hliðinni eða
líkamsræktinni. Við þurfum að
sinna forvörnum og vera í góðu
líkamsástandi til að vera í stakk
búin til að takast á við það sem
lífið býður okkur upp á. Þetta
tengist allt. Ef við æfum reglulega
þá líður okkur betur, erum í betra
jafnvægi og eigum auðveldara með
að tækla hvers kyns erfiðleika og
torfærur sem við stöndum frammi
fyrir í lífinu.“
Ágústa segist vilja hvetja sem
flesta til þess að kíkja í Hreyfingu,
líta á aðstöðuna og fá upplýsingar
um alla þá þjónustu sem er þar í
boði. Hreyfing býður upp á sérlega
fjölbreytt úrval af námskeiðum
fyrir konur og karla sem hefjast á
næstunni. „Námskeiðin eru frábær
leið til að koma sér í gang eftir
frí. Þá erum við með hjá okkur
fjöldann allan af frábæru fagfólki
sem getur aðstoðað viðskipta-
vini okkar og veitt þeim ráðgjöf.
Hreyfing hefur lengi haft orð á sér
fyrir gott hreinlæti og nú á tímum
COVID leggjum við enn meiri
áherslu á þrif og sótthreinsun.“
Málin tekin fastari tökum
með Boditrax-mælingum
Þá má benda á að Hreyfing býður
upp á líkamsástandsmælingu,
einu sinnar tegundar á Íslandi sem
gefur afar nákvæmar niðurstöður
um líkamsástand. „Boditrax
líkamsástandsmælingartækið
mælir vöðvamassa, fituhlutfall og
dreifingu á henni, hlutfall kviðfitu
sem er sú fita hefur hvað skæðust
áhrif á lífsstílssjúkdóma, æskilega
kjörþyngd, grunnbrennslu, aldur
þinn miðað við líkamsástand,
beinmassa og margt f leira áhuga-
vert. Niðurstöðurnar eru afar
nákvæmar og hægt er að skoða
allt á myndrænan og skýran hátt
á lokuðu svæði inni á vefsíðu
Boditrax. Þar geturðu borið saman
árangur þinn á milli mælinga og
rýnt í meðaltöl og fleira til að sjá
nákvæmlega hvar þú stendur.
Mælingin tekur aðeins þrjátíu
sekúndur.
Í raun ættu allir Íslendingar að
koma reglulega í slíka mælingu
og taka stöðumat á eigin líkams-
ástandi. Auðvitað skiptir heilsan
okkur öllu máli en satt að segja
þá erum við gjarnari á að kíkja
á stöðuna á bifreiðinni okkar
heldur en okkur sjálfum. Það
segir sig sjálft að upplýsingar um
heilsufar okkar er lykillinn að
því að stuðla að góðri heilsu og er
ekki síður hvatning til þess. Upp-
lýsingar gefa okkur betra vald á
stöðunni og tækifæri til að breyta
og bæta.“
Líkamsræktarstöð Hreyfingar er
staðsett í Glæsibæ, Álfheimum
74, 104 Reykjavík. Upplýsingar
á hreyfing.is. Sími: 414-4000
Netfang: hreyfing@hreyfing.is
Hreyfing með puttann á púlsinum
Töluverðar framkvæmdir hafa staðið yfir í heilsurækt Hreyfingar frá því í vor. Gerðar voru miklar
endurbætur á rýmum, glæný líkamsræktartæki keypt og nýtt teygju- og slökunarrými útbúið.
Tækjasalurinn hjá Hreyfingu er nú útbúinn glænýjum líkamsræktartækjum. Teygju- og slökunarrýmið var hannað af Rut Kára og heppnaðist frábærlega.
KYNNINGARBLAÐ 3 F Ö S T U DAG U R 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 HEILSURÆKT