Fréttablaðið - 21.08.2020, Qupperneq 25
Ég er grænmetis
æta og vil passa vel
upp á vítamínin og stein
efnin í líkamanum. Ég
tek samt hvíldir inn á
milli.
Bætiefnin frá Gula miðanum ættu að vera flestum lands-mönnum kunn. Vítamín- og
bætiefnalína Gula miðans inni-
heldur breiða línu bætiefna fyrir
almenna vellíðan. Þau eru þróuð
og valin sérstaklega með þarfir
Íslendinga að leiðarljósi og sam-
kvæmt evrópskum stöðlum um
magn innihaldsefna og hámark
leyfilegra dagskammta. Guli mið-
inn býður upp á flestar vinsælustu
tegundirnar af vítamínum og
almennum bætiefnablöndum sem
fólk þarf á að halda á lífsleiðinni.
Lína Birgitta Sigurðardóttir er
lærður einkaþjálfari, förðunar-
fræðingur og stílisti. Hún starfar á
samfélagsmiðlum og hannar auk
þess æfingaföt fyrir fyrirtæki sitt
Define the Line Sport. Hún hefur
tekið inn bætiefni frá Gula mið-
anum í mörg ár og mælir hiklaust
með þeim.
„Ég er með járnskort og þarf að
taka inn járntöflur. Ég tók áður
inn aðra tegund en var alltaf illt í
maganum. Ég tengdi það ekki við
töflurnar fyrr en ég hætti að taka
þær inn og lagaðist. Ég fór svo að
taka inn járntöflurnar frá Gula
miðanum og leið miklu betur,“
útskýrir Lína.
„Það er algengt að fólk fái í
magann af járntöflum, þær eru
mismunandi samsettar og mis-
sterkar. Ég mæli 100% með járn-
Ólst upp við vítamínin og
bætiefnin frá Gula miðanum
Guli miðinn er breið lína bætiefna sem hefur verið pökkuð og seld á Íslandi í yfir 25 ár og er því
flestum landsmönnum kunn. Línan er þróuð með þarfir Íslendinga að leiðarljósi. Áhrifavaldurinn
Lína Birgitta Sigurðardóttir hefur lengi tekið inn vítamín frá Gula miðanum með góðum árangri.
Lína Birgitta
Sigurðardóttir
passar vel upp
á að líkaminn
fái þau bætiefni
sem hann þarf.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
töflunum frá Gula miðanum. Ég
hef aldrei fengið magaverk af þeim.
Það er líka C-vítamín í þeim sem
gerir það að verkum að járnupp-
takan verður enn betri.“
Finnur fljótt mun ef
vítamínin gleymast
Lína segir að hún verði að taka inn
járn, sink, B- og D-vítamín. „Ég er
grænmetisæta og vil passa vel upp
á vítamínin og steinefnin í líkam-
anum. Ég tek samt hvíldir inn á
milli, bæði með járnið og sinkið.“
Hún finnur fljótt mun á sér ef
hún gleymir að taka vítamínin.
„Þegar ég hef tekið pásu í smá tíma
þá finn ég að líkaminn kallar á
vítamín. Ef ég gleymi til dæmis
að taka járn þá finn ég þessi
algengu einkenni járnskorts eins
og orkuleysi og svima. En ég mæli
samt ekki með að fólk taki inn
járntöflur nema að láta athuga það
með blóðprufu hvort líkamann
vanti járn. Ofhleðsla á járni er ekki
góð og hefur svipuð einkenni og
járnskortur.“
Vegna magasjúkdóms passar
Lína líka vel upp á að taka alltaf
inn B-vítamín. „Ég tek líka inn
B-vítamín fyrir hárið og neglurnar
og D-vítamín yfir veturinn af
því að þá fáum við svo litla sól.
D-vítamín er nauðsynlegt fyrir
beinin, ónæmiskerfið og heilann
sem dæmi. Það er oft talað um að
D-vítamín hjálpi þeim sem eiga
það til að finna fyrir skammdegis-
þunglyndi,“ útskýrir Lína.
„Ég kaupi alltaf vítamín frá Gula
miðanum af því ég þekki þau.
Mamma notaði þau alltaf og þau
voru alltaf til heima þegar ég var
yngri. Þau hafa reynst mér vel.“
Mjög háir gæðastaðlar
Vítamín í Gula miðanum eru
þróuð og framleidd í samstarfi við
hágæða framleiðendur í Banda-
ríkjunum og Bretlandi sem Heilsa
hefur starfað með í rúma þrjá
áratugi. Um er að ræða framleið-
endur með mjög háa gæðastaðla og
sem starfa samkvæmt ströngustu
öryggis- og gæðakröfum.
Framleiðendur eru með GMP-
gæðavottunarkerfi og hafa á að
skipa fullkomnum rannsóknar-
stofum til að þróa og prófa hráefni.
Rannsóknir á virkni og hreinleika
efnanna fara bæði fram á þeirra
eigin rannsóknarstofum auk þess
sem óháðir aðilar eru fengnir til
að staðfesta virkni og hreinleika
efnanna.
Allar umbúðir Gula miðans eru
endurvinnanlegar. Vörunum er
pakkað í dökk glerglös til að varð-
veita gæði innihaldsefna sem best
og verja þau gegn birtu og sólar-
ljósi sem og mengun frá plastum-
búðum.
9 F Ö S T U DAG U R 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 HEILSA