Morgunblaðið - 11.01.2020, Síða 48
EM 2020
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Afar óvænt úrslit áttu sér stað á
Evrópumeistaramótinu í hand-
knattleik sem fram fer í Austurríki,
Noregi og Svíþjóð þegar Portúgal
gerði sér lítið fyrir og vann þriggja
marka sigur gegn Frakklandi í D-
riðli keppninnar í Þrándheimi í
gær. Leiknum lauk með 28:25-sigri
Portúgals, sem leiddi með einu
marki í hálfleik, 12:11.
Frakkar hafa þrívegis fagnað
sigri á EM, árin 2006, 2010 og 2014.
Þá hefur Frakkland sex sinnum
orðið heimsmeistari, 1995, 2001,
2009, 2011, 2015 og 2017. Frakkar
hafa tvívegis fagnað sigri á
Ólympíuleikunum, 2008 og 2012 en
Portúgal er hins vegar með á stór-
móti í fyrsta sinn síðan árið 2006.
Besti árangur Portúgala á Evrópu-
meistaramóti er 7. sætið á EM 2000
þegar mótið var haldið í Króatíu.
Markaskorun dreifðist vel hjá
Portúgölum í leiknum en Diogo
Branquinho skoraði fimm mörk úr
fimm skotum og þeir Miguel
Ferraz og Andre Gomes fjögur
mörk hvor. Þá varði Alfredo Quint-
ana níu skot í markinu og var með
31% markvörslu. Mem Dika var
markahæstur Frakkanna með
fimm mörk en markmenn franska
liðsins náðu sér ekki á strik og
vörðu aðeins sjö af skotum Portú-
gala.
Þá fara Noregur og Svíþjóð bæði
vel af stað á heimavelli, en Svíar,
undir stjórn Kristjáns Andrés-
sonar, unnu stórsigur gegn Sviss í
Gautaborg, 34:21, í F-riðli. Sigur
Svía var aldrei í hættu, en sænska
liðið leiddi með sjö mörkum í hálf-
leik, 20:13.
Þrír leikmenn Svía skoruðu sex
mörk, þeir Jerry Tollbrings, Andr-
eas Nilsson og Kim Ekdahl og þá
átti Andreas Palicka stórleik í
marki Svía með 18 skot varin og
47% markvörslu. Andre Schmid var
markahæstur í liði Sviss með fjögur
mörk.
Svíar hafa fjórum sinnum fagnað
sigri á EM í handknattleik en liðið
vann síðast til gullverðlauna á
mótinu árið 2002. Sænska liðið
vann síðast til verðlauna á stórmóti
árið 2012 á Ólympíuleikunum í
London en þar tapaði liðið í úrslita-
leik gegn Frakklandi.
Sander Sagosen fór á kostum
fyrir Noreg þegar liðið vann sex
marka sigur gegn Bosníu í D-riðli,
32:26. Sagosen skoraði tólf mörk úr
fjórtán skotum en Norðmenn
leiddu með fimm mörkum í hálf-
leik, 17:12, og þeir slökuðu aðeins á
bensíngjöfinni í síðari hálfleik.
Petter Øverby skoraði fimm
mörk fyrir Norðmenn og Kristian
Sæverås var með 38% markvörslu í
markinu. Nikola Prce var marka-
hæstur í liði Bosníu með sjö mörk.
Norðmenn hafa aldrei unnið til
verðlauna á EM en tvívegis hafa
þeir fengið silfur á HM, 2017 og
2019. Biðin eftir gullverðlaunum er
því orðin ansi löng í Noregi en
Norðmenn vonast til þess að liðið
geti gert alvöru atlögu að Evrópu-
meistaratitlinum á heimavelli í ár.
AFP
Fagnaðarlæti Portúgalar fögnuðu vel og innilega í leikslok í Þrándheimi
eftir afar óvæntan þriggja marka sigur gegn Frakklandi í D-riðli EM.
Ein óvæntustu
úrslit í áraraðir
Öruggt hjá Noregi og Svíþjóð í fyrsta leik
48 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2020
England
Sheffield United – West Ham ................. 1:0
Staða efstu liða:
Liverpool 20 19 1 0 49:14 58
Leicester 21 14 3 4 46:19 45
Manch.City 21 14 2 5 56:24 44
Chelsea 21 11 3 7 36:29 36
Sheffield Utd 22 8 8 6 24:21 32
Manch.Utd 21 8 7 6 32:25 31
Tottenham 21 8 6 7 36:30 30
Wolves 21 7 9 5 30:27 30
Crystal Palace 21 7 7 7 19:23 28
Arsenal 21 6 9 6 28:30 27
Holland
B-deild:
Dordrecht – Excelsior ............................ 1:1
Elías Már Ómarsson kom inn á sem
varamaður á 64. mínútu hjá Excelsior.
Frakkland
B-deild:
Ajaccio – Grenoble .................................. 3:1
Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður á 77. mínútu hjá Grenoble.
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Stykkishólmur: Snæfell – Keflavík....... L17
1. deild kvenna:
Mustad-höll: Grindavík b – Hamar....... L16
Blue-höllin: Keflavík b – Tindastóll ...... L16
Njarðtaksgryfjan: Njarðvík – ÍR.......... S16
1. deild karla:
Stykkishólmur: Snæfell – Höttur..... S14.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Vestmannaeyjar: ÍBV U – ÍR................ S14
TM-höllin: Stjarnan U – Grótta............. S16
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Egilshöll: Valur – Fram .................... L15.15
Egilshöll: Víkingur R. – Leiknir R... L17.15
Reykjavíkurmót kvenna:
Egilshöll: KR – Víkingur R. .............. S15.15
Egilshöll: Fylkir – Valur ................... S17.15
Egilshöll: Þróttur R. – Fjölnir .......... S19.15
Fótbolti.net-mót karla:
Kórinn: HK – Breiðablik................... L11.15
Skessan: FH – ÍBV............................ L11.45
Akraneshöll: ÍA – Stjarnan .............. L11.30
Vivaldi-völlur: Grótta – Grindavík ........ L12
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin:
Akureyri: SA – Reykjavík ..................... L19
Akureyri: SA – Reykjavík ................. S10.30
Enski boltinn á Síminn Sport
Crystal Palace – Arsenal .................. L12.30
Manch.Utd – Norwich...............(mbl.is) L15
Tottenham – Liverpool ..................... L17.30
Bournemouth – Watford ........................ S14
Aston Villa – Manchester City.......... S16.30
UM HELGINA!
Dominos-deild karla
Fjölnir – Þór Ak.................................... 93:94
Tindastóll – Njarðvík ........................... 91:80
Staðan:
Stjarnan 13 11 2 1215:1075 22
Keflavík 13 10 3 1155:1057 20
Tindastóll 13 9 4 1152:1086 18
Njarðvík 13 8 5 1094:978 16
KR 12 7 5 995:990 14
Haukar 13 7 6 1156:1124 14
ÍR 13 6 7 1054:1128 12
Þór Þ. 13 6 7 1044:1063 12
Grindavik 13 5 8 1107:1151 10
Valur 13 4 9 1044:1119 8
Þór Ak. 12 3 9 987:1131 6
Fjölnir 13 1 12 1113:1214 2
1. deild karla
Snæfell – Sindri ............................... Frestað
Selfoss – Hamar............................... Frestað
Staðan:
Breiðablik 13 11 2 1314:1086 22
Höttur 12 11 1 1040:928 22
Hamar 13 11 2 1287:1159 22
Vestri 11 6 5 957:881 12
Álftanes 13 5 8 1078:1131 10
Selfoss 11 4 7 845:879 8
Snæfell 12 2 10 949:1150 4
Skallagrimur 11 2 9 921:1066 4
Sindri 10 1 9 808:919 2
Svíþjóð
Wetterbygden Stars – Borås ........... 92:100
Elvar Már Friðriksson skoraði 19 stig
fyrir Borås, tók fjögur fráköst og gaf níu
stoðsendingar.
Efstu lið: Borås 18/4, Köping Stars 17/4,
Luleå 17/5, Södertälje 13/8, Wetterbygden
Stars 11/10, Norrköping 8/13.
NBA-deildin
Philadelphia – Boston ........................ 109:98
Detroit – Cleveland ................. (frl.) 112:115
Minnesota – Portland....................... 116:102
Oklahoma City – Houston ................. 113:92
KÖRFUBOLTI
Terrence Motley reyndist hetja
Þórs frá Akureyri þegar liðið vann
afar dramatískan eins stigs sigur
gegn Fjölni í úrvalsdeild karla í
körfuknattleik, Dominos-deildinni, í
Dalhúsum í Grafarvogi í þrettándu
umferð í gær. Leiknum lauk með
94:93-sigri Þórsara en Motley
tryggði Þórsurum sigur með
tveggja stiga körfu þegar tíu sek-
úndur voru til leiksloka.
Leikurinn var kaflaskiptur en
Þórsarar leiddu með tíu stigum
eftir fyrsta leikhluta, 26:16. Fjöln-
ismenn mættu ákveðnir til leiks í
öðrum leikhluta og leiddu með
fimm stigum í hálfleik, 52:47.
Fjölnismenn voru sterkari í þriðja
leikhluta og leiddu með sjö stigum
fyrir fjórða leikhluta en þar reynd-
ust Þórsarar sterkari og þeir fögn-
uðu sigri í leikslok.
Þetta var annar sigur Þórsara í
röð í deildinni, en liðið vann
þriggja stiga sigur gegn Haukum í
síðustu umferð og er komið í ell-
efta sæti deildarinnar í 6 stig.
Vandræði Fjölnis halda hins vegar
áfram, en liðið er í neðsta sætinu
með 2 stig og vann síðast leik 11.
október síðastliðinn, gegn Þór á
Akureyri.
Þá stöðvaði Tindastóll sigurhrinu
Njarðvíkinga með 91:80-sigri á
Sauðárkróki. Frábær fyrri hálf-
leikur reyndist lykillinn að sigri
Tindastóls, en Stólarnir leiddu með
sextán stigum í hálfleik, 47:31.
Njarðvíkingar reyndu að koma til
baka og minnkuðu forskot Tinda-
stóls í fjögur stig fyrir fjórða leik-
hluta en það dugði ekki til.
Fyrir leik gærdagsins höfðu
Njarðvíkingar unnið síðustu sjö
leiki sína í deildinni á meðan gengi
Tindastóls hafði verið óstöðugt. Í
þremur síðustu leikjum sínum, fyr-
ir leik gærdagsins, hafði liðið tapað
tveimur þeirra en Stólarnir eru
hins vegar ekki þekktir fyrir að
tapa mörgum leikjum á heimavelli.
Af sex heimaleikjum sínum á tíma-
bilinu hafa þeir aðeins tapað ein-
um, en það tap kom gegn Keflavík
í fyrstu umferðinni. Tindastóll fer
upp fyrir Njarðvík með sigrinum
og í þriðja sæti deildarinnar í 18
stig. Njarðvík er hins vegar í
fjórða sætinu með 16 stig.
bjarnih@mbl.is
Háspenna í
nýliðaslagnum
Stólarnir stöðvuðu Njarðvíkinga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sigurkarfa Terrence Motley tryggði Þórsurum sigur á lokasekúndunum.
APOEL frá Nikósíu, sigursælasta
knattspyrnufélag Kýpur, greindi
frá því á Twitter í gær að félagið
hefði komist að samkomulagi við
Rostov í Rússlandi um að fá til sín
íslenska framherjann Björn Berg-
mann Sigurðarson. Fram kom að
Björn væri væntanlegur til við-
ræðna við félagið á Kýpur í dag.
Björn hefur aðeins einu sinni verið í
byrjunarliði í 19 leikjum Rostov á
tímabilinu en gert tvö mörk í sjö
leikjum. APOEL er komið í 32 liða
úrslit Evrópudeildar UEFA og er í
þriðja sæti í deildinni á Kýpur.
Björn á leiðinni til
APOEL á Kýpur
Sveinn Jóhannsson mun hvíla þeg-
ar íslenska karlandsliðið í hand-
knattleik mætir Danmörku í Malmö
í dag í fyrsta leik sínum á Evrópu-
meistaramótinu í Austurríki, Nor-
egi og Svíþjóð. Þetta kom fram í
fréttatilkynningu sem HSÍ sendi frá
sér í gærkvöld. Þá kom einnig fram
að allir leikmenn íslenska liðsins
væru heilir heilsu og klárir í
slaginn. Bæði Elvar Örn Jónsson og
Bjarki Már Elísson hafa verið að
glíma við meiðsli en nú er ljóst að
þeir verða báðir til taks í fyrsta
leik.
Sveinn hvílir
gegn Dönum
Bjarni Mark Antonsson, miðjumað-
ur Brage í Svíþjóð, hefur verið kall-
aður inn í A-landsliðshóp Íslands í
knattspyrnu fyrir vináttuleikina
gegn Kanada og El Salvador 15. og
19. janúar. Bjarni, sem er 24 ára
gamall, var í lykilhlutverki hjá
Brage á síðasta ári þegar liðið end-
aði í þriðja sæti sænsku B-deildar-
innar. Hann spilaði alla 22 leiki KA í
úrvalsdeildinni 2018. Bjarni kemur í
staðinn fyrir Jón Dag Þorsteinsson,
leikmann AGF í Danmörku, en hann
þurfti að draga sig út úr hópnum
vegna meiðsla.
Í landsliðið í
fyrsta sinn
Elvar Már Friðriksson heldur áfram
að fara á kostum með Borås í efstu
deild Svíþjóðar í körfuknattleik, en
hann átti enn einn stórleikinn þegar
liðið vann 100:92-útisigur gegn
Wetterbygden Stars í gær. Elvar
var stigahæstur í liði Borås með 19
stig og þá tók hann einnig fjögur frá-
köst og gaf níu stoðsendingar fyrir
sænska liðið á þeim tæpu 28 mín-
útum sem hann lék. Borås hefur nú
tveggja stiga forskot á toppi deildar-
innar með 36 stig. Köping Stars er í
öðru sætinu með 34 stig en liðið á
leik til góða á Borås.
Stigahæstur í
átta stiga sigri