Morgunblaðið - 02.01.2020, Page 2
Þ
að eru fjölmargir staddir í
sömu sporum akkúrat á
þessum tíma ársins.
Margir kannski búnir að
hafa það aðeins of náð-
ugt, borða og drekka aðeins of
mikið og nú tekur grár hversdags-
leikinn við. Það gerir lítið fyrir ásjónu
okkar að hakka í okkur sætindi og
reykt kjöt. Þetta vitum við vel en
það er bara svo freistandi að
gera vel við sig einu sinni á ári.
Það eru náttúrulega ekki alltaf
jól.
Auðvitað er það allt í lagi.
Ef við tökum mikið út úr
gleðibankanum þurfum við
að leggja aftur inn til að ná
jafnvægi. Það sama á við
um matinn. Þegar við
borðum of mikið marga
daga í röð þurfum við að
taka einn mánuð eða
jafnvel tvo í að núllstillast.
Borða minna og hreinna
til að komast í fyrra horf.
Algengt er að fólk
þyngist um fimm kíló um jólin og
þó svo að fólk eigi kannski ekki að
vera með vigtina á heilanum þá er
hún einhverskonar mælikvarði á hvar
við erum stödd. Auðvitað eru vöðvar
þyngri en fita og allt það en vigtin
samt sem áður er eins og klukka.
Hún á ekki að stjórna okkur en það
er ágætt að vita hver staðan er.
En það er ekki bara sælgætisát
sem fer með heilsu okkar. Sérfræð-
ingar hafa miklar áhyggjur af þróun
mataræðis fólks og þá sér í lagi alla
inntökuna á fæðubótarefnum sem lítið
sem ekkert eftirlit er með. Fólki,
sem vill ná árangri í ræktinni, er
talin trú um að það nái ekki að
komast í „form“ nema með hjálp
efna eins og „pre-workouti“, próteindufti og jafnvel sterum.
Í þessu blaði er viðtal við Tómas Þór Ágústsson, sér-
fræðilækni í innkirtlalækningum, sem starfar einnig hjá
Lyfjaeftirliti Íslands. Hann segir að ástandið á Landspít-
alanum sé alvarlegt því þangað leiti margir með brenglaða
hormónastarfsemi eftir að hafa tekið inn mikið af fæðubót-
arefnum. Það að rugla í hormónastarfsemi hefur víðtæk
áhrif á heilsu fólks en eitt af því sem karlmenn geta upp-
lifað er getuleysi.
Lítið eftirlit er með fæðubótarefnum á Íslandi vegna þess
að þau falla á milli flokka. Þau flokkast ekki undir lyfjaeftirlit
og heldur ekki undir matvælaeftirlit. Í mörgum fæðubót-
arefnum eru alls konar efni sem fólk ætti aldrei undir nokkr-
um kringumstæðum að taka inn.
Inntaka á fæðubótarefnum hefur ekki bara áhrif á horm-
ónastarfsemi líkamans heldur geta þessi efni haft áhrif á lifr-
ar- og nýrnastarfsemi. Fólk sem tekur inn fæðubótarefni í
útlitsbætandi tilgangi ætti að kynna sér þetta betur því um
leið og við ruglum í starfsemi lifrar og nýrna sést það gjarn-
an á andliti fólks.
Tómas segir að stóra vandamálið sé að fólk veit ekkert
hvað það er að nota. Hann bendir á að fólk taki inn þessi
efni því þau séu markaðssett af fólki
sem eru fyrirmyndir í samfélaginu.
„Sumar þeirra fyrirmynda hreysti og
heilsu sem eru mest áberandi í ís-
lensku samfélagi í dag eru því miður
hluti vandans. Ekki síst með tilkomu
samfélagsmiðla er ungt fólk stöðugt
baðað í myndum og sögum af fólki,
sem hefði nú þótt ansi undarlegt í út-
liti fyrir nokkrum áratugum,“ segir
Tómas.
Það er auðvitað mjög alvarlegt að
fólk kaupi efni í blindni og taki þau
inn. Enda er lítið vit í því að líta út
eins og Ken hennar Barbie-ar ef þú
nærð honum ekki upp!
Hvað er góð heilsa fyrir þig?
„Það er að vera hraustur og líða vel. Ég held reyndar,
því miður, að alltof margir hugi ekki að heilsunni fyrr en
hún fer að klikka en hún er það dýrmætasta sem við eig-
um.“
Hvernig viðheldur þú heilbrigði í þínu lífi?
„Ég reyni að drekka nóg af vatni og borða ekki alltof
mikið af nammi en ég er reyndar agaleg þegar kemur að
þessum málum og borða alltof mikið af óhollu. Mér finnst
gott að fara í göngutúra og sund, ég er samt mest að vinna
með heita og kalda pottinn og syndi eiginlega aldrei.“
Áttu uppáhaldsæfingar að gera?
„Við íþróttir höfum aldrei átt neina sérstaka samleið en
eftir að ég átti yngri dóttur mína fór ég í Mömmu
fit í Granda 101 og fann í fyrsta skipti æf-
ingar sem mér finnast skemmtilegar.
Ég er að stefna að því að byrja í
venjulegum tímum í crossfit þeg-
ar ég fer aftur að vinna.“
Hvað æfðir þú í æsku?
„Ég æfði aldrei neitt, mér
fannst allar íþróttir leið-
inlegar og var eiginlega alltaf
sykur og súkkulaði í öllum
leikjum sem innihéldu of
mikla hreyfingu. Ég er ekki
með neitt keppnisskap þegar
kemur að íþróttum, ef ég fer út
að hlaupa og er þreytt þá bara
sest ég niður á einhvern bekk og fer
að spjalla við fólk. Ég hljóp hins vegar
10 kílómetra í fyrsta skipti í sumar í
Reykjavíkurmaraþoninu en þá hafði ég aldrei
hlaupið meira en 3 km þannig að það er aldrei að vita nema
þetta komi með hækkandi aldri.“
Hvaða æfingar gerir þú aldrei?
„Þær eru nú ansi margar, þetta ætti eiginlega að vera: hvaða
æfingar gerirðu! Leiðinlegasta æfingin er allavega armbeygj-
ur.“
Hvað er besta heilsuráð sem þú hefur fengið? „Drekka nóg
af vatni! Ég finn mikinn mun á mér ef ég gleymi því. Vatn er
allra meina bót.“
Hvernig ferðu að því að vera í svona góðu formi? „Ég er
reyndar ekkert í sérstaklega í góðu formi en ég stefni sko auð-
vitað á toppform 2020! Við stefnum á að
gifta okkur á árinu og hver veit nema
maður taki sig nú kannski aðeins taki
fyrir það, reyni allavega að mæta í rækt-
ina. Þegar ég mæti í ræktina er ég nefni-
lega yfirleitt meira bara að fá mér kaffi
og spjalla við fólk en minna að gera eitt-
hvað af viti.“
Hvað borðar þú í morgunmat?
„Yfirleitt ekki neitt nema kaffi, stundum
reyndar fæ ég mér eitthvað í bakaríinu ef ég
er í stuði.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Það er enginn einn réttur, ég fæ reglulega æði fyr-
ir einhverju og borða mjög mikið af því í einhvern tíma og
svo fæ ég algjört ógeð og eitthvað nýtt tekur við.“
Hvað dreymir þig um að gerist á nýju ári?
„Bara að allir verði glaðir og góðir hver við annan. Fólk má
endilega röfla minna og hafa aðeins meira gaman af lífinu
svona almennt. Það tekur því ekki að vera alltaf fúll, lífið er svo
stutt.“
Hver er uppáhaldsveitingastaðurinn?
„Ég fæ æði fyrir stöðum og borða þá mikið þar. Ég bý í Vest-
urbænum og er svo heppin að vera með marga góða veit-
ingastaði í göngufjarlægð. Núna eru Chido og Zorbian Hot í
mestu uppáhaldi.“
„Minna röfl og meira
stuð á nýju ári“
Viktoría er
dugleg að
drekka
vatn.
Unsplash
Viktoría er á því
að heilsan skipti
öllu máli í lífinu.
Viktoría kann vel
að meta að vera
með börnunum
og fjölskyldu.
Viktoría Hermannsdóttir fjölmiðlakona er sannkallaður fagurkeri.
Hún segir heilsuna það dýrmætasta sem við eigum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
L
jó
s
m
y
n
d
/T
h
in
k
s
to
c
k
Ljósmynd/Thinkstock
Viktoría
ætlar að
taka á því í
ræktinni á
nýju ári.
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós
Líndal elinros@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók Árni Sæberg
Marta María Jónasdóttir
Þegar Ken
varð getulaus!