Morgunblaðið - 02.01.2020, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8
H
vernig hugsar þú um heils-
una?
„Ég er engin öfgakona í
þessu og ferleg meðaljóna. En
reyni að hreyfa mig vel, borða
nokkuð skynsamlega, sofa almennilega og
tapa mér helst ekki í stressi og streitu.
Þetta gengur alls ekkert alltaf og sjaldnast
allt í einu en þá er það bara allt í lagi líka.“
Stundar þú líkamsrækt?
„Já, ég blanda saman hot yoga, skokki,
fjallgöngum og hjólreiðum. Svo reyni ég að
labba sem allra mest, stend fastar á því en
fótunum að slíkt sé launað.“
Ef svo er hvað æfir þú oft í viku og lengi?
„Allur gangur á því en ég reyni að fara
flesta morgna fyrir vinnu og miða við
klukkustund. Þetta er þó ekkert heilagt og
getur bæði skroppið saman og stækkað eft-
ir aðstæðum.“
Hvernig hugsar þú um mataræðið?
„Ég skipti yfir í plöntumiðað fæði í byrj-
un þessa árs og er alsæl með þá breytingu.
Annars reyni ég bara mitt allra besta við að
hafa þetta nokkuð fjölbreytt, sem er mikil
áskorun þar sem ég gæti lifað á hrökk-
brauði með hummus eða súkkulaðirúsínum
út í eitt.“
Hvað skiptir þig mestu máli þegar mat-
aræði er annars vegar? „Að hægt sé að
borða með nokkuð hreinni samvisku á flesta
kanta. En auðvitað skiptir líka miklu mali
að maturinn sé bragðgóður og úr nokkuð
góðu hráefni.“
Hvert er besta bjútítrix allra tíma? „Að líða
vel hvað svo sem veldur því. Stundum er
það samt ekkert hægt og þá segi ég að gott
hláturskast sé ákjósanleg skammtímalausn í
það minnsta.“
Hvað gerir þú til að láta þér líða betur?
„Það er pínu misjafnt. Stundum er það að
hendast ein á fjall með Í ljósi sögunnar í
eyrunum og stundum er það að vera heima
í kósýgallanum með engin göfugri markmið
en að baka strangheiðarlega súkkulaðiköku
með sex ára syni mínum. Hvort tveggja er
skothelt.“
Reynir að tapa sér ekki
í stressi eða streitu
Guðrún Ansnes, almanna-
tengslastjóri hjá Ampere, hugs-
ar vel um heilsuna. Eitt af því
besta sem hún gerir er að fara
ein á fjall og hlusta á útvarps-
þátt Veru Illugadóttur á meðan.
Marta María|mm@mbl.is
Guðrún er hér ásamt
sex ára syni sínum.
Guðrún Ansnes hugsar
vel um heilsuna.