Morgunblaðið - 02.01.2020, Page 6

Morgunblaðið - 02.01.2020, Page 6
H ver hefur ekki lent í því að fara út að hlaupa í íþróttabuxum sem rúllast alltaf niður og í stað þess að öll athyglin sé á hreyfingunni fer meðvitundin í það að hífa upp íþróttabux- ur. Ef þú kýst að æfa í buxum og topp skiptir máli að þessar tvær flíkur tali saman svo þú notir ekki orkuna í að toga toppinn niður eða bux- urnar upp. Þess vegna getur verið mjög þægilegt að vera í samfestingi í leikfimi. Í sam- festingi þarftu ekkert að hugsa um hvort belgurinn sé að sleppa laus heldur er hann pikkfastur inni í gallanum. Í fyrra kynntist ég íþróttamerki sem heitir Sweaty Betty. Vin- kona mín sem býr í Lundúnum dró mig inn í samnefnda verslun og sagði að þarna væru sér- lega góðar flíkur sem hentuðu vel til íþróttaiðk- unar. Þar féll ég fyrir samfestingi, renndi kort- inu í gegn en þegar heim var komið versnaði í því. Ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að klæðast honum því mér fannst ég ekki nógu lekker eitt- hvað. Kannski fannst mér samfestingurinn sýna sköpunarverk guðs aðeins of vel. Eftir nokkra mánuði ákvað ég að sleppa tök- unum. Ég hugsaði með mér, ef ég nota hann ekki núna þá er ekki séns að ég verði eitthvað ánægð- ari með mig í honum eftir 20 ár. Er ekki alltaf verið að hamra á því við mann að lífið sé núna? Síðan í haust hef ég stundað Infra Power hjá Önnu Eiríksdóttur í Hreyfingu af fullum krafti. Í æfingunum, sem eru mjög krefjandi, hefur sam- festingurinn komið að góðum notum. Eftir rosa- legar bjölluæfingar koma kannski 20 froskahopp og svo „burpees“, hnébeygjur, armbeygjur og fjallaklifur. Allt þetta er iðkað í 34° heitum sal. Vömbin er því bara kyrr inni í samfest- ingnum meðan öll þessi ósköp ganga yfir. Einn daginn tók ég svo eftir því að vömbin hafði rýrnað aðeins eftir öll froskahoppin, bjöll- urnar og stuðið. Það að keyra upp hámarkspúls tvisvar í viku skilar árangri þótt það sé ekki verið að gera neitt annað með nema kannski slaka á með flothettu og fara út í göngutúra. Það að æfa í hádeginu tvisvar í viku og reyna svona mikið á sig hefur þó einn ókost. Húðlit- urinn breytist úr ljósum í dökkrauðan og stundum jafnar húðlit- urinn sig ekki fyrr en um kaffileytið. Hégóminn þarf því að víkja fyr- ir heilsunni. Það að æfa tvisvar í viku skilar árangri ef púlsinn er keyrður upp í hæstu hæðir í hverjum tíma. Ef þú vilt hafa bert á milli þá er lína Alex- ander Wang fyrir Adidas frekar hress- andi. Þessi föt fást á www.net-a- porter.com. Hégóminn víkur fyrir heilsunni Þessi samfest- ingur er frá Koral og fæst á www.net-a- porter.com. Í Infra Power eru notuð lóð og bjöllur til að ná hámarksárangri. Margir sækjast eftir því að vera þokkalega útlítandi í ræktinni og þá koma góð leikfim- isföt eins og himnasending. Góð íþróttaföt hafa þó að geyma fleiri kosti en að vera fal- leg og þægileg. Þau þurfa að vera þannig að manneskjan geti verið frjáls. Marta María | mm@mbl.is Þessi íþróttaföt eru frá Koral og fást á www.net-a-porter.com. Sweaty Betty býr til fá- ránlega góð íþróttaföt. Hér eru samfestingar sem hægt er að kaupa á vefsíðu fyrirtækisins. 6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 HREINT MATARÆÐI hre ins ikúr inn Leiðbeinandi: Guðrún Bergmann Fullbókað: 7. janúar 2020 10% afsláttur ef þú skráir þig á námskeiðið 20. janúar fyrir 6. janúar Meira en 1.700 ánægðir þátttakendur á tæpum 5 árum! Skráning áwww.gudrunbergmann.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.