Morgunblaðið - 02.01.2020, Side 18

Morgunblaðið - 02.01.2020, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 Gæðavörur í umhverfisvænum umbúðum Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Hollt, bragðgott og þæginlegt Vegan - Keto - Pascaterian - Glutenlaust Sölustaðir: Hagkaup, Melabúð, Fjarðarkaup og Matarbúr Kaju Akranes S igurborg er glæsileg í flugfreyjubúningnum sín- um og ótrúlegt að hugsa til þess að þessi flotta kona hafi einhvern tímann litið öðruvísi út. Hún hefur á undanförnum árum farið niður um tvær kjólastærðir og er um þessar mundir að fara nið- ur um eina stærð í búningnum sínum. Enda hefur hún aldrei verið í betra formi. „Upphafið að því að ég setti fókusinn á heilsuna má rekja til þess að ég lenti í slysi fyrir tæpum tveimur árum. Þá brotnaði ég á fæti. Í kjölfarið mátti ég ekki stíga í fótinn í þrjá mánuði. Ég ætlaði svo sannarlega ekki að þyngjast á þessu tímabili en upplifði mig mjög vanmáttuga heilsufars- lega. Ég hafði í gegnum árin borðað það sem hendi var næst, sett bæði fjölskyldu og vinnu fram fyrir mínar eigin þarfir og var orðin verulega ósátt við heilsu mína og þyngd- ina að sama skapi.“ Eðalþjálfun skiptir miklu máli Sigurborg hafði alltaf stundað líkamsrækt með reglulegu millibili en upplifði mjög mikið frelsi í kjölfar þess að skoða allar hliðar er viðkoma því að vera í góðu formi. „Ég skráði mig í eðalþjálfun hjá Önnu Eiríksdóttur í Hreyfingu. Hún er með tíma á hverjum morgni klukkan 9:30. Tímarnir eru fjölbreyttir þar sem við lyftum, hjólum og iðkum svokallað hotfitness svo eitthvað sé nefnt. Anna er náttúrlega frábær og veitir okkur einstakt aðhald, bæði þeg- ar kemur að þessu líkamlega, en ekki síður andlega hlut- anum og því hvað við borðum.“ Sigurborg segir að í gegnum þjálfunina hjá Önnu hafi hún kynnst fjölmörgum einstaklingum sem halda hópinn og séu stór hluti af því að það er spennandi að vakna hvern morgun og fara í ræktina. „Ég fer í tíma alla daga sem ég er ekki að fljúga. Ég vakna þá hvern morgun, kem drengjunum mínum í skólann og fæ mér síðan kaffibolla og fer síðan af stað að hreyfa mig.“ Var alltaf að hugsa um aðra Eitt af því sem Sigurborg kann hvað best við er allt það aðhald sem hópnum er sýnt utan tímanna. „Anna sendir upplýsingar um mataræði. Síðan eru auka- verkefnin hjá henni einnig mjög hvetjandi. Með þessi móti hef ég getað unnið mig í frábært form, af stað sem ég ætlaði svo sannarlega ekki að lenda á.“ Hvernig lýsirðu forminu sem þú varst í á sínum tíma? „Ég var ekki á góðum stað þyngdarlega. Mér leið kannski ekki illa, en ég vissi að ef ég ætlaði að vera til staðar fyrir börnin mín í lengri tíma þyrfti ég að skoða þessi hluti upp á nýtt. Það er svo auðvelt að setja bara eitthvað ofan í sig þeg- ar maður er alltaf að spá í aðra frekar en sig sjálfan. Ég er á því í dag að til þess að ná árangri í lífinu á þessu sviði verði maður að gera það af algjörlega heilum hug.“ Sigurborg er fjörutíu og sjö ára og hefur losnað við tutt- ugu kíló frá því hún byrjaði á námskeiðinu. „Í dag líður mér alveg rosalega vel. Ég er fyrirmynd barna minna bæði í hreyfingu og mataræði. Síðan er ég mjög þakklát fyrir að eiginmaður minn skellti sér bara með mér í þetta átak. Hann er búinn að missa svipað mörg kíló og ég og er í frábæru formi líka.“ Hvað gerðir þú tengt mataræðinu í byrjun? „Fyrst tók ég út allan sykur og hveiti. Ég vandi mig á að borða hreinna fæði og lagði mikið upp úr því að elda allan mat frá grunni. Meginuppistaðan í matnum var grænmeti. Ég borða í dag nánast eingöngu mat sem mér líður vel af.“ Allt byggist á ákvörðun um betra líf Sigurborg viðurkennir að það hafi verið áskorun í upphafi að sneiða hjá sykri. Enda sé sykur mjög ávana- bindandi og að finna í mörgum matvælum. „Lykilatriðið í þessu öllu er að taka ákvörðun um breytt og betra líf og fylgja því síðan eftir. Í dag borða ég aðeins sykur, en ekki í sama mæli og ég „Ákvað að setja sjálfa mig í fyrsta sætið“ Sigurborg Pálína Hermannsdóttir flugfreyja hefur sjaldan verið í betra formi en núna. Hún hefur lést um 20 kg og æfir daglega. Með því að setja sig í fyrsta sæti getur hún verið betur til staðar fyrir aðra líka. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Sigurborg Pálína hefur sjaldan eða aldrei verið í eins góðu formi og núna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.