Morgunblaðið - 02.01.2020, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 19
Viltu gerast vinur JSB?
Danslistarskóli JSB er á facebook
Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili
að Frístundakorti Reykjavíkurborgar
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Nám og kennsla
Danslistarskóli JSB er viðurkenndur af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem listdansskóli á grunn- og
framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar um nám við skólann er að finna á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB.
Kennslustaður: Danslistarskóli JSB í Reykjavík, Lágmúla 9.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Kennsla á vorönn hefst mánudaginn 6. janúar.
Innritun stendur yfir á jsb.is. Nánari upplýsingar í síma 581 3730.
Jazzballett
Skemmtilegt og fjölbreytt dansnám fyrir stelpur
og stráka frá 6 ára aldri.
Í boði eru byrjenda- og framhaldshópar á
aldrinum 6-7 ára, 8-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára
og 16 ára og eldri.
Uppbyggileg dansþjálfun sem veitir nemendum
útrás fyrir dans- og sköpunargleði. Unnið er með
fjölbreytta tónlist í tímum. Frábært dansnám sem
eflir og styrkir nemendur, bæði líkamlega
og andlega.
Forskóli fyrir 3-5 ára
Skemmtilegt og þroskandi dansnám fyrir börn
á aldrinum 3-5 ára. Dansgleði og hreyfifærni
nemenda virkjuð í gegnum dans og leiki.
Kennt er 1x í viku.
Gleðilegt nýtt dansár!
Innritun fyrir vorönn stendur yfir á www.jsb.is
gerði áður. Ég er lítið fyrir öfgar, eða boð og bönn. Ég
mæli hins vegar með því fyrir alla að prófa að taka út
sykur og hveiti til að núllstilla sig og setja þessar vörur
síðan bara inn í mataræðið aftur í hófi.“
Var flókið að taka út sykurinn?
„Bæði og. Ég notaði ávaxtasykur þegar mig langaði að fá
mér eitthvað sætt, svo sem döðlur og jarðarber. Síðan
minnkaði ég sósur til muna og hef haldið mig mikið við að
velja frekar olíur á kjötið mitt í dag þótt ég fái mér síðan al-
veg sparisósur með rjóma og osti stundum.“
Hvað viltu segja við þá sem eru á sama stað og þú varst á?
„Ég hvet alla til að taka fyrsta skrefið sem byggist alltaf á
þessari ákvörðun að setja sjálfan sig í fyrsta sætið. Að sjálf-
sögðu reynir þetta aðeins á og er átak, en þetta er hægt og
er í raun mjög einfalt.“
Tekur æfingafötin með sér til útlanda
Móðir Sigurborgar, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, er bú-
sett í Vestmannaeyjum og er ein af fyrirmyndum hennar
í lífinu hvað varðar sjálfsrækt og gott form.
„Mamma er 67 ára að aldri og hugsar mjög vel um
sig, bæði gagnvart mat og hreyfingu. Hún er dugleg
að fara út í göngur, hún fer í ræktina og síðan hringj-
umst við mjög mikið á til að hvetja hvor aðra áfram.
Mamma er þátttakandi í Fjölþættri heilsueflingu 65+,
heilsueflingar- og forvarnarverkefni dr. Janusar Guð-
laugssonar íþrótta- og heilsufræðings í Vest-
mannaeyjum. Mér skilst að framfarir einstaklinga á
námskeiðinu séu frábærar. Að fólk yfir sextíu og fimm
ára sé að seinka öldrun og auka líkamlega hreysti til
muna.“
Sigurborg segir að flugfreyjulífið henti lífsstíl sínum
vel. Þegar hún fari utan að vinna taki hún vanalega
með sér æfingaföt til að æfa í stoppunum. Hún æfir þá
á hótelinu eða í góðri líkamsræktarstöð í nágrenni við
staðinn sem hún gistir á hverju sinni.
„Ég get mælt með borgum eins og New York í þessu
samhengi. Þar vel ég góða staði til að fá mér acai-skál í
hádeginu og síðan má alltaf fá góðan mat með nóg af
grænmeti og prótíni á kvöldin.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Ég var ekki á góðum
stað þyngdarlega. Mér
leið kannski ekki illa,
en ég vissi að ef ég
ætlaði að vera til
staðar fyrir börnin
mín í lengri tíma
þyrfti ég að skoða
þessi hluti upp á nýtt.
Það er svo auðvelt að
setja bara eitthvað of-
an í sig þegar maður
er alltaf að spá í aðra
frekar en sig sjálfan.