Morgunblaðið - 02.01.2020, Side 23

Morgunblaðið - 02.01.2020, Side 23
OSSUR.IS Kynntu þér málið hjá okkur! Ný, betrumbætt stuðningsspelka við slitgigt sem gerir fólki kleift að stunda áfram hreyfingu og dagleg störf. ÖSSUR – VERSLUN & ÞJÓNUSTA Grjóthálsi 1-3 | S. 515 1300 Opið virka daga | kl. 8.30-16 FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 23 sviði ekki hjálpa til við svona aðstæður. Að gera sitt besta á degi hverjum, greiða úr tilfinningum með sálfræðingi ef þarf, fá aðstoð með hreyfingu og fleirir skref í átt að bata er hluti af bata einstaklings sem þarf uppbyggingu á þessu sviði að mínu mati.“ Ólöf Guðný varði doktorsnámi sínu í rannsókn á eldra fólki og kom einnig að þróun á Hleðslu hjá Mjólkursam- sölunni á sínum tíma. „Verkefnið heitir IceProQualitia og var tveggja ára verkefni sem enn þá er verið að skrifa vísindagreinar úr. Við vildum mæla áhrif próteindrykkja á eldra fólk og fengum tæplega 250 ein- staklinga sem voru 65 ára og eldri til að taka þátt í þessu með okkur. Fólkið sem tók þátt í rannsókninni var al- gjörlega rjóminn fyrir sinn aldur, flest- ir voru á engum lyfjum, eða tveimur lyfjum eða færri. 80% þátttakenda voru í reglulegri hreyfingu og í góðu næringarástandi. Ég skoðaði hreyfi- færni og lífsgæði fólksins og náðu 20% hópsins ekki árangri eftir þriggja mán- aða styrktarþjálfun. Þegar rýnt var í gögnin sást að þau sem borðuðu ekki nóg fengu ekki nægilega orku og pró- tein. Þessi hópur náði ekki árangri eins og aðrir í hópnum náðu og á sama tíma. Þeir jafnvel misstu færnina og hreyfigetu með tímanum því þá vant- aði næringu í líkamann, líkt og þegar bensínlaus bíll stoppar út af orkuleysi. Manneskjan stoppar hins vegar ekki heldur tekur orku og byggingarefni úr líkamanum. Vöðvar hreyfa beinin og minnkandi styrkur eykur hrörnun. Eftir rannsóknina sá ég hversu mikil- vægt er fyrir okkur konur sem dæmi að vera ekki alltaf að setja athyglina of mikið á þessi fimm kíló sem okkur langar að missa. Við megum alveg taka pláss og ef rannsóknin sýnir að einn af hverjum fimm sem taka þátt í styrktaræfingum til að byggja upp vöðva og styrk rýrnar vegna nið- urbrots í líkamanum og vegna lélegrar næringar þá verðum við sem samfélag að vera meðvituð um að við þurfum að borða nóg til að standa undir okkur og tryggja að viðkvæmir hópar eins og veikir eða hrumir fái viðeigandi mat og næringu.“ Í þessu samhengi er Ólöf Guðný ekki að mælast til að fólk borði of mik- ið. Heldur meira að ítreka mikilvægi þess að borða fjölbreytt. Í raun að við tryggjum að við fáum öll næringarefni úr fæðunni. Hún segir hálft kíló af grænmeti ráðlagðan dagskammt sem flestir ættu að reyna að halda sér við en þeir sem borða lítið eða nærast illa þurfa að tryggja að matur sem gefur meiri orku og næringu eins og mjólk- urvörur, kjöt, fiskur, hnetur og fræ minnki ekki og þá þarf oft að minnka grænmeti- og ávexti. Matur mikilvægur í krabbameinsmeðferð Að starfa með fólki sem er að ná sér eftir krabbamein gaf einnig sömu niðurstöðu og hún nefnir hér að ofan. „Það er sagt að við getum minnkað líkur á krabbameini um 10% með ráð- lögðum dagskammti af grænmeti og ávöxtum. Að hreyfing og losun stress og streitu efli ónæmiskerfið. Áfengi er einnig talið vera áhættuþáttur þegar kemur að krabbameini.“ Hvað gerir næringarfræðingur inni í teymi sem vinnur með krabbameins- sjúklingum? „Ég gerði rannsókn árið 2008 þar sem ég athugaði konur með krabba- mein. Þar sá ég hvernig þær þyngdust í meðferð en misstu vöðvamassann. Ein af ástæðum þess er að eftir með- ferð er einstaklingur vanalega mjög þreyttur og slappur. Hlutverk næring- arfræðings inni á krabbameinsdeild er að finna leiðir fyrir þann sem er veikur til að nærast. Fólk er oft með sár í munni, eða viðkvæm meltingarfæri. Eftirmeðferð og að ná sér eftir krabbamein getur tekið mörg ár. Fólk upplifir sig sem dæmi glatt eftir með- ferð ef allt lítur vel út. Hins vegar er það oft með stöðugan ótta við að fá krabbameinið aftur og er þróttlítið og vannært og þarf að finna bestu leið- irnar til að byggja sig upp aftur. Þar gegnir næring lykilatriði að mínu mati, úrvinnsla tilfinninga og hreyfing svo dæmi séu tekin.“ Ræða vanmátt tengdan mat við sérfræðing Ólöf Guðný lifir góðu lífi sjálf og nýt- ur þess að borða góðan mat. Hún reynir að sniðganga engar matarteg- undir og er á því að við eigum ekki að ala börnin okkar upp við ótta tengdan mat. Hún viðurkennir að að sjálfsögðu fari matur misvel í fólk. Sumir séu með einskonar óþol fyrir sykri eða öðrum matvælum. „Mér finnst lykilatriðið að vinna í sjálfsvirðingunni og njóta matar. Mat- ur er stór hluti af lífsgæðum okkar. Ég reyni að vera með sjálfsmildi og að borða það sem mér finnst gott. Matur er mjög félagslegur í mínum huga. Ég sem dæmi nýt þess að drekka góðan kaffibolla og borða morgunmat með eiginmanni mínum á morgnana og lesa blöðin, sem er ljúf byrjun á deginum. Síðan reynum við að elda alltaf saman á kvöldin eitthvað sem er gott og fal- legt á diskunum fyrir okkur fjölskyld- una að borða. Það má ekki gleymast að maturinn þarf líka að vera fyrir öll skynfæri, vera fallegur, lykta vel, hafa rétta áferð og sem dæmi grænmeti að vera brakandi. Þegar kemur að hádeg- isverðinum þá er hann oftast inni hjá mér við tölvuna, því miður og er það ekki til eftirbreytni. Dagskráin mín leyfir ekki alltaf að hádegisverðurinn sé borðaður klukkan tólf í félagsskap góðra samstarfsfélaga.“ Hún segir að gullna reglan sé að hugsa jafn vel um sjálfan sig og aðra. Að tala eins fallega við sig og maður gerir við besta vin sinn. Ef maður set- ur eitthvað ofan í sig sem maður ætlaði ekki að gera, að halda bara áfram án þess að dæma sig. Ef maður verður vanmáttugur gagnvart mat sé best að ræða það við fagfólk. ,,Læknir verður ekki reiður að hitta þig ef þú brýtur á þér fótinn. Það sama á við um næringarfræðing ef þú þarft aðstoð vegna mataræðis. Það er allt eins víst að þú hittir fyrir manneskju sem elskar vinnuna sína og kann fjöl- mörg ráð við að koma hlutunum í rétt- an farveg á þínum forsendum. Fyrsta skrefið er alltaf að gera raunhæf lítil markmið og taka jákvæð skref í rétta átt og muna að þegar við erum að vinna að breytingum þá er það erfitt og við gerum alltaf eins vel og við get- um á hverri stundu. Að borða af skyn- semi þýðir að svelta sig ekki. Hungruð manneskja borðar alltaf óskynsam- lega. Það er í mannlegri hegðun að gera slíkt.“ Að lokum segir hún að gamla staðalímyndin af næringarfræð- ingnum með fingurinn á lofti sé barn síns tíma. Að viðmót næringarfræð- inga sé faglegt og grundvallist vinna þeirra á þekkingu og samvinnu – og að finna út heilbrigðar leiðir sem efla einstaklinginn bæði andlega og líkamlega.Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ólöf Guðný er reynd og víðsýn og hefur komið víða við á ferli sínum sem næringarfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.