Morgunblaðið - 02.01.2020, Side 29
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 29
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
hjartaáföll. Það er því til mikils að vinna að
ná tökum á streitu og neikvæðum hugs-
unum.
„Það eru hins vegar ekki bein tengsl á
milli áfalla og svona heilkenna, því margir
sem koma með þessi einkenni til okkar geta
ekki rakið þau til einhvers sem hefur gerst
í lífi þeirra.“
Þegar kemur að ástinni segir Karl margt
einkennilegt gerast sem vísindin eigi
kannski erfitt með að útskýra.
„Ég hef löngum furðað mig á því hversu
stutt er á milli aldraðra hjóna. Þegar sem
dæmi annar aðilinn deyr, þá fer hinn oft
fljótt á eftir. Það er erfitt að segja hvað
veldur því, en kannski dvínar tilgangur lífs-
ins þegar maki kveður sem maður hefur
verið mjög náinn alla ævi. Það er viður-
kennt innan læknisfræðinnar að hugur get-
ur haft áhrif á líkamleg einkenni. Það er
hins vegar flóknara að setja mælistiku á
þessa hluti.“
Finnur friðinn úti í náttúrunni
Karl segir hins vegar til mikils að vinna
ef fólk getur náð tökum á streitu og stressi.
Hann segir án efa fólk vera að gera sitt
besta í þeim efnum og stundum séu aðstæð-
urnar þannig í lífinu að streita sé eðlilegur
fylgikvilli.
„Streita hefur svipuð áhrif á kransæðar
og að reykja. Með langvarandi streitu get-
um við tvöfaldað áhættuna á hjartaáfalli
sem dæmi. Í þessu samhengi finnst mér
samt nauðsynlegt að taka fram að að-
stæður fólks eru alls konar. Sumir eru að
upplifa langvarandi veikindi barna sinna
sem myndar streitu sem er eðlilegt að fólk
upplifi í þannig aðstæðum. Eins getur fjár-
hagsvandi haft alvarleg áhrif á heilsu
fólks, einelti á vinnustað og fleira í þeim
dúrnum.“
Það sem Karl gerir sjálfur til að forðast
streitu er ýmislegt. Hann fer út úr bæn-
um og hvílir sig þegar hann er ekki að
vinna.
„Ég held að við mannfólkið séum misjöfn
þegar kemur að streitu. Sumir þrífast vel í
umhverfi þar sem stress og álag er mikið.
Starfsfólkið hér á spítalanum sem dæmi
nær oft að brynja sig fyrir umhverfinu og
sumir jafnvel sækja í mikið álag og virðast
ekki upplifa neikvæða hluti því tengt. Hjá
öðrum koma fram einkenni kulnunar og
andlegrar vanlíðunar.“
Ljósmynd/Unsplash
Brostið hjarta, eða takotsubo, fær nafn sitt frá japönsku kolkrabbagildrunni vegna þess að út-
lit hjartaslegilsins í slagbilinu þykir minna á lögun gildrunnar.
Það getur verið gott fyrir
hjartað að fara út í náttúruna
og ganga. Streita og stress
getur minnkað og almenn
vellíðan orðið meiri.