Morgunblaðið - 03.02.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Gamli Elliðavatnsbærinn blasir við á milli glerhallanna í
Kópavogi í stilltu og björtu veðri sem verið hefur undanfarna
daga. Þegar líður á janúar fer að birta til og glitta í fallega
liti, sem sólin kastar af veðurbörðum trjánum í allri sinni
dýrð. Veðrið var kyrrt og svalt á höfuðborgarsvæðinu um
helgina og nýttu sér eflaust margir veðurblíðuna til útivistar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Náttúran
skammt
undan
Útlit er fyrir vinda- og vætusama
viku, samkvæmt upplýsingum frá
Haraldi Eiríkssyni, veðurfræðingi á
Veðurstofu Íslands.
Mun vikan byrja með rólegheita-
veðri í dag og hægum vindi að sögn
hans.
Líkur eru á því að það muni snjóa
eitthvað með suðurströnd landsins
og á Reykjanesi. Þá verður skýjað
en þurrt víðast hvar á landinu.
Áfram verður frost um mestallt
land og kaldast fyrir norðan.
Á morgun fer að blása af suðri og
er búist við að það fari að snjóa síð-
degis sem mun síðar fara yfir í
slyddu og rigningu um sunnan- og
vestanvert landið. Þá á að hlýna í
veðri. Á miðvikudag og fimmtudag
er von á sunnanátt og búist við að
það verði vætusamt og milt en
þurrt að mestu á Norðausturlandi.
„Það er svona frekar órólegt
framundan næstu vikuna,“ sagði
Haraldur í samtali við Morgun-
blaðið. rosa@mbl.is
Órólegt veður framundan
Rok Vindasöm og vætusöm vika er fram-
undan á landinu ef marka má veðurspá.
Vaxtaberandi skuldir Íslandspósts hafa lækkað úr
3,4 milljörðum króna í 1,9 milljarða og rekstrar-
hagnaður fyrir afskriftir nam 480 milljónum í stað
50 milljóna. Þetta upplýsir Birgir Jónsson forstjóri
um innihald ársreiknings fyrir árið 2019 sem verð-
ur kynntur stjórn félagsins í vikunni. Hann segir
þetta árangur af aðhaldsaðgerðum.
Árið 2020 verður nýtt til að stórbæta þjónustu við
fyrirtæki og almenning. „Framtíðin í starfsemi
Póstsins er öll í pökkunum og þurfum við bæði að
verða verðmætari samstarfsaðilar netverslana og
leita leiða til að þjónusta heimilin betur,“ segir
Birgir. Ætlunin er að gefa fólki kost á að sækja
pakka á bensínstöðvar eða í matvöruverslanir. »12
Sækja pakka á bensínstöð eða í verslun
Pósthús Fólk mun geta
sótt pakka á fleiri staði.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Enn er ekki vitað hversu víðtæk áhrif
kórónaveiran og aðgerðir gegn henni
munu hafa á íslenska ferðaþjónustu,
en bæði hótel og ferðaþjónustufyrir-
tæki eru farin að fá afbókanir og fyr-
irspurnir um afbókunarskilmála frá
ferðamönnum í tengslum við faraldur-
inn. Veiran á upptök sín að rekja til
Wuhan í Kína en töluverður fjöldi hef-
ur látið lífið vegna hennar og hefur
neyðarástandi verið lýst yfir á heims-
vísu. Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður
gæða- og þróunarsviðs hjá Ferðamála-
stofu, segir áhrifin á ferðaþjónustuna
ráðast af því hversu lengi neyðar-
ástand ríkir vegna veirunnar. Sótt-
varnalæknir segir þó enn langt í að
hægt sé að binda vonir við fréttir um
ný lyf og bóluefni gegn veirunni.
„Við finnum fyrir þessu. Það sem
við heyrum í greininni er að það eru
að byrja afbókanir og annað þess
háttar. En það er spurning hvað verð-
ur um framhaldið. Það ræðst af því
hversu lengi þetta verður hver áhrifin
verða,“ segir Elías í samtali við Morg-
unblaðið.
Hann segist þó telja að áhrif veir-
unnar á ferðaþjónustuna hér á landi
muni líklega verða minni en ætla
mætti vegna lágannatíma.
Spyrja um afbókunarskilmála
Þóra Björk Þórhallsdóttir, forstöðu-
maður sölusviðs ferðaskrifstofunnar
Nordic Visitor, segir að þegar hafi
nokkuð verið um afbókanir vegna veir-
unnar. Segir hún einnig viðskiptavini
sem eigi bókað fram í tímann vera
farna að spyrjast fyrir um afbókunar-
skilmála. Segir Þóra fyrirspurnir ekki
aðeins berast frá kínverskum við-
skiptavinum heldur fólki frá öðrum
þjóðum. Hún segir að fólkið sé að
skoða möguleika sína ef það kæmist
ekki til landsins til dæmis vegna þess
að landamærum yrði lokað vegna far-
aldurs.
Orri Paviainen, deildarstjóri hópa-
deildar hjá GJ Travel, tekur undir með
Þóru og segist hafa tekið eftir auknum
fyrirspurnum um afbókunarskilmála
frá fólki frá ýmsum löndum í kjölfar
veirunnar þó að enn sem komið er hafi
fyrirtækið ekki fengið mikið af afbók-
unum.
Björn Víglundsson, framkvæmda-
stjóri Iceland Travel, segir að nokkrir
hópar frá Kína hafi verið afbókaðir hjá
ferðaskrifstofunni. Enn sem komið er
séu afbókanir þó bundnar við kín-
verskan markað.
„Að einhverju leyti flokkast Ísland
enn undir öruggan áfangastað í þess-
um málum þannig að við höfum ekki
fundið fyrir neinu frá öðrum mörkuð-
um,“ segir Björn í samtali við Morg-
unblaðið.
Snorri Pétur Eggertsson, fram-
kvæmdastjóri Keahótela, segir hótelin
hafa orðið vör við einhverjar afbókanir
en ekki miklar enn sem komið sé.
Nokkuð hafi þó verið um fyrirspurnir
varðandi afbókanir. „Við erum bara að
sjá hvernig þetta þróast,“ segir hann.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir segir að enn sé langt í það að hægt
sé að nýta bóluefni og lyf sem fjallað
hefur verið um í fréttum gegn kór-
ónaveirunni.
Spurður um nýlegar fréttir um að
kona í Bangkok á Taílandi, sýkt af kór-
ónaveirunni, hafi náð bata eftir að hafa
verið látin taka lyf sem notuð eru til
meðhöndlunar við flensu og HIV-
smiti, sem greint var frá í gær, segir
Þórólfur ekki tímabært að binda vonir
við neinar slíkar fréttir.
„Það er langt í það. Þetta á eftir að
fara í gegnum mat og yfirvöld sem
myndu heimila að þetta yrði notað.
Það er ekkert sem menn eru á þessu
stigi að binda vonir neitt sérstaklega
við,“ segir hann.
„Við fylgjumst auðvitað með öllu.
Það er að „poppa“ upp allskonar í
fréttum um bóluefni og lyf og annað.
En það er ekki neitt sem er „aktúelt“ á
þessu stigi. Við erum ekki að elta neitt
sérstaklega nema einhver yfirvöld lýsi
því yfir að það sé rétt að prófa eitt-
hvert lyf umfram annað,“ segir Þór-
ólfur.
Hann segir að enn sé fyrst og
fremst undirbúningur í fullum gangi
varðandi viðbragðsáætlanir í tengslum
við veiruna. Segir hann að farið verði í
að skerpa á áætluninni í vikunni, meta
stöðuna betur og leita eftir vanda-
málum.
Þórólfur segir að meðal annars sé
búið að fara yfir birgðastöðu á öllum
lyfjum, vökvum og hlífðarbúnaði.
Afbókunum og fyrir-
spurnum fjölgar
Segir ótímabært að binda vonir við fréttir um nýtt lyf
Morgunblaðið/Eggert
Varin Undirbúningsstarf stendur yfir á Landspítala vegna veirunnar.
Áhrifin enn óljós
» Enn er ekki vitað hver áhrif
kórónaveirunnar verða á ís-
lenska ferðaþjónustu.
» Þegar hafa borist afbókanir
og fyrirspurnir um afbókanir til
ferðaskrifstofa og hótela.
» Sóttvarnalæknir segir ekki
tímabært að binda vonir við
fréttir um ný lyf og bóluefni
gegn veirunni.