Morgunblaðið - 03.02.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
skoraði sitt fjórða mark í fjórum
fyrstu leikjum sínum með AC Milan í
gær þegar hún gerði fyrra markið í
2:1 sigri í grannaslag gegn Inter Míl-
anó í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu.
Berglind lék allan leikinn og jafnaði
eftir að Inter komst yfir í síðari hálf-
leiknum. AC Milan sem er í þriðja
sæti hefur unnið alla leikina eftir að
landsliðsframherjinn íslenski kom til
liðs við félagið.
Ítalska knattspyrnufélagið SPAL
frá Ferrara hefur fengið Anton Loga
Lúðvíksson, 16 ára drengjalandsliðs-
mann, lánaðan frá Breiðabliki. Anton
var í hópi Blika í einum leik í úrvals-
deildinni síðasta haust og hefur spil-
að 17 leiki með yngri landsliðum Ís-
lands.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði
6 mörk fyrir Elverum sem vann
Nærbö örugglega, 34:22, í norsku úr-
valsdeildinni í handknattleik á laug-
ardaginn. Elverum er með fjögurra
stiga forystu á Óskar Ólafsson og
samherja hans í Drammen á toppi
deildarinnar en Óskar gerði 2 mörk í
útisigri á St. Hallvard, 36:30.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 7
mörk fyrir GOG og Gunnar Steinn
Jónsson 7 mörk fyrir Ribe-Esbjerg
þegar GOG vann leik liðann 36:28 í
dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik
á laugardaginn. Alls gerðu Íslending-
arnir í liðunum tveimur 20 mörk.
Kvennalið ÍBV í knattspyrnu fékk
um helgina fimm nýja erlenda leik-
menn til liðs við sig fyrir komandi
tímabil. Þrjár þeirra eru landsliðs-
konur Lettlands, þær Olga Sevcova,
Eliza Spruntule og Karlina Miksone,
og þá kemur hin þýska Hanna
Kallmaier frá Kvarnsveden í Svíþjóð.
Danielle Tolmais kemur frá Lille en
hún hefur leikið með U23 ára lands-
liði og B-landsliði Frakklands.
Bjarki Már Elísson átti enn einn
stórleikinn með Lemgo og skoraði 11
mörk í gær þegar lið hans vann Stutt-
gart, 27:23, í þýsku 1. deildinni í
handknattleik. Bjarki er næst-
markahæstur í deildinni með 159
mörk, einu minna en Hans Óttar
Lindberg sem er með 160
mörk og gerði 11 mörk
fyrir
Füchse
Berlín í
sigri á Bal-
ingen, 27:23.
Þar var Oddur Gret-
arsson aðalmaður í liði
Balingen með 8 mörk.
Arnór Þór Gunnarsson
gerði 5 mörk fyrir Berg-
ischer sem tapaði
27:24 fyrir Wetzlar en
Viggó Kristjánsson
skoraði 3 marka Wetzlar í
þeim leik.
Eitt
ogannað
FRJÁLSAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hlaupakonan kornunga Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir var í stóru hlutverki í
frjálsíþróttakeppni Reykjavíkurleik-
anna í Laugardalshöllinni í gær. Hún
vann bæði 60 og 200 metra hlaup
kvenna eftir harða keppni við erlenda
andstæðinga og innsiglaði sigur Ís-
lands í 4x200 metra boðhlaupi þar sem
bandarísk sveit var lögð að velli í loka-
grein mótsins.
Hin 18 ára gamla Guðbjörg Jóna
vann fyrst 200 metra hlaupið á nýju
mótsmeti, 23,98 sekúndum, sem er
jafnframt hennar besti tími í greininni
innanhúss. Aaliyah Pyatt frá Banda-
ríkjunum varð önnur á 24,42 sekúndum
og Tamara Miller frá Bretlandi þriðja á
24,90 sekúndum en þær eru báðar 24
ára gamlar. Íslandsmet Silju Úlfars-
dóttur í greininni frá 2004 er 23,79 sek-
úndur. Utanhúss er Guðbjörg Íslands-
methafi en hún hljóp á 23,45 sekúndum
í fyrrasumar.
Guðbjörg vann síðan 60 metra
hlaupið á 7,48 sekúndum þar sem hún
var 1/100 úr sekúndu frá því að jafna
Íslandsmetið innanhúss sem hún og
Tiana Ósk Whitworth deila. Louise Ös-
tergård frá Danmörku varð önnur á
7,51 sekúndu og Page Fairclough frá
Bretlandi varð þriðja á 7,61 sekúndu en
þær eru sex og sjö árum eldri en Guð-
björg.
Guðbjörg var loks í sveit Íslands sem
vann 4x200 metra boðhlaup kvenna,
lokagrein mótsins, á 1:37,94 mínútum
en sveit Bandaríkjanna hljóp á 1:38,09
mínútum. Með Guðbjörgu í sveitinni
voru Andrea Torfadóttir, Þórdís Eva
Steinsdóttir og Agnes Kristjánsdóttir.
Hlynur Andrésson úr ÍR var að-
eins tæplega hálfri sekúndu frá Ís-
landsmetinu í 1.500 m hlaupi karla sem
hann setti á mótinu í fyrra. Hlynur
sigraði á 3:46,40 mínútum og hafði bet-
ur í keppni við Breta og Bandaríkja-
mann.
Kringlukastarinn Guðni Valur
Guðnason og spjótkastarinn Ásdís
Hjálmsdóttir kepptu í aukagrein
beggja, kúluvarpinu, og unnu bæði.
Guðni náði sínum besta árangri þegar
hann kastaði 18,43 metra en Ásdís
kastaði 15,57 metra og var 39 senti-
metrum frá eigin Íslandsmeti í grein-
inni.
Nánar um Reykjavíkurleikana í
frjálsíþróttum og öðrum greinum á
mbl.is/sport/reykjavikurleikar.
Guðbjörg ósigrandi í Höllinni
Varð þrefaldur sigurvegari í frjáls-
íþróttakeppni Reykjavíkurleikanna
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Sigurvegari Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir kemur fyrst í mark í 60 m hlaup-
inu, aðeins 3/100 úr sekúndu á undan Louise Östergård frá Danmörku.
Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði
7 mörk fyrir Fram og Þórey Rósa
Stefánsdóttir 6 en hjá Haukum var
Berta Rut Harðardóttir atkvæða-
mest með 5 mörk.
KA/Þór var með ótrúlega yfir-
burði gegn botnliði Aftureldingar á
Akureyri á laugardaginn og vann
30:12 eftir að staðan var 18:6 í hálf-
leik. Rakel Sara Elvarsdóttir og Ás-
dís Guðmundsdóttir gerðu 8 mörk
hvor fyrir Akureyringa. Aftureld-
ing hefur enn ekki fengið stig og nú
er aðeins formsatriði að liðið hafni í
botnsætinu og falli beint eftir eins
árs dvöl í deildinni. vs@mbl.is
Valur þurfti að hafa mikið fyrir því
að vinna næstneðsta lið Olísdeildar
kvenna í handknattleik, ÍBV, á
Hlíðarenda í gær. Valskonur knúðu
fram sigur, 21:19, eftir að Eyjakon-
ur voru yfir í hálfleik, 12:11, og
staðan var 17:17 þegar tíu mínútur
voru eftir.
Ásdís Þóra Ágústsdóttir skoraði
5 mörk fyrir Val, Lovísa Thompson
og Díana Dögg Magnúsdóttir 4
mörk hvor. Íris Björk Símonar-
dóttir varði 22 skot og var með 53,7
prósent markvörslu. Ásta Björg
Júlíusdóttir skoraði 7 mörk fyrir
ÍBV sem þrátt fyrir að vera í sjö-
unda sæti, umspilssæti, gæti enn
blandað sér í baráttuna um að kom-
ast í fjögurra liða úrslitin. Aðeins
fimm stig skilja að Stjörnuna, HK,
Hauka, KA/Þór og ÍBV í þriðja til
sjöunda sæti.
Fram vann sinn þrettánda sig-
ur í fjórtán leikjum gegn Haukum á
Ásvöllum á laugardaginn, 28:22, og
er áfram þremur stigum á undan
Val. Það myndi því ekki nægja Val
að vinna heimaleikinn gegn Fram
29. febrúar því Safamýrarstúlk-
urnar þyrftu að tapa stigi annars
staðar til að missa deildarmeistara-
titilinn úr höndum sér.
Valur var í miklu basli með ÍBV
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fimm Ásdís Þóra Ágústsdóttir var
markahæst hjá Val gegn ÍBV.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Njarðtaksgryfjan: Njarðvík – Valur .. 19.15
MG-höllin: Stjarnan – Grindavík ........ 19.15
1. deild karla:
Smárinn: Breiðablik – Selfoss ............. 19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Vestri......... 19.15
Ice Lagoon-höllin: Sindri – Hamar.......... 20
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla, úrslitaleikur:
Origo-völlurinn: Valur – KR..................... 19
Í KVÖLD!
Í KEFLAVÍK
Skúli B. Sigurðsson
skulibsig@mbl.is
Það var lítil reisn yfir leik Keflvík-
inga og Þórsara frá Akureyri sem
mættust í gær í Blue-höllinni í
Keflavík í Dominos-deild karla í
körfubolta. Kvöldið var heldur
dauft hjá flestum sem í húsinu
voru og þrátt fyrir þessar stað-
reyndir voru skoruð hátt í 200 stig
milli liðanna. Það voru Keflvík-
ingar sem lönduðu sigrinum að
lokum nokkuð áreynslulaust með
því að skora 97 stig gegn 89 stig-
um gestanna og þeir virðast eina
liðið sem getur mögulega komið í
veg fyrir að Stjarnan standi uppi
sem deildarmeistari.
Á þessu feikna sterka Keflavík-
urliði virðist þetta vera einn af
fáum veikleikum þess þennan vet-
urinn, þ.e. að þeir eiga erfitt með
að gría sig upp í leiki gegn liðum í
neðri hluta deildarinnar. Þetta hef-
ur kostað þá farseðil í höllina en
blessunarlega voru Þórsarar langt
frá sínu besta í gærkvöldi og
þurftu heimamenn ekki neinn
stjörnuleik til að landa sigrinum.
Þórsarar ollu undirrituðum
ákveðnum vonbrigðum í þessum
leik. Liðið hefur verið að sýna
skínandi fína frammistöðu í deild-
inni og þessi leikur í raun risa-
prófraun á hversu langt liðið er
tilbúið að fara í úrslitakeppninni
þetta árið. Og það er alveg raun-
hæfur möguleiki því liðið er tölu-
vert betra en það sem þeir sýndu í
gærkvöldi. Liðið átti í vandræðum
allt kvöldið með vagg og veltu
Harðar Axels og Dominykas Milka
hjá Keflavík. Jamal Palmer bjarg-
aði liði Þórs frá algerri niður-
lægingu líkt og síðustu heimsókn
þeirra í Reykjanesbæ með fínum
töktum á lokasprettinum. Það
dugði þó ekki.
Milka skoraði 27 stig fyrir
Keflavík og Khalil Ullah Ahmad 18
en Palmer var með 29 stig fyrir
Þór og Mantas Virbalas 25.
Spenna á Sauðárkróki
Tindastóll lagði KR að velli í
hörkuleik á Sauðárkróki, 80:76,
þar sem úrslitin réðust á drama-
tískum lokasekúndum. Tindastóll
er þar með í þriðja sætinu og skildi
meistarana eftir í því fimmta en
gríðarlega hörð keppni er fram-
undan um heimaleikjaréttinn í úr-
slitakeppninni.
Deremy Geiger og Sinisa Bilic
gerðu 16 stig hvor fyrir Tindastól
og Pétur Rúnar Birgisson 13 en
hjá KR var Brynjar Þór Björnsson
með 16 stig, Jón Arnór Stefánsson
og Michael Craion með 11 hvor.
Haukar eru í fjórða sætinu
með jafnmörg stig og Tindastóll
eftir sigur á ÍR í Seljahverfinu,
100:93. Flenard Whitfield og Kári
Jónsson áttu frábæran leik með
Haukum. Whitfield var með 29 stig
og 15 fráköst og Kári skoraði 22
stig og átti 11 stoðsendingar.
Evan Singletary skoraði 30 stig
fyrir ÍR-inga sem eru áfram í bar-
áttunni um að komast inn í úr-
slitakeppnina.
Þór úr Þorlákshöfn vann botn-
lið Fjölnis 90:82 og ljóst er að
Grafarvogspiltarnir eru á leið nið-
ur í 1. deildina. Þór er tveimur
stigum ofan við Grindavík í átt-
unda sætinu. Marko Bakovic skor-
aði 27 stig fyrir Þór og Jerome
Frink 21 en Jere Vucica var með
27 stig fyrir Fjölni og Viktor Mo-
ses 24.
Keflvíkingar elta
Garðbæinga
Þurftu ekki stórleik til að sigra Þór
Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
Keflavík Dominykas Milka skoraði 27 stig fyrir Keflavík og reynir hér að
skora framhjá Þórsaranum Mantas Virbalas í leiknum í gærkvöld.