Morgunblaðið - 03.02.2020, Side 26

Morgunblaðið - 03.02.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020 England Watford – Everton................................... 2:3  Gylfi Þór Sigurðsson lék í 67 mínútur með Everton og lagði upp eitt mark. Burnley – Arsenal ................................... 0:0  Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Leicester – Chelsea.................................. 2:2 Bournemouth – Aston Villa ..................... 2:1 Crystal Palace – Sheffield United .......... 0:1 Liverpool – Southampton........................ 4:0 Newcastle – Norwich ............................... 0:0 West Ham – Brighton.............................. 3:3 Manchester United – Wolves.................. 0:0 Tottenham – Manchester City................ 2:0 Staðan: Liverpool 25 24 1 0 60:15 73 Manch.City 25 16 3 6 65:29 51 Leicester 25 15 4 6 54:26 49 Chelsea 25 12 5 8 43:34 41 Tottenham 25 10 7 8 40:32 37 Sheffield Utd 25 9 9 7 26:23 36 Manch.Utd 25 9 8 8 36:29 35 Wolves 25 8 11 6 35:32 35 Everton 25 9 6 10 31:37 33 Arsenal 25 6 13 6 32:34 31 Burnley 25 9 4 12 28:38 31 Newcastle 25 8 7 10 24:36 31 Southampton 25 9 4 12 31:46 31 Crystal Palace 25 7 9 9 22:29 30 Brighton 25 6 8 11 30:37 26 Bournemouth 25 7 5 13 25:38 26 Aston Villa 25 7 4 14 32:47 25 West Ham 25 6 6 13 30:43 24 Watford 25 5 8 12 23:39 23 Norwich 25 4 6 15 24:47 18 Þýskaland Augsburg – Werder Bremen ................. 2:1  Alfreð Finnbogason lék seinni hálfleik með Augsburg og lagði upp sigurmarkið. Grikkland OFI Krít – Larissa ................................... 0:0  Ögmundur Kristinsson varði mark Lar- issa sem er í 9. sæti deildarinnar. Panathinaikos – PAOK........................... 2:0  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK sem er með 52 stig í öðru sæti en Olympiacos er með 54 stig á toppnum. Tyrkland Alanyaspor – Yeni Malatyaspor ............ 2:1  Viðar Örn Kjartansson kom inn á hjá Yeni Malatyaspor á 57. mínútu.  Olísdeild karla Selfoss – ÍBV ........................................ 29:36 KA – HK................................................ 23:26 Stjarnan – ÍR ........................................ 26:33 FH – Haukar ........................................ 31:28 Fram – Fjölnir ...................................... 21:20 Valur – Afturelding .............................. 28:28 Staðan: Haukar 16 11 3 2 436:407 25 Afturelding 16 10 3 3 443:419 23 Valur 16 10 2 4 436:387 22 ÍR 16 10 2 4 494:439 22 FH 16 9 2 5 470:444 20 Selfoss 16 9 1 6 494:492 19 ÍBV 16 8 2 6 452:430 18 Stjarnan 16 4 5 7 421:438 13 KA 16 5 1 10 431:466 11 Fram 16 4 2 10 378:409 10 Fjölnir 16 2 1 13 415:476 5 HK 16 2 0 14 406:469 4 Olísdeild kvenna KA/Þór – Afturelding .......................... 30:12 Haukar – Fram..................................... 22:28 Valur – ÍBV........................................... 21:19 Staðan: Fram 14 13 0 1 437:296 26 Valur 14 11 1 2 387:285 23 Stjarnan 14 6 3 5 349:340 15 HK 14 6 2 6 380:389 14 Haukar 14 5 2 7 305:342 12 KA/Þór 14 6 0 8 327:377 12 ÍBV 14 4 2 8 305:332 10 Afturelding 14 0 0 14 260:389 0   Dominos-deild karla ÍR – Haukar........................................ 93:100 Þór Þ. – Fjölnir ..................................... 90:82 Keflavík – Þór Ak ................................. 97:89 Tindastóll – KR..................................... 80:76 Staðan: Stjarnan 16 14 2 1460:1302 28 Keflavík 17 13 4 1522:1382 26 Tindastóll 17 11 6 1483:1412 22 Haukar 17 11 6 1530:1459 22 KR 17 10 7 1463:1421 20 Njarðvík 16 9 7 1364:1239 18 ÍR 17 8 9 1444:1536 16 Þór Þ. 17 7 10 1370:1396 14 Grindavík 16 6 10 1346:1415 12 Þór Ak. 17 5 12 1460:1620 10 Valur 16 5 11 1278:1389 10 Fjölnir 17 1 16 1436:1585 2 Þýskaland Oldenburg – Alba Berlín .................... 93:88  Martin Hermannsson skoraði 17 stig, átti 4 stoðsendingar og tók 2 fráköst fyrir Alba Berlín en hann lék í 19 mínútur.   HANDBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þremur efstu liðunum í Olísdeild karla í handknattleik tókst ekki að vinna leiki sína í sextándu umferðinni sem leikin var um helgina og fyrir vikið er baráttan í efri hluta deild- arinnar enn að harðna. Haukar eru með tveggja stiga for- ystu þrátt fyrir ósigur gegn FH í Hafnarfjarðarslagnum í fyrrakvöld, 23:20, og liðin tvö sem eru næst á eft- ir þeim, Afturelding og Valur, skildu jöfn, 28:28, í æsispennandi leik á Hlíðarenda í lokaumferð deildarinnar síðdegis í gær. Þetta var aðeins ann- að tap Hauka í sextán leikjum í deild- inni í vetur. Haukar og Valur mætast í afar áhugaverðum leik á Ásvöllum næsta sunnudagskvöld. Eins og sjá má hér til hliðar skilja nú aðeins sjö stig að efstu sjö liðin og Eyjamenn komu sér betur inn í myndina með því að sigra Íslands- meistara Selfyssinga sannfærandi á útivelli í Suðurlandsslag liðanna á laugardaginn, 36:29. ÍR-ingar hafa í undanförnum leikj- um sýnt að þá verður að taka alvar- lega. Þeir eru í fjórða sætinu eftir sannfærandi útisigur á Stjörnunni, 33:26, og eru jafnir Valsmönnum að stigum eftir þrjá sigurleiki í röð. Erfið staða Fjölnis og HK Framarar sigruðu Fjölni í algjör- um lykilleik í fallbaráttunni í Safa- mýri í gær, 21:20, og þar með skilja fimm stig liðin að í tíunda og ellefta sætinu. Fjölnir var lengi yfir í leikn- um og hefði með sigri verið aðeins stigi á eftir Frömurum. Það hefði líka verið akkur fyrir HK-inga sem unnu góðan sigur gegn KA á Akureyri á laugardaginn, 26:23, og unnu þar sinn annan leik á tíma- bilinu. Sigur Framara sló hinsvegar verulega á vonir HK og Fjölnis um að halda sér í deildinni því Fram er nú með 10 stig, Fjölnir 5 og HK 4 stig. Fram og HK mætast í 18. umferðinni og þar gætu úrslitin ráðist end- anlega.  Birkir Benediktsson jafnaði fyr- ir Aftureldingu í 28:28 á Hlíðarenda í gær. Finnur Ingi Stefánsson gat tryggt Val sigurinn en skaut í þverslá úr vítakasti þegar 30 sekúndur voru eftir. Finnur Ingi skoraði 7 mörk fyr- ir Val og Guðmundur Árni Ólafsson 8 mörk fyrir Aftureldingu.  Andri Heimir Friðriksson skor- aði 6 mörk fyrir Fram og Þorgrímur Smári Ólafsson 5 í sigrinum á Fjölni í gær. Birgir Steinn Jónsson skoraði 9 mörk fyrir Fjölni.  Þjóðverjinn Phil Döhler varði 17 skot í marki FH í sigrinum á Hauk- um í Hafnarfjarðarslagnum í fyrra- kvöld. Einar Rafn Eiðsson skoraði 6 mörk fyrir FH og Orri Freyr Þor- kelsson 8 mörk fyrir Hauka.  Blær Hinriksson átti stórleik fyrir HK í sigrinum gegn KA á Ak- ureyri og skoraði 11 mörk fyrir Kópavogsliðið. Reynsluboltinn Davíð Hlíðdal Svansson varði 11 skot í marki liðsins. Daníel Örn Griffin skoraði 8 mörk fyrir KA-menn.  Hinn þrautreyndi Sturla Ás- geirsson sem verður fertugur í sumar skoraði 8 mörk fyrir ÍR í sigrinum á Stjörnunni og Hafþór Már Vignisson skoraði 6. Tandri Már Konráðsson var með 8 mörk fyrir Garðbæinga sem eru í baráttu við KA og Fram um áttunda og síðasta sætið í úr- slitakeppninni.  Hákon Daði Styrmisson skoraði 10 mörk fyrir ÍBV og Haukur Þrast- arson 10 mörk fyrir Selfyssinga í hin- um sannfærandi útisigri Eyjamanna á meisturunum á laugardaginn. Sjö stig á milli sjö efstu liða  Jafnt í slag Vals og Aftureldingar Ljósmynd/Sigurður Ragnarsson Mark? Phil Döhler, markvörður FH, Adam Haukur Baumruk úr Haukum og Bjarki Bóasson dómari horfa á eftir boltanum í Hafnarfjarðarslagnum. Íslandsmeistarar SA náðu níu stiga forskoti á toppi Hertz-deildar karla í íshokkí með öruggum 6:1-sigri á SR á heimavelli á laugardags- kvöldið. Heiðar Örn Kristveigar- son, Ingvar Þór Jónsson, Dagur Freyr Jónasson, Jóhann Már Leifs- son og Kristján Árnason, sem gerði tvö síðustu mörkin, skoruðu fyrir SA en Níels Þór Hafsteinsson jafn- aði fyrir SR um miðja aðra lotu. SA er með 27 stig og Fjölnir 18 en SR er á botninum, án stiga. Það er því endanlega ljóst að SA og Fjölnir leika til úrslita um titilinn. Úrslitin verða milli SA og Fjölnis Ljósmynd/Þórir Tryggvason Sigruðu Akureyringar fagna marki Ingvars Jónssonar gegn SR. Handknattleiksmaðurinn Gísli Krist- jánsson meiddist á öxl í fyrsta deild- arleik sínum með þýska liðinu Magdeburg í gær, þegar það tapaði 29:23 gegn Flensburg á útivelli. Gísli var nýkominn af stað eftir að hafa meiðst á öxl í leik með Kiel í nóv- ember og var í janúar leystur undan samningi sínum þar. Á heimasíðu Magdeburg kemur fram að farið hafi verið með Gísla á sjúkrahús og Benny Wiegert, þjálfari liðsins, sagði á vef þýska handknattleikssambandsins að hugur sinn væri hjá Gísla sem myndi fá allan stuðning félagsins. Gísli meiddist aftur í fyrsta leik AFP Óheppinn Gísli Þorgeir Krist- jánsson er meiddur á ný. Lloris í marki Tottenham varði víta- spyrnu Riyad Mahrez og City missti Oleksandr Zinchenko af velli með rautt spjald áður en Steven Berg- wijn og Son Heung-Min skoruðu og tryggðu Tottenham 2:0 sigurinn sem lyfti liðinu í fimmta sætið. Óskabyrj- un hjá Bergwijn hinum hollenska í fyrsta leik sínum með Tottenham. Liverpool hélt hreinu í tíunda sinn ENGLAND Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eftir ósigur Manchester City gegn Tottenham í London í gær, 2:0, ligg- ur fyrir að Liverpool þarf „aðeins“ að ná 91 stigi til að verða enskur meistari í knattspyrnu í fyrsta skipti í þrjátíu ár. Liverpool vann Southampton 4:0 á laugardaginn og er komið með 73 stig, 22 meira en ríkjandi meistarar City sem fyrir vikið geta nú aðeins náð 90 stigum. Sex sigrar í þrettán leikjum ættu ekki að vera stórt vandamál fyrir Jürgen Klopp og hans menn sem setja hvert metið á fætur öðru og hafa unnið 24 af 25 leikjum sínum í deildinni. Nú snýst þetta ekki lengur um hvort Liverpool verði meistari heldur hversu fljótt liðið tryggi sér titilinn og hve mörg met það slái áð- ur en tímabilið er úti. Næstu leikir Liverpool eru gegn Norwich, West Ham, Watford, Bo- urnemouth, Everton og Crystal Pa- lace og vinni liðið þessa leiki og inn- byrði umrædd átján stig á mettíma, verður titillinn í höfn 21. mars, í næsta leik áður en kemur að stór- leiknum við Manchester City í 32. umferð deildarinnar á Etihad- leikvanginum 4. apríl. Fyrr ef City tapar fleiri stigum í millitíðinni en liðið á m.a. útileiki við Leicester, Manchester United og Chelsea í næstu sex umferðum. Tæknilega séð getur Liverpool enn tryggt sér tit- ilinn á hlaupársdag, 29. febrúar. Tottenham er hinsvegar komið af alvöru í slaginn um Meistaradeild- arsæti eftir sigurinn á City. Hugo í síðustu ellefu leikjum í deildinni en slapp vel með 0:0 inn í leikhléið gegn frísku liði Southampton á laugardag- inn. Í seinni hálfleik sýndu meist- araefnin hinsvegar hversvegna þeir eru langefstir. Alex Oxlade- Chamberlain og Jordan Henderson skoruðu áður en Mohamed Salah innsiglaði sigurinn með tveimur mörkum, 4:0.  Bruno Fernandes fór beint í byrjunarlið Manchester United, tveimur dögum eftir að hann var keyptur af Sporting Lissabon. Nær- vera hans nægði þó aðeins til jafn- teflis á heimavelli, 0:0 gegn Wolves, og það þýðir að United hefur ekki skorað í þremur leikjum í deildinni í röð.  Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp mark með hornspyrnu fyrir kólumb- íska miðvörðinn Yerry Mina þegar Everton vann upp 2:0 forskot Wat- ford og vann góðan útisigur, 3:2. Samt missti liðið Fabian Delph af velli með rautt spjald þegar staðan var 2:2 en Theo Walcott skoraði sig- urmarkið í uppbótartíma.  Sheffield United gefur ekkert eftir og nýliðarnir virðast fyrir al- vöru ætla að vera með í baráttunni um Evrópusæti. Þeir unnu Crystal Palace í London á sjálfsmarki, 1:0, og hafa ekki tapað í fimm útileikjum í London í vetur. AFP Einbeittur José Mourinho gefur Harry Winks og Son Heung-Min fyrirskip- anir eftir að Son kom Tottenham í 2:0 gegn Manchester City í gær. Á hlaupársdag eða 21. mars?  Liverpool þarf í mesta lagi sex sigra í þrettán leikjum til að verða meistari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.