Morgunblaðið - 03.02.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.02.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is DUX PASCAL SYSTEM Sérsniðna gormakaerfið Líkamar allra eru einstakir. Þess vegna býður Pascal de Luxe yfirdýnan upp á sérsniðin þægindasvæði sem gerir tveimur einstaklingum kleift að velja fullkomnu stillinguna fyrir axlirnar, neðra bakið og fótleggina þeirra. Pascal kerfið er í boði fyrir öll DUX rúm, annað hvort sem fellt inn í rúmið eða sem sérstök yfirdýna. Á föstudag birti fjármála- ogefnahagsráðuneytið fróðlega tölulega samantekt um lífskjör hér á landi og í þeim löndum sem við berum okkur gjarnan saman við. Fyrsti saman- burðurinn var á meðallaunum og þar trónir Ísland á toppnum, en á eftir koma Lúxemborg, Sviss, Bandaríkin og Danmörk.    Samanburður á dreifingu teknaá milli fólks, þ.e. jöfnuði, sýnir að Ísland er ekki aðeins með hæstu tekjurnar, heldur einnig næstmestan jöfnuð. Og þegar fá- tækt er mæld þá stendur Ísland best, þegar horft er á alla aldurs- hópa og einkum þó þegar horft er á elsta hópinn.    Ein helsta skýringin á þessusést á enn einum samanburð- inum, en þar kemur fram að hlut- fall verðmætasköpunar sem fer í laun er hvergi hærra en hér á landi. Þetta þýðir að hvergi bera launamenn jafn mikið úr býtum og hér á landi og þar með að hvergi fá fjármagnseigendur minna.    Hlutfall launa af verðmæta-sköpun er einnig með hæsta móti í sögulegu samhengi. Allt ætti þetta að vera til þess fallið að gleðja launamenn hér á landi og þá sem eru í forystu fyrir félög þeirra.    Um leið er augljóst að ekkertsvigrúm er til að ganga lengra en gert hefur verið í launa- hækkunum nema til komi aukin verðmætasköpun. Og aukin verð- mætasköpun er einmitt það sem allir ættu að sameinast um en hún fæst ekki með vinnudeilum og verkfallsátökum. Mögnuð heimsmet STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Uppsjávarveiðiskipið Polar Amaroq er við leit og mælingar á hugsan- legum loðnugöngum við Suðaust- urland. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson fer af stað árdegis í dag og Aðalsteinn Jónsson SU fer vænt- anlega af stað frá Eskifirði á morg- un. Polar Amaroq hélt í leiðangurinn um helgina og leitaði með allri suð- urströndinni og var í gærkvöldi að leita við Suðausturland. Birkir Bárðarson leiðangursstjóri sagði í gærkvöldi að lítið hefði sést, enn sem komið væri. Loðnan virtist ekki vera komin að ströndinni. Birkir fer með Árna Friðrikssyni norður fyrir land. Ætlunin er að leita úti af Vestfjörðum og Norður- landi. Aðalsteinn Jónsson SU mun leita með Polar Amaroq við Aust- firði og síðan munu skipin mæta Árna og ljúka yfirferðinni, ef allt gengur eftir áætlun. Í loðnuleiðangri í síðasta mánuði sem þrjú skip tóku einnig þátt í fannst ekki næg loðna til þess að Hafrannsóknastofnun gæti mælt með útgáfu á loðnukvóta. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Loðnuskip Polar Amaroq við bryggju áður en lagt var í janúarleiðangur. Önnur umferð loðnuleitar er hafin  Polar Amaroq er við Suðausturland Um 2.200 Reykvíkingar höfðu í gær- kvöldi skrifað undir ósk um að fram fari íbúakosning um breytingar á deiliskipulagi fyrir þróunarreit við Stekkjarbakka í Elliðaárdal sem borgarstjórn hefur samþykkt. Þar er gert ráð fyrir miklu landi undir gróðurhvelfingu og þjónustu. Til þess að krafan nái fram að ganga gagnvart borginni þurfa 20% kosningabærra Reykvíkinga að skrifa undir, eða um 18 þúsund manns. Hollvinir Elliðaárdals standa fyrir undirskriftasöfnuninni sem fram fer á vef Þjóðskrár og hafa þeir tímann fram til 28. febrúar til að ná tilskildum fjölda. Í íbúakosningunni verður þá spurt að því hvort fólk sé fylgjandi eða andvígt skipulaginu. 2.200 Reykvíkingar hafa skrifað undir Morgunblaðið/Hari Elliðaárdalur Gróðurhvelfingin á að rísa við Stekkjarbakka. Hollvina- samtökin tala um það sem enn eina skerðingu á útivistarsvæði dalsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.