Morgunblaðið - 03.02.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.02.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2020 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki er búist við öðru en að allir eða allflestir erlendir starfsmenn sjávar- útvegsfyrirtækjanna í Grindavík skili sér til vinnu í dag. Björgunar- sveitarmaður í Grindavík sagði frá því í útvarpsþætti á laugardag að töluvert af fólki hefði yfirgefið Grindavík þegar harðir jarð- skjálftar riðu yfir. „Ég var að koma frá vígslu nýs glæsilegs íþróttahúss. Tímasetningin er löngu ákveðin og við héldum okkur við hana. Þetta var notaleg stund með íbúum, gestum og gangandi. Þetta stendur upp úr í dag,“ sagði Fannar Jónasson, bæjar- stjóri í Grindavík, þegar hann var spurður tíðinda. 600 með erlent ríkisfang „Ég hef líka heyrt þetta, að ein- hverjir hafi farið úr bænum. Það kemur ekki á óvart. Þeir sem eiga hér sumarbústaði eða afdrep fóru í burtu um helgina. Það er eðlilegt að fólk vilji víkja af bæ þegar svona stendur á, fara í annað umhverfi. Ég veit ekki til þess að menn hafi farið í burtu til frambúðar og reikna með að flestir verði komnir í sína vinnu í fyrramálið,“ segir Fannar. Um 600 Grindvíkingar eru með er- lent ríkisfang, samkvæmt upplýsing- um bæjarstjórans. Þar af eru um 400 Pólverjar og 30 Taílendingar en færri af öðru þjóðerni. Fréttir hafa borist af því að margir þeirra hafi orðið skelkaðir enda ekki vanir jarð- skjálftum úr sínu heimalandi og tengi atburðina jafnvel við afleiðing- ar stríðsátaka. Pétur H. Pálsson, framkvæmda- stjóri Vísis, segir að það sé misjafnt hvernig erlent fólk upplifi jarð- skjálftana, rétt eins og við hin. Ein- hverjir séu á mörkum þess að þola þetta en aðrir eigi gott með það. Seg- ist hann til dæmis hafa fullan skiln- ing á því þegar starfsmaður vilji vera heima hjá konu sinni og nýfæddu barni, þegar svona stendur á. „Við höfum reynt að halda utan um starfsfólkið og halda því upp- lýstu. Mér finnst fólk taka þessu al- mennt með ró. Þá hefur bærinn einn- ig haldið vel utan um upplýsinga- gjöf,“ segir Pétur. Hann á von á góðum heimtum á fólki til vinnu nú í dag. Enginn hafi látið vita um forföll. Fannar segir að Grindavíkurbær hafi gert sér sérstakt far um að halda erlendum starfsmönnum sem búsettir eru í bænum upplýstum. „Þetta fólk hefur ekki mikið bakland hér, nema hjá löndum sínum sem eru í svipuðum sporum. Við þurfum að upplýsa fólkið. Höfum látið þýða all- ar leiðbeiningar á pólsku, taílensku og ensku. Starf okkar og fyrirtækj- anna við upplýsingagjöf eykur ör- yggiskennd hjá fólki og vonandi verður það rólegra,“ segir Fannar. Spurðu annarra spurninga Grindavíkurbær var með opið hús í menningarhúsinu Kvikunni í fyrra- dag. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, fór yfir stöðuna og svaraði spurningum. Hópur Pólverja mætti á fundinn og segir Fannar að Magnús hafi lagt sig fram við að upplýsa þá. Magnús Tumi sagði við mbl.is í gær að Pólverjarnir hefðu eðlilega haft aðrar spurningar en margir Ís- lendingar enda margir að upplifa jarðskjálfta í fyrsta skipti. „Ég benti á að hús væru byggð eftir ströngum stöðlum og yrðu ekki fyrir neinum skemmdum í þeim skjálftum sem verða og þyldu miklu öflugri skjálfta. Fólk þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að húsin stæðu ekki.“ Fannar bæjarstjóri segir að vel hafi gengið að uppfæra áætlanir. Lokadrög rýmingar- og viðbragðs- áætlunar verði lögð fram nú eftir helgi. „Við eigum gott bakland í al- mannavörnum, björgunarsveit og hjá jarðvísindamönnum. Það fyllir mann öryggiskennd að vinna með þessu fólki,“ segir Fannar en hann situr í almannavarnanefnd. Hann veit til þess að fólk hefur notað helgina til að festa þunga skápa til að draga úr hættu á slysum. Þá segist hann vita til þess að íbúar hafi tekið til gleraugu, lyf og nauð- synlegasta fatnað og sett á vísan stað ásamt bíllyklum til að geta yfirgefið hús sín á stuttum tíma, ef svo ólík- lega vildi til að það þyrfti að gera. Eiga von á öllu starfs- fólki til vinnu í dag  Áhersla lögð á að upplýsa Pólverja og aðra erlenda íbúa Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grindavík Ró er yfir höfninni en ólga undir og við bæjarfjallið Þorbjörn. Fannar Jónasson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stærsti jarðskjálfti sem vitað er um að hafi orðið á Reykjanesskaga varð 23. júlí 1929. Upptök hans voru ná- lægt Brennisteinsfjöllum, líklega á hinu svokallaða Hvalhnúks- misgengi. Stærðin var 6,3 og fannst skjálftinn víða um land og olli um- talsverðu tjóni í Reykjavík og ná- grenni. Kemur þetta fram í sögulegu yf- irliti sem Páll Einarsson, fyrrver- andi prófessor við Háskóla Íslands og nú starfandi hjá Jarðvísinda- stofnun, hefur tekið saman vegna hræringanna við Grindavík. Yfirlitið nær yfir tímabilið frá árinu 1151. Þá var eldur uppi í Trölladyngju. Eldur kom upp úr sjó fyrir utan Reykjanes árið 1211 og 1240 voru miklir land- skjálftar fyrir sunnan land og eldur fyrir Reykjanesi. Var síðasttalda gosið talið það síðasta í hviðu slíkra atburða sem álitið er að hafi byrjað stuttu eftir 870. Samkvæmt yfirlitinu hafa komið þrettán jarðskjálftahrinur eða stakir skjálftar þar sem jarðskjálftar hafa verið 5 að stærð eða stærri á þessari öld og þeirri síðustu. Stærsti skjálftinn í þeirri hrinu sem nú stendur yfir og á upptök norðaustan við Grindavík var 4,3 að stærð og kom á föstudagskvöldið. Fjöldi slíkra skjálfta hefur orðið á Reykjanesi á síðustu áratugum. Stærstu skjálftarnir á síðustu tutt- ugu árum urðu á árinu 2000, í kjöl- far Suðurlandsskjálftans 17. júní. Sá stærsti á Reykjanesi, 5,9 að stærð, átti upptök undir Kleifarvatni. Féll vatnsborðið um 4 metra á næstu vik- um þar á eftir. Skjálftar yfir 5 að stærð urðu 2003 í Krýsuvík og 2013 skammt austan Reykjaness. Töluvert hefur dregið úr jarð- skjálftahrinunni, samkvæmt upplýs- ingum sem Veðurstofa Íslands birti í gær. Land heldur áfram að rísa og í heildina er það orðið yfir 4 cm frá 20. janúar. Með landrisi megi búast við áframhaldandi jarðskjálfta- virkni. Á þrettánda hundrað jarðskjálfta hefur orðið við Grindavík í hrinunni sem nú stendur yfir. Enginn hefur náð stærðinni 4, nema sá sem varð á föstudagskvöldið, en nokkrir náð yf- ir 3. Í gær urðu þrír skjálftar 3 að stærð og yfir. Þeir stærstu urðu í gærmorgun og gærkvöldi, 3,3 að stærð, og fundust í Grindavík. Mynd af skjálftavefsjá Veðurstofu Íslands Skelfur Yfir 1.200 skjálftar hafa orðið í nágrenni Grindavíkur frá 20. janúar. Stærsti skjálft- inn fannst víða  Dregur úr virkni á Reykjanesi Safnstjóri Sagnheima, byggðasafns Vestmannaeyja, hefur ekki fengið neinar ábendingar um hvaðan fall- byssukúlan sem fannst í geymslum safnsins er komin eða hvernig hún komst þangað. Arnar Sigurmunds- son, fyrrverandi framkvæmdastjóri í Vestmannaeyjum og áhugamaður um sögu Eyjanna, hefur farið í gegnum aðfangalistana sem Þor- steinn Þ. Víglundsson, stofnandi safnsins, birti en ekki fundið neitt um kúluna. Sprengisérfræðingar Landhelgis- gæslunnar fóru til Eyja til að sækja sprengjuna sem við athugun reynd- ist óvirk. Þeir hafa verið að afla upp- lýsinga um hvaðan kúlan kynni að vera. Í rannsóknarferð til undirbúnings byggingu vita á eyjunni Þrídröngum vestur af Heimaey á árinu 1938 fundust tvær fallbyssukúlur, 30 kg þungar. Í grein í Morgunblaðinu 2009 er vitnað til dagbókar Hjálm- ars Jónssonar. Hann segir þar að þeir hafi náð kúlunum og getur þess að þar séu einnig margar kúlur sömu gerðar kafreknar í bergið. Ekki koma fram neinar skýringar á þessu en helst er hægt að ímynda sér að varðskip eða herskip hafi not- að eyjuna sem skotskífu við æfingar, einhvern tímann fyrir árið 1938. Arnar hefur heyrt að eyjarnar Geir- fuglasker eða Þrídrangar hafi verið notaðar við skotæfingar herskipa en hann tengir það frekar seinni heims- styrjöldinni en þeirri fyrri. Lætur hann þess getið að kúla sé föst í berginu í Ystakletti en hún sé miklu eldri en sú sem nú fannst. Sömu sögu sé að segja um fallbyssukúlu sem til er í safninu og fannst við dýpkun hafnarinnar á árinu 1936. helgi@mbl.is Kúlur fundust í Þrídröngum 1938  Ekki vitað hvaðan fallbyssukúlan er Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Skotfæri Fallbyssukúlan úr Eyjum er 165 millimetrar að stærð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.