Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 1

Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 2. F E B R Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  45. tölublað  108. árgangur  Úrval afmælistilboða www.hekla.is/skodasalur HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 600.000 til 800.000 kr. afmælisafsláttur! EIVØR PÁLS- DÓTTIR EIN MEÐ GÍTARINN FLÓRGOÐI FJÖLGAR SÉR FUGLALÍF Á RAUÐAVATNI 14MINNINGARTÓNLEIKAR 45 Helgi Bjarnason Stefán E. Stefánsson Sérstaklega góð ávöxtun var af eign- um lífeyrissjóða landsins á síðasta ári. Þannig nam ávöxtun eigna Líf- eyrissjóðs verslunarmanna 18,7% sem svarar til 15,6% hreinnar raun- ávöxtunar. Formaður Landssam- taka lífeyrissjóða telur að ávöxtun hafi verið góð hjá flestum sjóðanna og þeir hafi almennt náð tveggja stafa tölu í ávöxtun. „Góður árangur á síðasta ári hefur mikla þýðingu fyrir lífeyrissjóðina og sjóðsfélaga. Tryggingafræðileg staða þeirra hækkar. Lífeyrissjóða- kerfið í heild er gott og skilar miklu og þjóðin nýtur ávaxtanna af því,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, for- maður Landssamtaka lífeyrissjóða. Hún tekur fram að lífeyrissjóðirnir séu að fjárfesta til langs tíma en að því komi að sjóðsfélagar njóti þess. Ekki mörg svona ár Guðrún segir um ávöxtunina á síð- asta ári að vegna breytinga undir lok ársins 2018 hafi lífeyrissjóðirnir misst niður ávöxtun. Hins vegar hafi gengið vel að ná henni til baka á árinu 2019 og gott betur en það. Vextir hafa verið lágir í Evrópu og lækkað hér á landi. Guðrún segir að Lífeyrissjóður verslunarmanna sé með stórt erlent eignasafn sem hafi verið að stækka og þar hafi fengist góð ávöxtun. Hún á von á að það verði krefjandi verkefni að ná hárri ávöxtun í ár. „Mér er til efs að við fáum mörg svona góð ár,“ segir hún. Þegar tryggingafræðileg staða líf- eyrissjóða nær 10% markinu ber þeim að auka réttindi sjóðsfélaga. Lífeyrissjóður verslunarmanna er með 8,6% stöðu og telur Guðrún að staða hans sé sterkust. Ekki eru því líkur á aukningu réttinda í ár. »20 Ávöxtunin í tveggja stafa tölum  Mjög gott ár hjá lífeyrissjóðunum  LIVE með 15,6% raunávöxtun Lífeyrissjóður verslunarmanna » Sjóðurinn óx um 155 milljarða á síðasta ári, 425 milljónir á dag. » Vægi erlendra eigna jókst og var um áramót 40% eignasafns- ins. » Ávöxtun eigna nam 18,7%. Tuttugu ára meðalávöxtun er 4,1%. Nærri 30 manns tóku þátt í æfingu Slysavarnaskóla sjó- manna sem haldin var á Sundunum út af Reykjavík í gærdag. Þrettán úr þessum hópi voru frá Grænlandi, sjómenn sem nú eru hér á landi til að nema ýmis mik- ilvæg öryggisatriði viðvíkjandi starfi þeirra. Sá góði árangur sem Íslendingar hafa náð við fækkun sjóslysa hefur vakið athygli víða um lönd, m.a. meðal Grænlendinga. Hilmar Snorrason, sem stýrir Slysa- varnaskólanum, segir mjög ánægjulegt að geta lagt því máli lið. Slysavarnanámskeiðin sem sjómenn sækja standa jafnan í eina viku og eru haldin um borð í Sæbjörgu, sem á sitt fasta pláss við bryggju í austurhöfninni í Reykja- vík. Lokapunktur þeirra eru svo verklegar æfingar þeg- ar siglt er með björgunarskipinu Ásgrími S. Björnssyni út á Kollafjörðinn. Fastur liður í æfingunum er þegar þátttakendur eru hífðir af dekki skipsins með línu upp í þyrlu frá Land- helgisgæslunni. Er sú þjálfun bæði sjómönnunum og björgunarfólki afar mikilvæg. Æfingin í gær þótti ganga ljómandi vel, enda veðrið með ágætum. Ljósmyndari frá Morgunblaðinu fékk að slást í för. »4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Æfðu björgun úr skipi um borð í þyrlu frá Gæslunni  Grænlendingar sækja öryggisfræðslu til Íslands Guðrún M. Njálsdóttir og GuðfinnurTraustason búa í sumarhúsi í Kerhrauni í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þau fá ekki að eiga þar lögheimili. Í þjóðskrá eru þau skráð með „ótilgreint“ heimili í 101 Reykja- vík. Guðrún segir að því fylgi margs konar óhagræði eins og að fá ekki póstinn heim og að vera álitin heimilislaus þegar hún rekur erindi. „Ég komst að því að sveitarstjórnin hafði breytt sumarhúsum, sem voru í deili- skipulögðu sumarhúsahverfi, í íbúðarhús,“ sagði Guðrún. Þeim var neitað um það. Mál- ið var kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. »12 Hjón Guðfinnur og Guðrún fengu ekki húsið skráð sem íbúðarhús. Með „ótilgreint heimili“ í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.