Morgunblaðið - 22.02.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Gæða sófar á góðu verði
Model 9805
L162 cm leður verð frá 369.000,-
L185 cm leður verð frá 389.000,-
Mads Bryde Andersen,lagaprófessor við Kaup-
mannahafnarháskóla, var gestur
á hundrað ára afmæli Hæsta-
réttar og flutti þar erindi. Hann
ræddi meðal annars Mannrétt-
indadómstól Evr-
ópu og sagðist í
viðtali við Morg-
unblaðið telja að
aðferð þess dóm-
stóls við að semja
dóma sé gagn-
rýniverð. Þar var
haft eftir honum
að „dómstóllinn fái
árlega um 50 þúsund umsóknir
um málsmeðferð og vísi flestum
frá með stuttri skriflegri umsögn
lögfræðings hjá dómstólnum sem
einhver dómaranna skrifi undir.
Sé hins vegar samþykkt að takamál fyrir fari það í hendur
dómara sem hafi forræði á mál-
inu. Sá semji síðan drög að dóms-
niðurstöðu með aðstoð lögfræð-
inga dómstólsins. Hún sé síðan
borin upp í viðkomandi und-
irdeild. Málflutningur sé skrif-
legur. Við það tilefni geti aðrir
dómarar lýst gagnstæðum sjón-
armiðum. Þá geti þurft sterk bein
til að ganga gegn niðurstöðu lög-
fræðinga dómstólsins og sjón-
armiðum dómara aðildarríkis sem
málið varðar.
Dómararnir hafi tilhneigingutil að fylgja dómara frá að-
ildarríkinu.“
Þetta er lýsing á afskaplegaundarlegum dómstóli, sem
stendur ekki undir nafni í hefð-
bundnum skilningi þess orðs.
Þess vegna er ekki síður und-arlegt að látið sé eins og um
hefðbundinn dómstól sé að ræða
og jafnvel að þessi skrýtna stofn-
un sé æðsti dómur um íslensk
málefni.
Mads Bryde
Andersen
Dómstóll?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Nýr glergangur sem byggður hefur verið á milli
gistiálma Stracta-hótelsins á Hellu verður jafn-
framt notaður til norðurljósaskoðunar. Gangurinn
var opnaður í gær og hlaut nafnið Vetrarbrautin.
Gangurinn tengir tvo syðstu herbergisgangana
við aðalbyggingu hótelsins. Mun gangurinn auka
þjónustu við gesti hótelsins, segir í tilkynningu.
Hugmyndin með vetrarbrautinni er að gestir
hótelsins geti setið undir stjörnubjörtum himni og
notið norðurljósanna innandyra. Einnig verður
hægt að njóta kvöldhressingar, setjast til borðs
með snarl eða tylla sér á gluggasyllur í ganginum
en þær eru hannaðar sem setbekkir.
Við gerð gangsins myndast rými sem talið var
tilvalið sýningarrými fyrir myndlistarmenn.
Heimamaðurinn Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir
ríður á vaðið með sýningunni Veðramót. Hún opn-
aði sýninguna í gær, við opnunarathöfnina.
Hreiðar Hermannsson, eigandi Stracta-hótels,
er að undirbúa enn frekari stækkun hótelsins.
Næstu áfangar eru bygging stórs fundar- og ráð-
stefnusalar og síðan gistingar í sérhæfðum smá-
hýsum. helgi@mbl.is
Vetrarbrautin opnar á Hellu
Gestir geta setið inni og
skoðað norðurljósin
Ljósmynd/Aðsend
Vetrarbrautin Norðurljósagangurinn í Stracta-
hótelinu hefur verið opnaður.
Bæjarstjórn Kópavogs hefur sam-
þykkt að auglýsa tillögu að breyttu
deiliskipulagi fyrir lóð Smáralindar,
Hagasmára 1. Í tillögunni er gert
ráð fyrir að þriggja hæða bílastæða-
hús verði reist norðan Smáralindar.
Í tillögunni felst jafnframt að lóða-
mörk Hagasmára 1 breytist við að-
komugötu frá Fífuhvammsvegi að
Smáralind og aðkomugatan hliðrast
að hluta til vesturs næst Smáralind.
Fyrirkomulag bílastæða og gatna-
tengingar næst norðurhlið Smára-
lindar breytist. Lóð Smáralindar
mun stækka um tæplega 1.600 fer-
metra.
Fram kemur í greinargerð með
tillögunni að mikil uppbygging hafi
átt sér stað í Kópavogsdal, nú síðast
sunnan Smáralindar. Aukin umferð
og aðsókn í verslanir Smáralindar
kalli á fleiri bílastæði. Nýja bíla-
stæðahúsið komi við hlið núverandi
bílastæðapalls, sem gengur m.a. yfir
Fífuhvammsveg. Núverandi bíla-
stæði eru 170 en verða eftir breyt-
ingar 374. Bílastæðum mun því
fjölga um 204.
Tillaga er aðgengileg á heimasíðu
bæjarins, www.kopavogur.is og í
þjónustuveri Kópavogsbæjar að
Digranesvegi 1. Athugasemdir og
ábendingar skulu hafa borist eigi
síðar en 3. apríl nk. sisi@mbl.is
Nýtt bílastæðahús
reist við Smáralind
Morgunblaðið/Ernir
Smáralind Breytingar eru fyrirhugaðar á deiliskipulagi við Smáralind.