Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Goðalandi, Fljótshlíð, föstudaginn 20. mars 2020 og hefst kl. 15:00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga stjórnar um breytingar á 27. gr. samþykkta félagsins. 3. Önnur mál. Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skulu hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins. Reykjavík, 20. febrúar 2020. Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Alls bárust 3.619 tilkynningar um atvik og slys til flugsviðs rannsóknarnefndar samgönguslysa á síðasta ári. Er þar um að ræða svokölluð flugatvik, alvarleg flugat- vik og flugslys. Tilkynningum sem þessum hefur fjölgað mjög hin síð- ari ár og eru sex sinnum fleiri en ár- ið 2007 sem var fyrsta árið eftir að ný reglugerð um aukna tilkynning- arskyldu tók gildi. Þetta kemur fram í yfirliti yfir starfsemi flugsviðs rannsóknar- nefndar samgönguslysa á síðasta ári sem gefið var út nýverið. Í yfirlitinu er rakið að stundum berist fleiri en ein tilkynning um atvik. Þá er þess getið að aukinn fjöldi tilkynninga þýði ekki endilega að minna öryggi sé í flugi heldur frekar að fólk sé duglegra að senda inn tilkynningar ásamt því að flugumferð hafi aukist. Í yfirlitinu kemur fram að RNSA hafi skoðað 48 mál af þeim sem til- kynnt voru og skráð 23 þeirra sem alvarleg flugatvik eða flugslys og tekið til formlegrar rannsóknar. „Á árinu 2019 voru 8 mál skráð sem flugslys en ekkert á árinu 2018 sem verður að teljast nokkuð sérstakt þar sem það hafði ekki gerst síðan 1969. 25 mál reyndust þess eðlis að ákveðið var að rannsaka þau ekki frekar eða færð undir aðra rann- sókn,“ segir í yfirlitinu. Langan tíma getur tekið að rann- saka flugslys og því var einnig unnið að rannsókn eldri mála í fyrra. Alls var 42 málum lokað. Þar af var fimm málum lokið með útgáfu á lokaskýrslu, átta með bókun, þrjú mál voru sameinuð öðrum málum og 26 mál reyndust við nánari skoðun vera flugatvik og voru ekki rann- sökuð frekar. Í lok ársins 2019 voru 26 mál sem ekki var búið að ljúka og er það fjölgun um fimm mál frá fyrra ári. Tvö banaslys urðu í flugi á árinu 2019 en það gerðist einnig árið 2015. Þrjú ár þar á milli voru engin bana- slys á íslensku skráðu loftfari. Alls hafa því 11 einstaklingar farist í sex flugslysum sl. 10 ár á Íslandi. Átta atvik rannsökuð sem flugslys í fyrra Morgunblaðið/Hari Flugslys Frá rannsókn rannsóknarnefndar samgönguslysa á vettvangi flugslyss á Skálafelli í september í fyrra.  Mikil fjölgun á tilkynningum til rannsóknarnefndar Yfir 300 manns tóku þátt í jafnrétt- isþingi sem stjórnvöld stóðu fyrir í Hörpu sl. fimmtudag. Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra setti þingið sem var haldið undir yf- irskriftinni „Kyn, loftslag og fram- tíðin“. Grunnstef þess var að fjalla um samspil jafnréttismála og um- hverfismála í samhengi við heims- markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Aðalfyrirlesari var Hildur Knúts- dóttir rithöfundur og fjallaði hún um hvernig kynjamisrétti í samfélögum hefur aukið á loftslagsvandann og varpaði upp þeirri spurningu hvort vandinn verði yfirhöfuð leystur án jöfnuðar. Í ávarpi sínu rifjaði forsætisráð- herra upp mikilvæga áfanga í þróun jafnréttismála, segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. „Árið í ár er sannkallað tímamóta- ár. Hundrað ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt og kjör- gengi til Alþingis að fullu til jafns við karla. Kvenfélagasamband Íslands fagnar 90 ára afmæli sínu og það gerir líka frú Vigdís Finnbogadóttir, auk þess sem fjörutíu ár eru liðin frá kjöri hennar til forseta Íslands. Fæðingarorlofslögin eru 20 ára, Stígamót eru 30 ára, 50 ár frá því Rauðsokkahreyfingin var stofnuð og á alþjóðavettvangi er þess minnst að 25 ár eru liðin frá samþykkt Peking- yfirlýsingarinnar um réttindi kvenna. Svona mætti áfram telja. Tímamót eru kjörið tækifæri til að líta um öxl,“ sagði Katrín m.a. Yfir 300 gestir á jafnréttisþingi  Samspil jafnréttis og umhverfismála Ljósmynd/Forsætisráðuneytið Jafnréttisþing Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í ræðustól. Gefin var í gær út viðvörun vegna gasmengunar í helli við Eldvörp á Reykjanesi, sem ferðamenn hafa gjarnan gert sér far um að skoða. Eldvörp eru skammt norðan og vestan við fjallið Þorbjörn, en á þeim slóðum hefur land risið að undanförnu svo viðbúnaður er hafður í Grindavík og víðar. Hluti af því eru vikulegar gas- mælingar sem eftir athuganir á fimmtudaginn sýndu lífshættuleg gildi á koltvísýringi og súrefnis- leysi í helli sem er við bílastæði þar sem vinsælt er að leggja upp í skoð- unarferðir um Eldvörpin. Almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra hefur verið gert viðvart vegna þessa sem aftur gerði lög- reglunni á Suðurnesjum viðvart. Áfram mælast jarðskjálftar við Grindavík en landris er í rénun. Engin merki um gosóróa hafa kom- ið fram. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Eldvörp Vinsæll staður sem nú þykir viðsjárverður vegna mengunarhættu. Vara við gasmengun í helli við Eldvörpin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.