Morgunblaðið - 22.02.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 22.02.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 Haukur Þór Hauksson haukur@investis.is / s. 893 9855 Thomas Möller thomas@investis.is / s. 893 9370 Steinn Haukur Hauksson steinn@investis.is / s. 849 8360 Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is Sérfræðingar í sölu fyrirtækja • Sérverslun á Laugavegi með mikla sérstöðu. • Veitingastaður í Mathöllinni á Höfða, góður vöxtur og miklir möguleikar. • Veitingastaður í 101 Reykjavík, ebitda framlegð 25 mkr. • Veitingastaður á Granda, tækifæri fyrir duglegt veitingafólk. • Skemmtistaður í 101 Reykjavík. Mjög góður hagnaður. • Iðnfyrirtæki í Kópavogi, veltir um 140 milljónum, ebitda framlegð um 23 milljónir. • Thai veitingastaður í Árbæ. Vinsæll meðal iðnaðarmanna og íþróttafólks. • Veitingastaður með íslenskan mat í Kópavogi, auðveld kaup, miklir möguleikar. • Fasteignatengt verkefni til sölu. Góður hagnaður til framtíðar. • Indverskur veitingastaður. Vinsæll staður í góðri aðstöðu í mathöll. • Sérverslun á Laugavegi með mikla sérstöðu. • Stimplagerð, tilvalið til sameiningar á öðrum rekstri. • Veitingastaður í 101 Reykjavík, ebitda framlegð 25 mkr. • Ísbúð og grill í Reykjanesbæ, velta um 120 milljónir, góður hagnaður. • Innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir bændur og verktaka. Mikill vöxtur. • Nokkur öflug fyrirtæki í viðskiptum við fyrirtæki (B2B).Tækifæri til sameiningar. • Erum að vinna að nokkrum hótel verkefnum. Meðal fyrirtækja á söluskrá eru þessi: Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þau Guðrún M. Njálsdóttir og Guð- finnur Traustason búa í sumarhúsi í Kerhrauni í Grímsnes- og Grafn- ingshreppi. Húsið var byggt sem heilsárshús. Þau fá ekki að eiga þar lögheimili. Í þjóðskrá eru þau skráð með „ótilgreint“ heimili í 101 Reykjavík. Guðrún segir að því fylgi margs konar óhagræði eins og að fá ekki póstinn heim og að vera álitin heimilislaus þegar hún rekur erindi hjá hinu opinbera. Guðrún hefur set- ið í stjórn Kerhrauns - félags sumar- húsaeigenda frá stofnun þess. Byggðu sér heilsárshús Hún sagði að þeim hjónum hefði verið ljóst þegar þau keyptu lóðina árið 2002 að þau gætu ekki átt þar lögheimili. Þau byggðu svo sumar- húsið sem heilsárshús og ræktuðu lóðina upp. Guðrún segir að húsið standist allar kröfur byggingarreglugerðar. Eftir að hjónin hættu að vinna ákváðu þau að flytja í sumarhúsið 2017 í þeirri von að reglur sveitarfélagsins um búsetu yrðu rýmkaðar, líkt og gert hafði verið víða annars staðar. „Ég komst að því að sveitar- stjórnin hafði breytt sumarhúsum, sem voru í deiliskipulögðu sumar- húsahverfi, í íbúðarhús,“ sagði Guð- rún. Hún fór að leita í fundargerðum sveitarstjórnarinnar og sá að maður fékk leyfi til byggingar sumarhúss árið 2010. Þremur árum síðar sendi hann beiðni um að breyta sumarhúsi sínu í íbúðarhús og fékk leyfi til þess. Tveimur árum seinna sótti ná- granni hans um það sama og fékk það einnig samþykkt. „Þetta var auðvitað fordæmisgefandi. Það er bannað að mismuna fólki. Okkur finnst þetta óréttlátt,“ sagði Guðrún. Kostur að hafa lögheimili Hún segir að með því að breyta sumarhúsi í íbúðarhús sé hægt að skrá þar lögheimili. Auk þess fáist ýmis þjónusta eins og að fá póstinn. Einnig þurfi þau ekki að borga fjár- magnstekjuskatt af auknu verðmæti hússins við sölu, sé það íbúðarhús, eins og gildir um sölu á sumarhúsi. Eftir að hjónin fluttu í sumarhúsið reyndi Guðrún að skrá lögheimili þeirra þar hjá Þjóðskrá en það gekk ekki. Þau voru spurð hvort þau gætu ekki skráð lögheimilið hjá sonum sínum á Akureyri? Einnig var þeim sagt að það gengi ekki að skrá lög- heimili í sumarhúsi í Grímsnes- og Grafningshreppi, þótt það væri hægt víða annars staðar. Guðrún sagði að við síðustu sveitarstjórnar- kosningar hefðu 70-80 einstaklingar verið „óskráðir í hús“ í sveitarfé- laginu. Þau sóttu um slíka skráningu en fengu ekki. „Það er fullt af fólki sem býr hér í sumarhúsum og stund- ar héðan vinnu,“ sagði Guðrún. Eftir kosningarnar kærði hrepp- urinn Þjóðskrá fyrir að leyfa fólki að vera „óskráð í hús“. Guðrún sagði að sveitarfélagið hefði síðar verið dæmt til að heimila slíka skráningu. Hún kvaðst hafa verið orðin pirruð á framkomu sveitarfélagsins og því ákveðið að sækja ekki um það til sveitarstjórnar að fá að vera „óskráð í hús“ í póstnúmeri 805. Voru hvött til að kæra Lögfræðingur hvatti hjónin til að kæra málið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, því þau hefðu orðið fyrir mismunun. Í úrskurði nefndarinnar sem kveðinn var upp 7. febrúar kemur m.a. fram að sveitarfélagið hafi borið því við að synjun erindis hjónanna byggðist á því að lóð þeirra sé í mjög stóru hverfi fyrir frístundabyggð. Sveitarstjórn hafi ekki heimilað breytta landnotkun stakrar lóðar við slíkar aðstæður. Varðandi þær lóðir þar sem leyft var að breyta land- notkun séu aðstæður allt aðrar og því hafi notkun þeirra verið breytt úr frístundabyggð í landbúnaðar- svæði. Auk þess sé stutt þaðan í að- alveg og gott að þjónusta lóðirnar með tilliti til fastrar búsetu. Úrskurðarnefndin bendir á að Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóa- hreppur, Grímsnes- og Grafnings- hreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur hafi skipað sameiginlega Skipulagsnefnd uppsveita samkvæmt sérstökum samningi. Nefndin fari með skipu- lagsmál og byggingarmál. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skuli samvinna sveitarfélaga ávallt grundvallast á samningi þeirra sem öðlast ekki gildi fyrr en hann hefur fengið staðfestingu viðkomandi sveitarstjórna. Þá þurfi einnig að fá staðfestingu ráðuneytis sem á að birta í B-deild Stjórnartíðinda. Bent er á að samþykkt fyrir byggðasamlagið Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs. frá 9. júní 2016 fjalli m.a. um hlutverk byggingarfulltrúa byggðasamlags- ins. Hvergi í samþykktinni sé kveðið á um að samþykki sveitarstjórna að- ildarsveitarfélaganna þurfi fyrir veitingu byggingarleyfis né að sveit- arstjórnir komi að þeim málum yfir- höfuð. Samningurinn ekki auglýstur Þá verði ekki séð að samningurinn um sameiginlegu skipulagsnefndina hafi verið birtur í Stjórnartíðindum. Hvorki samþykktir sveitarfélaganna sem um ræðir né byggðasamlagsins sé að finna á lista Mannvirkjastofn- unar yfir samþykktir sveitarfélaga sem gerðar hafa verið á grundvelli mannvirkjalaga. Einnig liggi það fyrir að hvorki skipulagsnefnd né skipulagsfulltrúi byggðasamlagsins hafi tekið erindi hjónanna fyrir. Úr- skurðarnefndin segir að þar eð ekki sé til staðar samþykkt sem uppfyllir kröfur mannvirkjalaga sé það bygg- ingarfulltrúi sem taki ákvörðun um byggingarleyfisumsóknir. Það hafi hann ekki gert í þessu máli. Úrskurðarnefndin segir að leiða verði málið til lykta af þar til bærum aðila. Hún vísaði málinu frá. Hjónin hafa kært málið að nýju. Fá ekki að eiga lögheimili heima  Hjón sóttu um að breyta sumarhúsi í íbúðarhús en var neitað  Segja fordæmi fyrir slíku í sveitar- félaginu  Úrskurðarnefnd sá ýmislegt við stofnun byggðasamlags sveitarfélaga um skipulagsmál Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grímsnes Kerhraun er sumarhúsabyggð suðaustur af Búrfelli. Það er fyrir miðri mynd og hægra megin við miðju. Guðrún og Guðfinnur sóttu um að fá að breyta skráningu sum- arhúss síns í Kerhrauni í íbúðar- hús. Þau vísuðu í að aðrir eig- endur sumarhúsa í hreppnum hefðu fengið að gera það. Sveit- arstjórnin hafnaði erindi hjónanna. Ákvörðun sveitar- stjórnar var kærð til úrskurð- arnefndar umhverfis- og auð- lindamála og þess krafist að hún yrði úrskurðuð ólögmæt og að skráningu sumarhússins yrði breytt. Ákvörðunin var kærð KERHRAUN Hjónin Guðfinnur Traustason og Guðrún M. Njálsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.