Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 14
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt afslátt á gatna- gerðargjöldum í því skyni að ýta undir nýjar íbúðarbyggingar, auk byggingar atvinnuhúsnæðis. Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri segir að skortur hafi verið á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu um nokkurt skeið. Hún segist finna fyrir áhuga yngra fólks sem vilji setjast að í bænum og auknum áhuga á nýbyggingum. Íbúar í Grundarfjarðarbæ eru nú 877 og fjölgaði um einn í fyrra. „Okkur hafði fækkað nokkuð síð- ustu ár, en vonum að nú séum við að ná ákveðnu jafnvægi og von- umst til að fara upp á við aftur næstu misserin,“ segir Björg. „Það hefur mjög margt jákvætt gerst í atvinnulífi svæðisins og við viljum greiða fyrir nýbyggingum þannig að fólk geti fundið hentugt hús- næði hér. Auk þess er nýtt aðal- skipulag á lokametrunum. Þar er lagður grunnur að því að bæta við lóðum og að ný íbúðarsvæði verði tilbúin þegar á þeim þarf að halda.“ Samþykkt bæjarstjórnar um gatnagerðargjöldin er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða lækk- un gatnagerðargjalds á íbúðarhús- næði samkvæmt gjaldskrá bæjar- ins og hins vegar er tímabundinn sex mánaða 50% afsláttur á til- greindum íbúðar- og atvinnulóð- um, sem verið hafa til úthlutunar. Síðarnefnda aðgerðin gildir um 14 tilgreindar íbúðarlóðir og nokkrar atvinnulóðir. aij@mbl.is Afsláttur til að örva framkvæmdir  Finnum fyrir áhuga, segir bæjarstjóri Grundarfjarðarbær Margt jákvætt í atvinnulífi svæðisins, segir bæjarstjóri. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 Algeng einkenni B-12 skorts: • Nálardofi í hand- og fótleggjum• Erfiðleikar með gang• Skapsveiflur• Minnisleysi Munnúði tryggir hraða og góða upptöku þar sem vítamínið frásogast auðveldlega í gegnum slímhúðina í munninum og beint út í blóðrásina. Upptaka á B12 gegnum slímhúð í munni er örugg, þægileg og áhrifarík leið til a tryggja líkamanum nægjanlegt magn af B12 vítamíni og til að verja okkur gegn skorti. Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. B12 -MUNNÚÐI SEM VIRKAR Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hlýtt var í veðri síðasta vor og skapaði það kjöraðstæður fyrir fuglalíf á Rauðavatni í maí og byrj- un júní. Á undanförnum árum hefur flórgoði byrjað að nýta sér Rauða- vatn aftur sem varpstað. Þegar mest lét sáust 18 flórgoðar á vatn- inu um miðjan júní í fyrra og fimm sem voru byrjaðir að liggja á hreiðri. Lítill rigning fyrri hluta sumars gerði það að verkum að vatnshæð í vatninu lækkaði mikið og flórgoðinn færði sig á milli staða. Þann 2. ágúst sáust átta ungar, flestir orðnir stálpaðir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu um vöktun og grein- ingu á fuglalífi í borginni sumarið 2019. Skýrslan var lögð fram og kynnt á fundi umhverfis- og heil- brigðisráðs í vikunni. Höfundar eru Ólafur Arason og Snorri Sigurðsson á deild náttúru og garða á umhverf- is- og skipulagssviði. Á Elliðavatni voru skúfendur al- gengastar andfugla en álft, grágæs, stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd og toppönd sáust einnig. Himbrimi verpir við vatnið og sást til him- brimapars í maí. Flórgoðapar hafði gert hreiður í hrúgu af greinum sem komið var fyrir í vatninu 2018. Parið sást liggja þar á í júní, en var farið í júlí og hefur varpið misheppnast líkt og árið á undan. Helstu vaðfuglateg- undir sem sáust við Elliðavatn voru stelkur, jaðrakan og óðinshani. Fimm andategundir með unga Tólf talningar fóru fram á Tjörn- inni og í Vatnsmýrinni 13 maí til 6. ágúst. Framan af sumri var mjög mikið af kríu í Vatnsmýrinni, en í byrjun júlí fór henni að fækka mik- ið, örfáir ungar sáust og engir ungar komust á legg í Vatnsmýrinni. Mögulegt er að afrán hafi valdið skakkaföllum í varpinu, segir í skýrslunni. Fjöldi kría var einnig í Þorfinnshólma og komust nokkrir ungar á legg. Samanborið við árið 2018 var varpárangur anda á Reykjavíkur- tjörn og í Vatnsmýrinni mun betri síðasta sumar og sáust fimm anda- tegundir með unga. Stokkandar- ungar sáust strax í maí, en hinar tegundirnar komu með sína fyrstu unga í lok júní og byrjun júlí. Nokk- uð var um afföll hjá stokkandar- ungum 2019. Þrátt fyrir að margar kollur hafi orpið voru flestir unga- hópar litlir og fjöldi unga var svip- aður og 2018. Mikilvæg svæði við hafið Besti varpárangurinn var hjá skúfönd og voru ungahóparnir bæði stærri og fleiri en 2018. Mest sáust 28 ungar í júlí. Árið 2018 sáust ein- ungis tveir duggandarungar en þeir voru 14 í ár um miðjan júlí í fyrra- sumar, einungis einn hópur garg- andarunga sást í 2018 með þremur ungum en síðasta vor sáust mest níu ungar. Fjórir urtandarungar sáust einungis í einni talningu. Alls sáust 28 fuglategundir í talningum á Reykjavíkurtjörn og í Vatnsmýrinni og þar á meðal voru sex tegundir sem sáust í öllum talningum. Fram kemur í skýrslunni að í borginni má finna mörg svæði sem eru mikilvæg búsvæði fyrir fugla. Þar af eru sex svæði sem eru skil- greind sem mikilvæg á landsvísu og jafnvel alþjóðlega mikilvæg, sam- kvæmt skýrslu Náttúrufræði- stofnunar Íslands „Mikilvæg fugla- svæði á Íslandi“ sem kom út árið 2016. Allt eru það svæði við hafið, sjófuglabyggðir eða strandbúsvæði. Svæðin sex eru Akurey, Andríðsey, Skerjafjörður, Grafarvogur-- Elliðaárvogur, Blikastaðakró, Leiruvogur og Kjalarnes (einkum Hofsvík). Fleiri staði nálægt má telja til mikilvægra fuglasvæða, t.d. Engey, Viðey, Lundey og Þerney, Geldinganes, Álfsnes og Kollafjörð, segir í skýrslu borgarinnar. Svo staldrað sé við Hofsvík á Kjalarnesi, eitt af sex mikilvægum svæðum fyrir fugla í Reykjavík, þá kemur fram í skýrslunni að um 30 tegundir hafi sést í vettvangsferð á Kjalarnes 14. maí. Tegundirnar voru: Fýll, dílaskarfur, lundi, teista, rita, sílamáfur, silfur/hvítmáfur, hettumáfur, æðarfugl, súla (óstað- fest), heiðlóa, tjaldur, sandlóa, rauð- brystingur, tildra, hrossagaukur, spói, jaðrakan, stelkur, kría, álft, grágæs, margæs, stokkönd, þúfu- tittlingur, steindepill, skógar- þröstur, hrafn, starri og maríuerla. Flórgoði hreiðrar um sig á Rauðavatni  Skúfönd stóð sig best andategunda við Tjörnina  Sex mikilvæg fuglasvæði innan borgarinnar Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Flórgoði Að mestu farfugl, sem kemur á varpstöðvar í apríl og þá í sínu fínasta pússi, enda tilhugalífið fram undan. Vöktun á fuglalífi » Tjörnin og votlendið í Vatns- mýri sunnan Hringbrautar, sem er friðland fyrir fugla, eru þau fuglasvæði í borginni sem mest hafa verið vöktuð. » Talningar á tegundum, fjölda verpandi andarkolla og fjölda unga, hafa átt sér stað þar nær árlega frá 1973. Taln- ingaserían hefur verið óbrotin frá upphafi tíunda áratugarins. » Vöktun á öðrum fuglasvæð- um í Reykjavík hefur verið að mestu óregluleg. Sumarið 2018 var sett af stað vöktunar- áætlun fyrir valin svæði í Reykjavík, til viðbótar við Tjörnina og Heiðmörk. Varpárangur á Reykjavíkurtjörn og í Vatnsmýri Fjöldi andarunga sumarið 2019 Fjöldi kríuunga sumarið 2019 25 20 15 10 5 10 8 6 4 2 28.6. 8.7. 18.7. 28.7. 7.8. 20.5. 30.5. 9.6. 19.6. 29.6. 9.7. 19.7. 29.7. 8.8. Skúfendur. Mynd/Reawpixel Heimild: umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur Tjörnin Vatnsmýri Stokkönd Gargönd Skúfönd Duggönd Urtönd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.