Morgunblaðið - 22.02.2020, Side 16
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Alls taldi 126.461 fjölskylda fram bif-
reiðir á skattframtali 2019 vegna
ársins 2018. Hafa aldrei fleiri fjöl-
skyldur talið fram bifreiðir á skatt-
framtali en þetta ár. Meðaleign í bif-
reiðum var 2.466.954 krónur sem var
2,9% meira en árið 2017.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í yfirliti Páls Kolbeins í Tí-
und, blaði Skattsins, um tekjur og
eignir Íslendinga árið 2018.
Bifreiðir eru almennt færðar á
skattframtal á kaupverði og síðan
niðurfærðar um 10% á hverju ári.
Niðurfærslurnar miðast við eign-
færsluna árið áður. Ólíkt íbúðarhús-
næði, sem hækkar yfirleitt í verði frá
ári til árs, falla bifreiðirnar því í
verði ár frá ári og eftir því sem bíll-
inn er dýrari eru niðurfærslurnar
meiri. „Kaup landsmanna segja
ákveðna sögu um væntingar þeirra
til framtíðarinnar. Margir taka lán
fyrir bifreiðakaupum og því takast
menn yfirleitt ekki á herðar skuld-
bindingar nema þeir sjái fyrir sér að
geta staðið í skilum. Bifreiðaflotinn
er því iðulega endurnýjaður í góð-
æri,“ segir Páll.
Endurnýjun langt komin
Í árslok árið 2018 áttu landsmenn
bifreiðir og ökutæki sem metin voru
á 312 milljarða. Bifreiðaeign jókst
um 17 milljarða eða 5,8% á milli ára.
Þetta er minni aukning en árið 2017
en þá jókst bifreiðaeign um 32,4
milljarða eða 12,3%. Árið 2016 jókst
bifreiðaeign um 25,4 milljarða sem
var 10,7% aukning frá árinu áður.
Það var kominn tími á endurnýjun á
bifreiðaeign landsmanna, segir Páll,
og hefur verðmætið aukist um 96,1
milljarð eða 44,5% frá árinu 2013.
„Það lítur út fyrir að endurnýjun bif-
reiðaflotans sé langt komin en hann
hefur aldrei verið jafn verðmætur,“
segir Páll.
Bifreiðir voru metnar á 309,9
milljarða árið 2007 en þær lækkuðu
síðan í verði fram til ársins 2013 og
höfðu þá rýrnað um 94 milljarða, eða
30,3%. Síðan hafa bifreiðir lands-
manna verið endurnýjaðar og verð-
mæti þeirra aukist.
Mönnum ber að telja fram til
skatts aðrar eignir en fasteignir og
bifreiðir, s.s. hjólhýsi, tjaldvagna,
báta, vélsleða, vélhjól, hesta, seðla
og annað slíkt, segir Páll. Lands-
menn áttu 31,2 milljarða í öðrum
eignum í árslok 2018 sem var 897
milljónum eða 3,0% meira en árið
áður en 23.799 fjölskyldur töldu
fram aðrar eignir eða 304 fleiri en
fyrir ári.
Stór hluti eigna landsmanna sé
hins vegar ekki talinn fram á skatt-
framtali en þar megi nefna raunvirði
hlutabréfa í fyrirtækjum umfram
nafnverð, menntun og rétt til mennt-
unar, lífeyrisréttindi og almanna-
tryggingar sem veita ákveðna trygg-
ingavernd og rétt til heilbrigðisþjón-
ustu. Ýmis önnur þjónusta og
réttindi gagnvart opinberum aðilum
eru mikils virði en hvorki tekju- né
eignfærð á skattframtali. „Menn
geta þannig leikið sér að því að nú-
virða framtíðartekjur sínar, laun og
ellilífeyrinn sem þeir kunna að fá
greiddan að lokinni starfsævinni.
Þarna er oft um verulegar fjárhæðir
að ræða,“ segir Páll.
„Árið 2018 var Íslendingum gjöf-
ult. Efnahagslífið blómstraði og hag-
ur landsmanna vænkaðist. Það er
ekki sjálfgefið að lítil þjóð sem býr
við ystu mörk hins byggilega heims,
í köldu, blautu og myrku landi, búi
við bestu lífskjör í heimi,“ segir Páll
Kolbeins í lokaorðum yfirlitsins.
„Íslendingar geta rekið velferðar-
ríki vegna þess að þeir hafa ráð á
því. Það hlýtur að teljast betra hlut-
skipti að þurfa að læra að hemja sig
við nægtaborð vellystinganna en að
líða skort, sem er þrátt fyrir allt enn
hlutskipti stórs hluta jarðarbúa.“
Bílaeign hefur aldrei verið meiri
Alls taldi 126.461 fjölskylda fram bifreiðir á skattframtali fyrir árið 2018 Bifreiðir og ökutæki
voru alls metin á 312 milljarða „Efnahagslífið blómstraði og hagur landsmanna vænkaðist“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skattagrunnur
» Á skattgrunnskrá árið 2019
voru 307.699 einstaklingar.
Fjölgaði þeim um 10.023 eða
3,4% á milli ára og hafa aldrei
verið þetta margir framtelj-
endur á skattgrunnskrá.
» Fjölgun á skattgrunnskrá er
að mestu leyti vegna erlendra
ríkisborgara sem flust hafa til
landsins til lengri eða skemmri
tíma.
» Erlendum ríkisborgurum á
skrá fjölgaði um 18,4% á sama
tíma og íslenskum ríkisborg-
urum fjölgaði um 0,7%.
» Heildartekjur landsmanna
voru 1.862,7 milljarðar 2018 og
hækkuðu um 2,45% milli ára.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020
Tunguhálsi 10
Sími 415 4000
www.kemi.is
kemi@kemi.is
Útvarpsgjald og gjald í Framkvæmdasjóð aldr-
aðra eru dæmi um nefskatta sem eru lagðir á til
að fjármagna opinberan rekstur. Hreinn og klár
nefskattur er ákveðin fjárhæð sem er lögð jafnt
á alla. Nefskattar leggjast þyngst á þá sem eru
með lágar tekjur en skatturinn verður alltaf
hlutfallslega minni eftir því sem tekjurnar eru
hærri, segir Páll. Þeir sem voru með 1.750.782 kr. sluppu við nefskattana
en þeir sem voru yfir þeim tekjumörkum, jafnvel einni krónu, greiddu
11.454 kr. í gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og 17.500 kr. í útvarpsgjald,
samtals 28.954 kr. „Þetta er hár skattur af einni krónu sem sýnir hvernig
aldurs- og tekjumörk geta haft áhrif á skattlagningu einstaklinga.“
Ein króna getur breytt öllu
NEFSKATTAR LEGGJAST ÞYNGST Á LÁGTEKJUHÓPANA
Reykjavíkurborg hafnar því að hús-
félagið í Álftamýri 46-52 hafi verið
hlunnfarið vegna styrkbeiðni þess í
tengslum við uppsetningu hleðslu-
stöðvar fyrir rafbíla. Morgunblaðið
greindi frá því á miðvikudag að
borgin hefði hafnað beiðni hús-
félagsins um styrk, en sérstakur
sjóður var settur á fót til að hvetja
fjöleignarhús til að koma upp slík-
um stöðvum. Neitun borgarinnar
byggðist á því að framkvæmdir
hefðu verið hafnar í Álftamýri áður
en opnað hefði verið fyrir umsóknir
í sjóðinn.
Í samtali við Morgunblaðið á mið-
vikudag sagði Björn Vernharðsson,
formaður húsfélagsins, að Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri hefði
greint frá því í Twitter-færslu í des-
ember 2018 að opnað hefði verið
fyrir umsóknir. Því hefði húsfélagið
talið að ekki þyrfti að bíða boðanna
og hóf framkvæmdir. Björn segir að
umræddri Twitter-færslu hafi síðar
verið eytt.
Morgunblaðið spurðist fyrir um
það hjá borginni hvort rétt væri að
tísti Dags hefði verið eytt. Í svari
upplýsingafulltrúans Jóns Halldórs
Jónassonar er þvertekið fyrir það.
„Það er röng staðhæfing í frétt-
inni að Twitte-færslu hafi verið
eytt. Borgarstjóri tísti um hleðslu-
stöðvar fjöleignahúsa 4. júlí 2019
(en ekki í desember 2018 eins og
haldið er fram í viðtali við hús-
félagið). Í frétt blaðsins í gærmorg-
un kemur fram að húsfélagið hafi
drifið sig í verkið og farið að öllu
leyti eftir því sem ætlast var til. Á
þeim tíma lágu úthlutunarskilmál-
arnir ekki fyrir,“ segir í svarinu.
Björn Vernharðsson ítrekaði í
svari til Morgunblaðsins að fram-
kvæmt hefð verið í góðri trú vegna
yfirlýsinga borgarstjóra.
hdm@mbl.is
Hafna því að tíst
Dags hafi horfið
Deilt um styrk vegna hleðslustöðvar
Morgunblaðið/SiSi
Hleðslustöð Húsfélaginu í Álfta-
mýri 46-52 var neitað um styrk.