Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 16

Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 16
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Alls taldi 126.461 fjölskylda fram bif- reiðir á skattframtali 2019 vegna ársins 2018. Hafa aldrei fleiri fjöl- skyldur talið fram bifreiðir á skatt- framtali en þetta ár. Meðaleign í bif- reiðum var 2.466.954 krónur sem var 2,9% meira en árið 2017. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirliti Páls Kolbeins í Tí- und, blaði Skattsins, um tekjur og eignir Íslendinga árið 2018. Bifreiðir eru almennt færðar á skattframtal á kaupverði og síðan niðurfærðar um 10% á hverju ári. Niðurfærslurnar miðast við eign- færsluna árið áður. Ólíkt íbúðarhús- næði, sem hækkar yfirleitt í verði frá ári til árs, falla bifreiðirnar því í verði ár frá ári og eftir því sem bíll- inn er dýrari eru niðurfærslurnar meiri. „Kaup landsmanna segja ákveðna sögu um væntingar þeirra til framtíðarinnar. Margir taka lán fyrir bifreiðakaupum og því takast menn yfirleitt ekki á herðar skuld- bindingar nema þeir sjái fyrir sér að geta staðið í skilum. Bifreiðaflotinn er því iðulega endurnýjaður í góð- æri,“ segir Páll. Endurnýjun langt komin Í árslok árið 2018 áttu landsmenn bifreiðir og ökutæki sem metin voru á 312 milljarða. Bifreiðaeign jókst um 17 milljarða eða 5,8% á milli ára. Þetta er minni aukning en árið 2017 en þá jókst bifreiðaeign um 32,4 milljarða eða 12,3%. Árið 2016 jókst bifreiðaeign um 25,4 milljarða sem var 10,7% aukning frá árinu áður. Það var kominn tími á endurnýjun á bifreiðaeign landsmanna, segir Páll, og hefur verðmætið aukist um 96,1 milljarð eða 44,5% frá árinu 2013. „Það lítur út fyrir að endurnýjun bif- reiðaflotans sé langt komin en hann hefur aldrei verið jafn verðmætur,“ segir Páll. Bifreiðir voru metnar á 309,9 milljarða árið 2007 en þær lækkuðu síðan í verði fram til ársins 2013 og höfðu þá rýrnað um 94 milljarða, eða 30,3%. Síðan hafa bifreiðir lands- manna verið endurnýjaðar og verð- mæti þeirra aukist. Mönnum ber að telja fram til skatts aðrar eignir en fasteignir og bifreiðir, s.s. hjólhýsi, tjaldvagna, báta, vélsleða, vélhjól, hesta, seðla og annað slíkt, segir Páll. Lands- menn áttu 31,2 milljarða í öðrum eignum í árslok 2018 sem var 897 milljónum eða 3,0% meira en árið áður en 23.799 fjölskyldur töldu fram aðrar eignir eða 304 fleiri en fyrir ári. Stór hluti eigna landsmanna sé hins vegar ekki talinn fram á skatt- framtali en þar megi nefna raunvirði hlutabréfa í fyrirtækjum umfram nafnverð, menntun og rétt til mennt- unar, lífeyrisréttindi og almanna- tryggingar sem veita ákveðna trygg- ingavernd og rétt til heilbrigðisþjón- ustu. Ýmis önnur þjónusta og réttindi gagnvart opinberum aðilum eru mikils virði en hvorki tekju- né eignfærð á skattframtali. „Menn geta þannig leikið sér að því að nú- virða framtíðartekjur sínar, laun og ellilífeyrinn sem þeir kunna að fá greiddan að lokinni starfsævinni. Þarna er oft um verulegar fjárhæðir að ræða,“ segir Páll. „Árið 2018 var Íslendingum gjöf- ult. Efnahagslífið blómstraði og hag- ur landsmanna vænkaðist. Það er ekki sjálfgefið að lítil þjóð sem býr við ystu mörk hins byggilega heims, í köldu, blautu og myrku landi, búi við bestu lífskjör í heimi,“ segir Páll Kolbeins í lokaorðum yfirlitsins. „Íslendingar geta rekið velferðar- ríki vegna þess að þeir hafa ráð á því. Það hlýtur að teljast betra hlut- skipti að þurfa að læra að hemja sig við nægtaborð vellystinganna en að líða skort, sem er þrátt fyrir allt enn hlutskipti stórs hluta jarðarbúa.“ Bílaeign hefur aldrei verið meiri  Alls taldi 126.461 fjölskylda fram bifreiðir á skattframtali fyrir árið 2018  Bifreiðir og ökutæki voru alls metin á 312 milljarða  „Efnahagslífið blómstraði og hagur landsmanna vænkaðist“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Skattagrunnur » Á skattgrunnskrá árið 2019 voru 307.699 einstaklingar. Fjölgaði þeim um 10.023 eða 3,4% á milli ára og hafa aldrei verið þetta margir framtelj- endur á skattgrunnskrá. » Fjölgun á skattgrunnskrá er að mestu leyti vegna erlendra ríkisborgara sem flust hafa til landsins til lengri eða skemmri tíma. » Erlendum ríkisborgurum á skrá fjölgaði um 18,4% á sama tíma og íslenskum ríkisborg- urum fjölgaði um 0,7%. » Heildartekjur landsmanna voru 1.862,7 milljarðar 2018 og hækkuðu um 2,45% milli ára. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 Tunguhálsi 10 Sími 415 4000 www.kemi.is kemi@kemi.is Útvarpsgjald og gjald í Framkvæmdasjóð aldr- aðra eru dæmi um nefskatta sem eru lagðir á til að fjármagna opinberan rekstur. Hreinn og klár nefskattur er ákveðin fjárhæð sem er lögð jafnt á alla. Nefskattar leggjast þyngst á þá sem eru með lágar tekjur en skatturinn verður alltaf hlutfallslega minni eftir því sem tekjurnar eru hærri, segir Páll. Þeir sem voru með 1.750.782 kr. sluppu við nefskattana en þeir sem voru yfir þeim tekjumörkum, jafnvel einni krónu, greiddu 11.454 kr. í gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra og 17.500 kr. í útvarpsgjald, samtals 28.954 kr. „Þetta er hár skattur af einni krónu sem sýnir hvernig aldurs- og tekjumörk geta haft áhrif á skattlagningu einstaklinga.“ Ein króna getur breytt öllu NEFSKATTAR LEGGJAST ÞYNGST Á LÁGTEKJUHÓPANA Reykjavíkurborg hafnar því að hús- félagið í Álftamýri 46-52 hafi verið hlunnfarið vegna styrkbeiðni þess í tengslum við uppsetningu hleðslu- stöðvar fyrir rafbíla. Morgunblaðið greindi frá því á miðvikudag að borgin hefði hafnað beiðni hús- félagsins um styrk, en sérstakur sjóður var settur á fót til að hvetja fjöleignarhús til að koma upp slík- um stöðvum. Neitun borgarinnar byggðist á því að framkvæmdir hefðu verið hafnar í Álftamýri áður en opnað hefði verið fyrir umsóknir í sjóðinn. Í samtali við Morgunblaðið á mið- vikudag sagði Björn Vernharðsson, formaður húsfélagsins, að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefði greint frá því í Twitter-færslu í des- ember 2018 að opnað hefði verið fyrir umsóknir. Því hefði húsfélagið talið að ekki þyrfti að bíða boðanna og hóf framkvæmdir. Björn segir að umræddri Twitter-færslu hafi síðar verið eytt. Morgunblaðið spurðist fyrir um það hjá borginni hvort rétt væri að tísti Dags hefði verið eytt. Í svari upplýsingafulltrúans Jóns Halldórs Jónassonar er þvertekið fyrir það. „Það er röng staðhæfing í frétt- inni að Twitte-færslu hafi verið eytt. Borgarstjóri tísti um hleðslu- stöðvar fjöleignahúsa 4. júlí 2019 (en ekki í desember 2018 eins og haldið er fram í viðtali við hús- félagið). Í frétt blaðsins í gærmorg- un kemur fram að húsfélagið hafi drifið sig í verkið og farið að öllu leyti eftir því sem ætlast var til. Á þeim tíma lágu úthlutunarskilmál- arnir ekki fyrir,“ segir í svarinu. Björn Vernharðsson ítrekaði í svari til Morgunblaðsins að fram- kvæmt hefð verið í góðri trú vegna yfirlýsinga borgarstjóra. hdm@mbl.is Hafna því að tíst Dags hafi horfið  Deilt um styrk vegna hleðslustöðvar Morgunblaðið/SiSi Hleðslustöð Húsfélaginu í Álfta- mýri 46-52 var neitað um styrk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.