Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 20
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Síðustu þrjá mánuði hafa selst um 60
nýjar íbúðir í miðborg Reykjavíkur.
Miðað við að meðalverðið sé um 50
milljónir króna má ætla að söluverðið
sé um þrír milljarðar króna.
Morgunblaðið hefur frá síðasta
sumri reglulega fjallað um sölu íbúða í
miðborginni. Lesa má út hversu mikil
salan var milli tímabila á grafi hér fyrir
ofan. Salan hefur verið athuguð á um
þriggja mánaða fresti.
Þau tíðindi hafa orðið að mikill
meirihluti íbúða hefur selst á mörgum
þessara þéttingarreita.
Mikil sala á Hverfisgötu
Til dæmis er búið að selja þorra
íbúðanna á þremur þéttingarreitum á
Hverfisgötu. Það er að segja á
Frakkastígsreit, Hverfisgötu 96-98 og
á Brynjureit.
Samanlagt hafa um 620 íbúðir kom-
ið í sölu síðan haustið 2017 er fyrsti
áfangi Frakkastígsreit kom í sölu. Við
þá tölu má bæta 70 íbúðum í Austur-
höfn en sala þeirra hefst formlega með
vorinu. Með þeim reit hafa um 690
íbúðir komið í sölu á um tveimur og
hálfu ári. Slíkt framboð af nýjum, og
gjarnan dýrari íbúðum, á svo skömm-
um tíma í miðborginni er án fordæma.
Hafa nú selst um 370 íbúðir en að auki
eru útistandandi tilboð í nokkurn
fjölda íbúða.
Til samanburðar má nefna að 14
íbúðir eru á Lækjargötu 4 í Reykjavík.
Skráð byggingarár hússins, sem er
með bílakjallara, er 1992 en það var
meðal fárra nýbygginga á svæðinu á
þeim árum. Framboðið síðustu miss-
eri, að meðtalinni Austurhöfn, er á við
50 slík íbúðarhús.
Meiri sala eftir áramót
Stefán Hrafn Stefánsson, lögmaður
og löggiltur fasteignasali hjá Stakfelli,
segir að upp úr áramótum hafi lifnað
yfir markaði með nýjar íbúðir í mið-
borginni. Salan í haust hafi verið frem-
ur hæg. Nú komi
hins vegar margir
í opin hús til að
kynna sér eignir.
Hann reiknar
með að búið verði
að selja nær allar
íbúðirnar á mörg-
um reitanna í sum-
arbyrjun.
Stefán Hrafn
hefur langa
reynslu af sölu fasteigna í miðborginni.
Meðal annars seldi hann íbúðir í áð-
urnefndu fjölbýlishúsi í Lækjargötu 4.
Hann minnist þess að tekið hafi tíma
að selja íbúðirnar. Þegar húsið kom á
markað hafi verðið þótt í hærra lagi.
Samkvæmt kaupsamningi frá 1994
kostaði 75 fermetra íbúð í húsinu 7,3
milljónir, að meðtöldu stæði í bílakjall-
ara. Markaðsverðið er nú að minnsta
kosti sexfalt hærra.
Til samanburðar hefur vísitala
neysluverðs hækkað úr 169,3 stigum í
469,8 stig síðan kaupsamningurinn var
gerður, eða um 180%. Skv. því hefur
fjárfestingin borgað sig. Stefán Hrafn
segir að þegar ný fjölbýlishús koma í
sölu seljist íbúðir á efri hæðum gjarn-
an fyrst. Jafnframt sé algengt að það
taki 3-12 mánuði að selja allar íbúð-
irnar.
Vaxtalækkanir hafa áhrif
Vaxtalækkanir Seðlabankans hafi
áhrif á eftirspurnina með því að draga
úr greiðslubyrði. Með því hafi fleiri
staðist greiðslumat.
Gunnar Sverrir Harðarson, fast-
eignasali hjá Remax, segir markaðinn
með íbúðir í miðborginni standa á
tímamótum. Búið sé að selja meiri-
hluta íbúðanna og horfur á að flestar
þeirra verði seldar í sumarbyrjun.
Þá hafi bankarnir dregið úr lánveit-
ingum til nýrra verkefna. Það muni
aftur hafa í för með sér minna framboð
nýrra íbúða.
„Það kæmi mér ekki á óvart að árið
2023 yrðum við komin á sama stað og
árið 2016 með því að skortur yrði á
húsnæði fyrir almenning,“ segir Gunn-
ar Sverrir um stöðuna.
Milljarða sala í miðbænum
Um 60 nýjar íbúðir hafa selst í miðborg Reykjavíkur síðan í lok nóvember 2019
4
5
6
8
10
12
13
15
16
14
11
1
9
2
3
Nýjar íbúðir til sölu í miðborg Reykjavíkur
Salan frá júní 2019 og hlutfall
seldra íbúða*
17
Væntanlegt U.þ.b. fjöldi
14 Austurhöfn við Hörpu 70
15 Borgartún 41 30
16 Hverfi sgata 88-92 30
17 Ingólfstorg 16
Samtals 146
Miðborgarreitirnir sem
hér eru til skoðunar ná
frá Tryggvagötu 13 í
vestri og að Kirkju-
sandi í austri.
Fjölbýlishúsin tvö á
Kirkjusandi, Stuðla-
borg og Sólborg eru
enn í smíðum.
Íbúðir í söluferli Fjöldi
Seldar
26.6.
2019
Seldar
4.9.
2019
Seldar
28.11.
2019
Seldar
20.2.
2020
Seldar
síðan
28.11.
Óseldar
íbúðir
Hlutfall
seldra íb.
1 Höfðatorg 94 64 67 77 79 2 15 84%
2 Stuðlaborg, Kirkjusandi 77 6 11 12 16 4 61 21%
3 Sólborg, Kirkjusandi 52 7 18 11 34 35%
4 Frakkastígsreitur 68 37 52 59 59 0 9 87%
5 Hverfi sgata 85-93 70 10 17 24 27 3 43 39%
6 Hverfi sgata 84 og 86 6 6 6 0 100%
7 Hverfi sgata 94-96 38 16 19 24 33 9 5 87%
8 Hafnartorg 70 22 31 35 37 2 33 53%
9 Brynjureitur 70 0 0 37 50 13 20 71%
10 Klapparstígur 30 11 8 11 10 11 1 0 100%
11 Borgartún 28A 21 3 3 18 14%
12 Klapparstígur 28 4 0 1 1 3 2 1 75%
13 Tryggvagata 13 38 25 27 27 30 3 8 79%
Samtals 619 188 236 313 372 59 247 60%
7
*Samkvæmt söluvefjum 20.2. 2019
Kortagrunnur: Stamen
Stefán Hrafn
Stefánsson
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.
sentur frá fyrra ári. 16% eignanna
eru í innlendum hlutabréfum og
19% í skuldabréfum. Athygli vekur
að sjóðfélagalán jukust um 28,4
milljarða á árinu og stóðu í 120,7
milljörðum króna eða 14% af heild-
areignum sjóðsins.
19 þúsund lífeyrisþegar
Á árinu 2019 greiddi sjóðurinn
ríflega 16 milljarða króna út úr
samtryggingardeild. Lífeyris-
greiðslur úr séreignardeild námu
684 milljónum króna. 19 þúsund
manns fengu að meðaltali greiðslur
úr samtryggingardeildinni, saman-
borið við 18 þúsund manns árið áð-
ur.
Tryggingafræðileg staða sjóðsins
er sterk og er jákvæð sem nemur
8,6%. Var hún 5,4% í lok árs 2018.
Sé litið til langtímaávöxtunar er
hún að raungildi 6,1% síðustu fimm
árin, 6,0% til síðustu tíu ára og 4,1%
síðastliðin 20 ár.
Eignir Lífeyrissjóðs verslunar-
manna jukust um 155 milljarða
króna á síðasta ári og stóðu þær í
868 milljörðum króna um áramót.
Eignaaukningin, sem komin er til
vegna ávöxtunar og iðgjalda-
greiðslna, jafngildir því að sjóður-
inn hafi stækkað um 425 milljónir
hvern einasta dag ársins.
Ávöxtun eigna nam 18,7% og
jafnast það á við 15,6% raunávöxt-
un. Aðeins einu sinni áður í 63 ára
rekstrarsögu sjóðsins hefur raun-
ávöxtun verið meiri. Það var árið
2005. Fjárfestingartekjur á árinu
voru 136 milljarðar króna.
Erlend verðbréf stóðu undir 40%
af eignasafni sjóðsins í árslok og
hafði hlutfallið hækkað um 5 pró-
Raunávöxtunin 15,6%
Eignir Lífeyrissjóðs verslunarmanna
jukust um 425 milljónir á dag
Morgunblaðið/Eggert
Umfang Lífeyrissjóður verslunar-
manna er næststærsti sjóður landsins.
● Stjórn Origo leggur til við aðalfund
félagsins að stjórnarlaun hækki um
5.000 krónur. Þannig verði laun með-
stjórnenda 275 þúsund krónur á mán-
uði og stjórnarformanns 595 þúsund
krónur. Jafngildir hækkun til stjórn-
arformanns því 0,9% en meðstjórn-
enda 1,9%.
Tillaga stjórnar Skeljungs gerir ráð
fyrir óbreyttum stjórnarlaunum frá
fyrra ári. Þannig fái formaður 650 þús-
und í sinn hlut, varaformaður 450 þús-
und og meðstjórnendur 320 þúsund
krónur.
Stjórnarlaun hjá Símanum hækka
öllu meira. Þannig leggur stjórn félags-
ins til að stjórnarformaður hækki um
40 þúsund og hljóti 720 þúsund fyrir
sín störf, varaformaður hækki um 30
þúsund og fái 540 þúsund og stjórn-
armenn hækki um 20 þúsund og fái
360 þúsund í þóknun á mánuði.
Laun stjórnarmanna
hækki um 5 þúsund kr.
22. febrúar 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.62 128.22 127.92
Sterlingspund 164.35 165.15 164.75
Kanadadalur 96.2 96.76 96.48
Dönsk króna 18.436 18.544 18.49
Norsk króna 13.709 13.789 13.749
Sænsk króna 13.003 13.079 13.041
Svissn. franki 129.78 130.5 130.14
Japanskt jen 1.138 1.1446 1.1413
SDR 173.67 174.71 174.19
Evra 137.71 138.49 138.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.0138
Hrávöruverð
Gull 1610.35 ($/únsa)
Ál 1684.0 ($/tonn) LME
Hráolía 59.31 ($/fatið) Brent
● Iceland Seafood
International hefur
gengið endanlega
frá kaupum sínum
á spænska fyrir-
tækinu Elba Sea-
food, sem fram-
leiðir og selur
léttsaltaðar þorsk-
afurðir. Í framhaldi
af kaupunum mun
Iceland Seafood taka við stjórn félags-
ins. Kaupverðið er 4,4 milljónir evra,
jafnvirði um 620 milljóna króna. Helm-
ingur er greiddur með reiðufé en af-
gangurinn með nýjum hlutum í Iceland
Seafood. Elfa rekur starfsstöð í Barce-
lona og selur um 2.200 tonn af afurð-
um á ári fyrir Spánarmarkað. Haft er
eftir Bjarna Ármannssyni, forstjóra
Iceland Seafood, í tilkynningu að kaupin
styrki félagið enn frekar á mörkuðum í
sunnanverðri Evrópu.
Kaup Iceland Seafood á
Elba á Spáni frágengin
Bjarni Ármannsson
STUTT