Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-150 Lariat Sport Litur: Svartur, svartur að innan. FX4 off- road-pakki, Sport-pakki, bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart o.fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb-ft of torque. VERÐ 12.770.000 m.vsk 2019 RAM Limited 3500 35” Litur: Pearl red/ Svartur að innan. 6,7L Cum- mins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund. Einn með öllu: RAM box, Aisin sjálfskipting, dual alternators 440 amps, loftpúðafjöðrun, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. VERÐ 11.980.000 m.vsk 2020 Ford F-350 Lariat Sport Kominn með 10 gíra Allison sjálfskipt- ingu! Litur: Star white, svartur að innan, 6,7L Diesel ,475 Hö, 1050 ft of torque. Með Sport-pakka, Ultimate-pakka, FX4 offroad pakka, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, lyklalaust aðgengi, Bang Olufssen hljómkerfi, trappa í hlera. VERÐ 12.280.000 m.vsk 2020 GMC Denali Væntanlegur Magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. Ingimar veitir uppl um GMC 2020 í síma 480 80 81 eða 6648080. ATH. ekki “verð frá” Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Nýjum tilfellum lungnabólgufarald- ursins í Kína fjölgaði á ný í gær, eftir að þeim hafði farið fækkandi dag frá degi í vikunni. Meira en 75.500 manns hafa nú smitast af veirunni í Kína, og tala látinna er komin upp fyrir 2.200 manns. Samkvæmt nýjum tölum kín- verskra stjórnvalda hefur aukningin meðal annars orðið í nokkrum fang- elsum í landinu, og er áætlað að um það bil 500 fangar hafi smitast af kór- ónuveirunni. Fjölgun hefur einnig orðið í fjölda tilfella utan Kína, einkum og sér í lagi í Suður-Kóreu, en þar hafa nú fleiri en 200 manns sýkst af völdum veir- unnar. Þá tilkynntu suðurkóresk stjórn- völd í gær um fyrsta dauðsfallið í landinu af völdum faraldursins, en það var karlmaður á sjötugsaldri sem glímdi við aðra sjúkdóma. Hann var einn af 15 sem smituðust af veirunni á sjúkrahúsi í Cheongdo-héraði, um 300 kílómetra sunnan höfuðborgar- innar Seoul. Maðurinn var fyrst tal- inn glíma við venjulega lungnabólgu og var kórónuveirusmitið ekki greint fyrr en eftir andlát hans. Um 120 af tilfellunum í Suður-Kór- eu tengjast kristna sértrúarsöfnuðin- um Shincheonji, en eitt sóknarbarna hans, 61 árs gömul kona, fékk hita 10. febrúar síðastliðinn, en sótti samt messu í fjórgang áður en hún var greind með kórónuveiruna. Fjórir látnir í Íran Átta manns hafa nú látist af völd- um veirunnar utan Kína, flestir í Ír- an, en stjórnvöld þar tilkynntu í gær um tvö dauðsföll til viðbótar við þau tvö sem áður var vitað um. Átján manns hafa nú sýkst í Íran en flest til- fellin tengjast með einum eða öðrum hætti borginni Qom. Ekki er vitað hvernig kórónuveiran barst til Írans, en sjúklingarnir tveir sem fyrst létust í landinu höfðu ekki ferðast erlendis. Stjórnvöld í Írak tilkynntu á fimmtudag að þau hefðu ákveðið að stöðva ferðir til og frá Íran vegna far- aldursins, og ríkisflugfélag Kúveit hætti við allar flugferðir sínar til landsins. Veirunnar hefur einnig orð- ið vart í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum og Egyptalandi. Stjórnvöld í Ísrael tilkynntu einnig í gær að veirunnar hefði orðið vart þar, en um var að ræða ísraelska konu sem var farþegi um borð í skemmtiferðaskipinu Princess Dia- mond en það hefur verið í sóttkví í Japan mestallan febrúarmánuð. Kon- an sýnir ekki nein einkenni, en var engu að síður smitberi að sögn ísr- aelskra stjórnvalda. Japönsk stjórnvöld hófu í vikunni að hleypa þeim farþegum skemmti- ferðaskipsins, sem ekki höfðu greinst með veiruna, úr sóttkvínni en ástr- ölsk heilbrigðisyfirvöld sögðu í gær- morgun að þau hefðu uppgötvað veir- una í tveimur áströlskum farþegum sem hafði verið hleypt heim. Kallar eftir frekari aðstoð Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigð- isstofnunarinnar, WHO, sagði í gær að mögulega væri tækifærið til þess að stemma stigu við kórónuveiru- faraldrinum að renna mönnum úr greipum. Sagði hann stofnunina þurfa frekari aðstoð og fjármuni frá ríkjum heims til þess að takast á við faraldurinn. Lýsti hann jafnframt yfir áhyggj- um sínum af því að svo virtist sem sumir þeirra sem smitast hefðu af veirunni hefðu engin sjáanleg tengsl við Wuhan eða Hubei-hérað í Kína, þar sem faraldurinn blossaði fyrst upp. Tilfellum fjölgar á ný  Ný dauðsföll af völdum kórónuveirunnar í Suður-Kóreu og Íran  Faraldurinn blossar upp í kínverskum fangelsum  Tækifærið mögulega að renna úr greipum AFP Faraldur Verkamaður sótthreinsar búð á götumarkaði í Shanghæ. Thomas Thab- ane, forsætisráð- herra Lesótó, mætti ekki fyrir dóm í gær, en lög- regluyfirvöld í landinu hafa til- kynnt að þau hyggist ákæra hann fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu hans. Aðstoðarmaður Thabane sagði í fyrstu að hann hefði þurft að fara til Suður-Afríku í læknisskoðun, en sagði svo að forsætisráðherrann glímdi við alvarlegan heilsubrest og myndi mæta fyrir dóm þegar hann sneri aftur. Thabane, sem er áttræður, er sak- aður um að hafa lagt á ráðin um að myrða eiginkonu sína, Lilopelo Thabane, sem var 58 ára, árið 2017 en þau stóðu þá í harðri skilnaðar- deilu. Lilopelo var skotin til bana einungis tveimur dögum áður en Thabane sór embættiseið sinn. Núverandi eiginkona Thomasar, Maesaiah Thabane, hefur þegar ver- ið ákærð fyrir aðild sína að morðinu. Palesa Mokete, aðstoðarríkislög- reglustjóri, sagði að lögreglan hygð- ist kanna hvort Thabane væri í raun veikur, ellegar yrði gefin út hand- tökuskipun á hendur honum fyrir að reyna að forðast réttvísina. Mætti ekki fyrir dóm Thomas Thabane  Forsætisráðherra ákærður fyrir morð Yfirmenn í leyniþjónustum Banda- ríkjanna vöruðu þingmenn í fulltrúa- deild Bandaríkjaþings við því í síð- ustu viku að rússnesk stjórnvöld væru að reyna að hafa áhrif á banda- rísku forsetakosningarnar, sem eiga að fara fram 3. nóvember nk. Sagði Sheldon Pierson, aðstoðar- maður Josephs Maguire, starfandi yfirmanns leyniþjónustumála, við njósnadeild fulltrúadeildarinnar að Rússar ætluðu sér að tryggja Donald Trump Bandaríkjaforseta endurkjör, meðal annars með her- ferð á samfélagsmiðlum til þess að auka stuðning við hann. Trump tilkynnti á miðvikudag að hann hygðist útnefna Richard Gre- nell, sendiherra Bandaríkjanna í Þýskalandi, í stöðu Maguires, sem gegndi henni tímabundið. Bæði New York Times og Wash- ington Post greindu frá því í fyrra- kvöld að til hefði staðið að útnefna Maguire varanlega í stöðuna, en fundurinn með þingnefndinni hefði gert endanlega út um vonir hans, þar sem Trump hefði talið að upplýsing- unum yrði beitt gegn sér í pólitískum tilgangi. Hafna öllum ásökunum Stjórnvöld í Rússlandi höfnuðu í gær öllum ásökunum um að þau hygðust beita sér fyrir endurkjöri Trumps. Dímítrí Peskov, talsmaður Pútíns Rússlandsforseta, sagði ásak- anirnar einkennast af vænisýki, og að líklega myndu þær heyrast æ oft- ar eftir því sem drægi nær forseta- kosningunum. „Þær eru að sjálf- sögðu ekki sannleikanum samkvæmar,“ sagði Peskov. Þá mótmælti Trump sjálfur ásök- ununum á samfélagsmiðlinum Twitter, og sagði þær vera runnar undan rifjum demókrata. Saka Rússa um íhlutun  Trump vísar ásökunum til föð- urhúsanna AFP Ræða Trump á framboðsfundi. Mikið var um dýrðir í indversku borginni Allahabad í gær, þar sem þessir götulistamenn tóku þátt í hátíða- höldum á hinni árlegu hátíð Maha Shivaratri. Hátíðin markar það sem hindúar telja fæðingardag Shiva, eins helsta guðs trúarbragðanna, og er haldin skrúðganga af því tilefni í mörgum borgum Indlands. AFP Léku listir sínar Shiva til heiðurs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.