Morgunblaðið - 22.02.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.02.2020, Qupperneq 22
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Einhugur er meðal flug-manna og helstu flugrek-enda um að uppbyggingaðstöðu á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum eigi að ganga fyrir uppbyggingu nýrra varaflugvalla fyrir millilandaflug. Á þessa staði er stundað reglubundið áætlunarflug á stórum skrúfuþotum auk leiguflugs með farþegaþotum. Þannig eru bún- aður og innviðir í daglegri notkun. Kemur þetta fram í umsögn Félags íslenskra atvinnuflugmanna um þings- ályktunartillögu um að gera athugun á kostum þess að gera Alexanders- flugvöll á Sauðárkróki að varaflugvelli fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykjavík- urflugvöll, Akureyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll. Sigurður Páll Jóns- son er flutningsmaður og með honum á tillögunni eru aðrir þingmenn Mið- flokksins. Tillögur svipaðs efnis hafa áður verið lagðar fram á Alþingi en ekki náð fram að ganga. Tillögunni var í vetur vísað til umhverfis- og sam- göngunefndar og nú er liðinn frestur til að skila umsögnum. Viðbrögð bárust annars vegar frá sveitarfélaginu Skagafirði og Sam- tökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem styðja málið, og hins vegar frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna og Isavia sem sjá því ýmislegt til for- áttu. Er þetta mjög í samræmi við um- sagnir sem bárust vegna sama máls á árinu 2018. Aðstaðan verði bætt Í greinargerð með tillögunni er bent á að Alexandersflugvöllur er vel stað- settur og aðflug gott. Telja flutnings- menn einsýnt að verulegur ávinningur geti verið af því að byggja flugvöllinn upp sem varaflugvöll fyrir Reykjavík og Keflavík og að hann muni einnig þjóna vel sem varavöllur fyrir Akur- eyri og Egilsstaði. Í umsögnum flugsins er ekki efast um góðar landfræðilegar aðstæður á Sauðárkróki. Uppbygging vara- flugvallar sé hins vegar kostnaðarsöm og nær væri að nota fjármunina til að bæta aðstöðu varaflugvalla millilanda- flugs á Akureyri og Egilsstöðum. Þá er bent á að milljarða vanti til að byggja upp þá flugvelli sem þegar eru í notk- un. Fjórir millilandaflugvellir eru hér á landi og er almennt litið á þrjá þeirra sem varaflugvelli fyrir Keflavíkur- flugvöll sem meginhluti umferðarinnar fer um. Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna vekur athygli á því að varaflugvöllur er ekki sérstök teg- und flugvallar heldur hlutverk sem all- ir flugvellir geti sinnt, misvel þó. Kostar 4-5 milljarða Í umsögn Isavia er á það bent að ráðast þurfi í umfangsmiklar og kostn- aðarsamar framkvæmdir ef Alexand- ersflugvöllur eigi að nýtast sem vara- flugvöllur fyrir stærri flugvélar. Í umsögn stofnunarinnar frá árinu 2018, vegna fyrri þingsályktunartillögu, kemur fram að leggja þurfi nýtt yf- irlag á völlinn og breikka, koma upp nýju ljósakerfi, flugleiðsögu, girð- ingum og snjóruðningstækjum og byggja nýja flugstöð. Þá var áætlað að þetta myndi kosta 4-5 milljarða auk þess sem rekstrarkostnaður yrði 400- 500 milljónir. Icelandair Group sagði í umsögn fyrir tveimur árum að þar sem útlit væri fyrir að Reykjavíkurflugvöllur yrði ekki framtíðarlausn sem vara- flugvöllur fyrir Keflavík þyrfti að velja á milli Akureyrar og Egilsstaða. Fram kemur það álit að Egilsstaðir væru betri kostur af öryggisástæðum. Fara þyrfti í framkvæmdir á báðum þessum flugvöllum og það væri nærtækara verkefni en að fara í þá uppbyggingu sem nýr varaflugvöllur kallaði á. Flugið gegn varaflug- velli á Sauðárkróki Ljósmynd/www.mats.is Sauðárkrókur Alexandersflugvöllur er upp af Borgarsandi, fyrir botni Skagafjarðar, við Vestari-Héraðsvötn. Áætlunarflug er ekki flogið þangað. 22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Lífs-kjara-samning- arnir sem gerðir voru í fyrra voru atvinnulífinu ákaflega dýrir. Það á einkum við um þau fyrirtæki þar sem starfsmenn eru á lægri töxt- um enda vegur krónutölu- hækkunin mjög þungt í rekstri þeirra. Svipaða sögu er að segja af þeim samn- ingum sem gerðir voru á und- an lífskjarasamningunum, þeir voru líka mjög dýrir at- vinnulífinu. En þeir komu að sumu leyti á betri tíma og þó að fyrirtækin ættu erfitt með að axla þessar auknu byrðar má ætla að flestir atvinnu- rekendur hafi verið sáttir við samningana, líkt og með lífs- kjarasamningana. Auknar byrðar fyrirtækjanna komu fram í bættum hag starfs- mannanna, sem allir fagna, og þeim fylgdi friður á vinnu- markaði og stöðugleiki í efna- hagslífinu. Þessi stöðugleiki með lágri verðbólgu hefur svo orðið til þess að kaup- máttur hefur vaxið gríð- arlega á síðustu árum. Jákvæðar ytri aðstæður gerðu fyrirtækjunum kleift að komast þokkalega í gegn- um þessa miklu hækkun kostnaðar og atvinnustig hélst þess vegna hátt og hag- ur alls almennings batnaði hratt samhliða litlu sem engu atvinnuleysi. Þetta var gósentíð á marg- an hátt. Nú er tíðin önnur. Samdráttur hefur skollið á og til viðbótar eru víða blikur á lofti. Ríkisstjórnin ræðir um að- gerðir sem grípa megi til í því skyni að lina höggið og er það af hinu góða. Lægri skattar myndu létta atvinnulífinu róðurinn og sjálfsagt er að nýta tækifærið nú og flýta framkvæmdum, ekki síst í innviðum landsins. Öllum má þó ljóst vera að samdrátt- arskeiðið verður ekki sárs- aukalaust, hvernig sem rík- isstjórninni tekst til. Og margir finna þegar fyrir ástandinu eins og sjá má á tölum um mikið og hratt vax- andi atvinnuleysi. Líkur eru á að þær tölur muni versna verulega enn, áður en þjóð- arskútan hefur siglinguna upp úr öldudalnum á nýjan leik. Við þessar aðstæður, þegar þjóðin þarf að standa saman um að verja störf og lífskjör almennings, er vægast sagt furðulegt að hvert verkalýðsfélagið af öðru tilkynni um nýjar verk- fallsaðgerðir, framlengingu að- gerða eða að umræður standi yfir um að hefja aðgerðir. Sérstaka furðu vekur að Efling, félag sem stóð að lífs- kjarasamningnum í fyrra, skuli nú vinna að því að eyði- leggja þann samning. Með samningnum var teflt á tæp- asta vað fyrir fyrirtækin við þær aðstæður sem þá ríktu, en voru betri en aðstæður nú. Engum getur dottið í hug, ekki heldur forystu Eflingar, að nú sé lag að gera samninga sem séu enn dýrari launa- greiðendum. Og þó að við- semjandinn nú sé opinber að- ili, er ljóst að fari hann út fyrir lífskjarasamninginn er sá samningur brostinn og vinnumarkaðurinn allur í uppnámi. Hvorki verkalýðs- félagið né viðsemjandinn geta verið svo ábyrgðarlaus að vilja stuðla að slíkri at- burðarás. Innan Eflingar hljóta að vera einhverjir sem sjá að of langt er gengið og að forystan er að eyðileggja þá vinnu sem unnin hefur verið á síðustu árum, þar með talið með samningnum í fyrravor. Allir eru sammála um að bæta þarf kjör almennings og enginn heldur því fram að þeir sem vinna á lægstu töxt- unum séu ofhaldnir af laun- um sínum. Þetta breytir því ekki að augljóst er að nú er ekki rétti tíminn til að taka stærri skref en þegar hafa verið samþykkt í lífs- kjarasamningunum til að bæta kjörin. Um þetta hljóta allir að geta verið sammála, nema ef til vill þeir sem hafa rifið sig lausa frá hinum efna- hagslega veruleika og ganga erinda löngu látinna kenn- ingasmiða sem stuðlað hafa að sárri fátækt og gríðarlegri misskiptingu auðs og gæða í þeim löndum þar sem látið hefur verið reyna á kenning- arnar. Takist landsmönnum að verja markmið lífskjara- samninganna við þær að- stæður sem nú eru uppi í efnahagsmálum mun það telj- ast mikið afrek þegar fram í sækir. Haldi verkalýðshreyf- ingin áfram á þeirri braut sem hún hefur markað er hins vegar fullvíst að hún mun kalla yfir íslenska launa- menn kjaraskerðingu en ekki kjarabætur. Verkalýðshreyfingin er á villigötum um þessar mundir} Barist fyrir kjaraskerðingu Í lok janúar 2016 birti UNICEF á Ís- landi skýrslu um stöðu íslenskra barna. Þar kom fram m.a. að ríflega 9,1% barnanna liðu mismikinn skort. Þessi skýrsla varð grundvöllur þess að ég ákvað að stofna Flokk fólksins. Flokk sem hafnaði því með öllu að velmegun og auðlegð ís- lensks samfélags virkaði einungis fyrir suma en ekki alla. Hafnar því að 1/10 barnanna okkar byggju við fátækt. Flokkur fólksins segir NEI, hingað en ekki lengra. Þessi neikvæða þróun á kostnað barnanna okkar er okkur til ævarandi minnkunar. Fátæktin vex stöðugt og hefur fjöldi þeirra barna, sem líða mismikinn skort á Íslandi, rúm- lega tvöfaldast á tímabilinu 2009 til 2019. Við erum að tala um börn þar sem fátækt foreldranna getur ekki tryggt þeim grundvallarmannréttindi og uppfyllt ör- yggi þeirra og grunnþarfir, þ.e fæði, klæði og húsnæði. Flokkur fólksins hefur nú á 150. löggjafarþingi mælt fyrir velferðarpakka sínum. Velferðarpakki sem birtist í 5 þingmannamálum sem öll byggja á því að bæta hag lág- launafólks og útrýma fátækt. Engin skattahækkun er samfara hugmyndum Flokks fólksins. Einungis lausnir sem auðvelt er að fylgja ef vilji stæði til þess. Við viljum forgangsraða fjármunum þar sem fólkið er sett í fyrsta sæti. En það er bara enginn vilji, hvorki ríkisstjórnarinnar né ákveðinna stjórnarandstöðuflokka. Akkúrat enginn vilji. Það er með ólíkindum hvernig lágmarksframfærslu- viðmið gefið út af félags- og barnamálaráð- herra hefur nýlega lækkað um tugi þúsunda á mánuði. Það er vert að gefa því gaum að íbúð- arkostnaður er ekki einu sinni reiknaður inn í þetta lágmark. Það er einfaldlega ekki gert ráð fyrir því að við séum með þak yfir höfuðið. Staðreyndin er þó sú, eins og allir vita, að íbúð- arkostnaður er okkur flestum langþyngsti pósturinn þegar kemur að mánaðarlegum út- gjöldum heimilisins. Var þessi lækkun kannski vegna lækkunar vöruverðs og aukins kaup- máttar? Nei, það eru sannarlega ekki allir sem njóta aukins kaupmáttar velferðarsamfélags- ins. Enn og aftur eru það einungis þeir sem eiga nóg af peningum fyrir. Hinir mega halda áfram að hokra í fátækt með börnunum sínum í boði svikinna loforða stjórnmálamanna. Þeirra sem lofa að útrýma fátækt, um leið og þeir segjast hafa skömm á stjórnvöldum sem halda þegnum sínum í slíkum helj- argreipum, vanlíðanar, ótta og fátæktar. Þeirra sömu og svíkja gefin loforð kinnroðalaust um leið og þeir kunna ekki að skammast sín. Eitt er víst að hefðu þeir staðið við gefin loforð, þá væri engin efnahagsfátækt á Íslandi í dag. En staðreyndirnar tala sínu máli. Það var aldrei ætlun þeirra að standa við þau. Flokkur fólksins meinar það sem hann segir og segir það sem hann meinar. Við setjum fólkið í fyrsta sæti. Inga Sæland Pistill Við getum útrýmt fátækt ef við viljum! Höfundur er formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Sveitarfélagið Skagafjörður og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fagna til- lögunni og styðja hana. Í um- sögn beggja er lögð áhersla á mikilvægi þess fyrir ferða- þjónustuna á Norðurlandi að fá millilandaflugvöll á Sauð- árkrók. Í umsögn samtakanna er tekið undir rök í þingsályktunartillögunni um að uppbygging Alexand- ersflugvallar sé öryggismál en jafnframt bent á að hann gæti stuðlað að dreifingu ferða- manna um landið og þannig verið stuðningur við ferða- þjónustuna á Norður- og Austurlandi. Til að árangur náist í að fá ferðamenn til að fara víðar um landið en nú er verði að koma til fleiri alvörufluggáttir á landsbyggðinni. Styrkur fyrir ferðamálin HEIMAFÓLK

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.