Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 24

Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 Óskar Bergsson fasteignasali s. 893 2499 Hildur Harðardóttir lögfr. og lgfs. s. 897 1339 Elín G. Alfreðsdóttir nemi til lögg. s. 899 3090 Sveinbjörn Sveinbjörnsson lögmaður s. 892 2804 Vilhjálmur Einarsson fasteignasali s. 864 1190 H a m r a b o r g 1 2 • 2 0 0 K ó p a v o g u r • 4 1 6 0 5 0 0 ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA www.eignaborg.is Óskar Guðmundsson í fiskbúðinni Hafberg ræðir sundummálfræðileg atriði um leið og hann leggur fiskflakið ávogina. Hann hélt því t.d. fram nýverið að þáskildaga-tíðin væri gagnslaus og úrelt og sagði síðan eitthvað á þessa leið: „Sko, það er alltaf hægt að nota þáliðna tíð í viðteng- ingarhætti í stað þáskildagatíðar. Í stað ’mundi hafa farið’ segjum við bara ’hefði farið’; einfaldleikinn blífur.“ Viðskiptavinirnir höfðu allir þagnað og lagt spenntir við hlustir. – At- vikið í fiskbúðinni Haf- berg vekur vonir um blómstrandi framtíð móð- urmálsins. Og fleira vekur vonir. Ég hef á undanförnum ár- um lesið fornsögurnar okkar á tíu vikna nám- skeiðum á vegum Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Ég finn þar fyrir brennandi áhuga á okkar gömlu skræðum. Kona kom til mín í kaffihléi í Laxdælunámskeiði og sagði að ömmustrákurinn hennar væri nú að lesa Laxdælu í grunnskól- anum, og að þau tvö, amman og drengurinn, ræddu þessa sögu fram og aftur og tækjust jafnvel á um spurninguna stóru: Hvern elskaði Guðrún Ósvífursdóttir mest? Með öllum tiltækum ráðum göngum við til verks. Ég held t.d. að það sé nauðsynlegt að lesa textana upphátt fyrir nemendur í skólastofunni eða láta þá hlusta á upp- lestur sem t.d. má nálgast á Skólavefnum (skolavef- urinn.is). Þá er það lyk- ilatriði að sjá kennurum fyrir aðgengilegum leiðbeiningum og lausnum til að létta þeim störfin. Slíkt efni er tiltækt á Skólavefnum. Og verkefni nemend- anna þurfa að vera við hæfi, m.a. gagnvirkar æfingar, sem þeir geta glímt við í símanum sínum ef svo ber undir. Skólavefurinn bryddaði upp á nýjung síðastliðið haust sem kall- ast Blikkljós. Þar eru tvær Íslendingasögur teknar fyrir og end- ursagðar í stuttu máli en valdir kaflar, blikkljós, birtir í heild, ör- lítið einfaldaðir, þar sem áhrifamestu augnablikunum er lýst, augnablikum sem gætu fylgt nemendum ævilangt. Að auki eru tekin nokkur sýnishorn úr Landnámu þar sem m.a. er greint frá þeim Ingólfi og Hjörleifi og hinni raunverulegu ástæðu þess að þeir héldu til Íslands. „Hver var ástæðan?“ spyrjið þið. Svarið er stutt: „Systir Ingólfs, Helga, sem var elskuð af fleirum en Hjör- leifi.“ Já, óviljandi setti hún allt á annan endann í Noregi – og Ís- land byggðist. Skólavefurinn hefur sett fram nokkurs konar námsskrá í ís- lensku fyrir hvern árgang grunnskólans. Efninu fylgja æfingar og textar af ýmsu tagi sem ungmennin geta glímt við, rafrænt eða á blaði. Blöndum saman gömlu og nýju – og okkur mun farnast vel. Bendum t.d. á leiftrandi spretti nútímahöfunda, sbr. þessi orð Borghildar í nýjustu bók Guðrúnar Evu, Aðferðir til að lifa af (bls. 50): „En hlutskipti mitt er ekkert verra en annarra. Lífið rífur mann á hol og horfir samúðarfullt í augu manns á meðan. Þannig er það.“ Fjör í fiskbúð Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com Ljósmynd/Colourbox Fyrir skömmu varð töluvert uppnám í þýzkumstjórnmálum, þegar formaður Kristilegrademókrata, Annegret Kramp-Karrenbauer(kölluð AKK), sagði af sér í kjölfar þess að ein af svæðisbundnum deildum flokksins hafði gengið til eins konar samstarfs við AfD, Valkost fyrir Þýzka- land, sem telst vera til hægri við Kristilega demókrata í hinu pólitíska litrófi. Í framhaldinu er ljóst að deilur verða innan flokks Angelu Merkel, sem sjálf ætlar að víkja sem kanslari á næsta ári, um hvort halda eigi áfram þeirri pólitík hennar að horfa til kjósenda á miðj- unni eða taka upp harðari hægri stefnu til að stöðva straum hægri sinnaðra kjósenda til AfD. Segja má að þarna standi Kristilegir demókratar frammi fyrir hefðbundnum vanda hægri sinnaðra flokka, sem hafa sótt inn á miðjuna. Og ljóst að mörgum hefðbundnum hægri flokkum í Evrópu hefur reynzt erfitt að fást við áþekka stöðu, þegar upp hafa risið til hægri við þá flokkar sem sumir kalla „pópúlíska“ og leggja þá merkingu í það orð að þar séu öfgakenndar skoðanir á ferð. Í nýafstöðnum kosningum í Bretlandi er ljóst að Íhaldsflokkur Boris Johnson tók þá afgerandi af- stöðu að stefna inn á miðjuna og náði með því umtals- verðu fylgi frá Verkamannaflokkunum í sterkustu vígj- um hans. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Íhaldsflokkurinn brezki nær slíkum árangri. Eftir óvæntan ósigur í fyrstu þingkosningum í Bretlandi eftir heimsstyrjöld- ina síðari undir forystu Churchills sjálfs var hafizt handa um víðtæka endurnýjun á stefnu flokksins, sem leiddi til þess að hann komst til valda á ný og þar með Churchill sjálfur. Á margan hátt má segja að sú end- urnýjun á stefnu flokksins, sem leiddi til þess að hann náði sér á strik á ný, sé skólabókardæmi um það, hvern- ig ganga eigi til slíkra verka, þótt sú saga verði ekki rakin hér. En nú hefur miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákveðið að næsti landsfundur flokksins verði í nóvember nk. og í ljósi fylgis flokksins í skoðanakönnunum um langt skeið er ekki ólíklegt – og raunar æskilegt – að í aðdraganda landsfundar fari fram opnar umræður innan flokksins um hvernig bregðast eigi við þeim niðurstöðum og að landsfundur marki í kjölfar slíkra umræðna ákveðna stefnu um hvernig það skuli gera. Sá er munur á stöðu Kristilegra demókrata í Þýzka- landi og Sjálfstæðisflokksins hér, að þótt Viðreisn sé klofningsbrot úr Sjálfstæðisflokknum, ógnar hún hin- um síðarnefnda ekki frá hægri eins og AfD gerir í Þýzkalandi gagnvart Kristilegum demókrötum. Það er tæpast hægt að tala um klofning í Sjálfstæðis- flokknum til hægri frá árinu 1953, þegar Lýðveldis- flokkurinn bauð fram en hafði ekki erindi sem erfiði. Kannski mundu einhverjir vilja skilgreina Miðflokkinn á þann veg en hann verður auðvitað fyrst og fremst til vegna klofnings í Framsóknarflokknum, þótt ekki fari á milli mála að eitthvað af fylgistapi Sjálfstæðisflokksins hefur farið til þess flokks. Yfirleitt hafa forystumenn Sjálfstæðisflokksins gert lít- ið úr því að flokkur sem áratugum saman hafði fylgi sem sveiflaðist á milli 37% og 42% í kosningum lafi nú rétt ofan við 20% í könnunum. Þess vegna vakti það athygli að Þór- dís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður flokks- ins, talaði á annan veg á fundi Samtaka eldri sjálfstæð- ismanna í Valhöll hinn 22. janúar sl. Þar sagði hún að Sjálfstæðisflokkurinn yrði að vera tilbúinn til að breyta til og bætti við: „Við þurfum að vera manneskjulegri þegar við tölum“ og sagði að þannig mundi Sjálfstæðisflokkurinn ná til fleiri kjósenda. Og herti enn á þessum orðum með því að segja: „Við getum ekki keyrt áfram“ með sama hætti og verið hefur. Þetta er rétt mat hjá varaformanni Sjálfstæðisflokks- ins og kannski má segja að með ræðu sinni í Valhöll þann dag hafi hún hafið þær umræður um endurnýjun flokks og stefnu, sem þurfa að fara fram í aðdraganda lands- fundar og móta landsfundinn sjálfan. Gera verður ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi látið gera dýpri kannanir en fram hefur komið um ástæður fyr- ir fylgistapi flokksins. En áhorfanda, sem fylgist með úr fjarlægð, kemur þessi staða þannig fyrir sjónir, að flokk- urinn eigi við ákveðinn ímyndarvanda að etja sem kannski endurspeglast í málflutningi einstakra þingmanna Við- reisnar, fyrrverandi félaga í Sjálfstæðisflokknum, sem leggja ítrekað áherzlu á að Viðreisn sé flokkur sem berjist fyrir almannahag en ekki sérhagsmunum. Jón Gunnarsson, alþingismaður og ritari Sjálfstæðis- flokksins, segir í grein hér í Morgunblaðinu fyrir viku um hringferð þingflokksins um landið: „Það sem mér finnst standa upp úr eftir þennan fyrsta áfanga ferðarinnar er að fólki finnst að of mikið sé talað og of lítið áþreifanlega gert.“ Þarna víkur Jón að öðru vandamáli, sem hrjáir pólitík okkar um þessar mundir, að stjórnmálamenn virðast margir hverjir halda að það sé nóg að tala – og helzt á þann veg sem almannatenglar ráðleggja. Þau ummæli varaformanns og ritara Sjálfstæðisflokks- ins, sem hér hefur verið vitnað til, vekja vonir um að þetta geti orðið árið sem marki endurnýjun Sjálfstæðisflokks- ins og stefnu hans en hvoru tveggja er nauðsynlegt, ekki bara vegna kosninga á næsta ári, heldur líka til þess að flokkurinn geti áfram verið sú kjölfesta í samfélagi okkar sem hann óumdeilanlega hefur verið mestan hluta lýð- veldistímans. Þetta litla samfélag þarf á slíkri kjölfestu að halda. ...með opnum umræðum Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Endurnýjun Sjálfstæðisflokksins … Fyrir viku rakti ég hér hinasnjöllu dæmisögu franska rit- höfundarins Frédérics Bastiats um brotnu rúðuna, en hana notaði hann til skýra, hvers vegna eyðilegging verðmæta gæti ekki örvað atvinnu- lífið, eins og sumir héldu fram. Fyrsta íslenska hagfræðiritið, Auð- fræði Arnljóts Ólafssonar, sem kom út árið 1880, var að miklu leyti sam- ið upp úr ritum Bastiats, og í Ísafold 25. september 1880 birtist þessi dæmisaga Bastiats staðfærð. Það fauk í Jón gamla Jónsson, þegar óþekktaranginn sonur hans braut askinn sinn. En nærstaddir hlógu að Jóni og hugguðu hann með því, að peningarnir gengju ekki úr landinu. „Nú fær askasmiðurinn eitthvað að gera. Allir þurfa ein- hverja atvinnu, og hvað á að verða af askatrénu, sem rekur á Skaganum, ef hann má ekki smíða neitt úr því?“ Þessir viðmælendur Jóns höfðu hins vegar rangt fyrir sér, að sögn Ísafoldar. Ef tvær krónur kostar að smíða nýjan ask, þá segja þeir, að innanlandsiðnaðurinn hafi grætt þá upphæð. Þetta er rétt. Smiðurinn kemur, fær þessar tvær krónur og blessar í huganum drenginn. Þetta sjáum við. En það, sem við sjáum ekki, er, að Jón gamli hefði getað notað þessar tvær krónur í eitthvað annað, til dæmis folaldaskinn. Hefði sonur hans ekki brotið askinn, þá hefði Jón gamli notið hvors tveggja, asksins og folaldaskinnsins. Hann sjálfur og um leið heildin hefur tapað því sem nemur andvirði asksins, tveimur krónum. Innanlandsiðnaðurinn hef- ur ekki „neinn hag á því, að askar séu brotnir eða keröldin í búrinu séu mölvuð“. Jón hefði keypt folalda- skinnið fyrir krónurnar tvær. Í Ísafold er dregin af þessu al- menn ályktun: „Mannfélagið bíður skaða af öllum þeim hlutum, sem eru ónýttir til einskis. Þessi sann- leikur, sem mun skelfa vernd- unartollamennina, hljóðar svo: að brjóta, bramla og eyða er ekki það sama og að hvetja alþýðu til nýrra starfa, í stuttu máli: eyðing er ekki ábati.“ Boðskapur Bastiats og lærisveins hans á Ísafold var einfaldur og á enn við: Þegar til langs tíma er litið, verður atvinnulífið ekki örvað með verndartollum eða opinberum styrkjum, heldur með því að leysa úr læðingi krafta einstaklinganna og kosti alþjóðlegrar verkaskiptingar. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Bastiat og brotni askurinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.