Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020
Kirkjuvegur 10, 230 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Mikið endurnýjuð falleg, 3 herbergja jarðhæð
í miðbæ Keflavíkur.
Myndir og lýsing á eignasala.is
Verð kr. 30.900.000.- 82,8 m2
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Hilmir Freyr Heimisson,18 ára, og VignirVatnar Stefánsson, 17ára, unnu til gull-
verðlauna í sínum flokkum á
Norðurlandamóti ungmenna sem
fram fór í Fredericia í Danmörku
um síðustu helgi. Hilmir, sem
tefldi í aldursflokki A fyrir kepp-
endur fædda á árabilinu 2000-
2002, hlaut 5 vinninga af 6 mögu-
legum og varð einn efstur. Sigur
hans hékk þó á bláþræði því helsti
keppinautur hans, Svíinn Isak
Storme, hefði með sigri yfir Bárði
Erni Birkissyni í lokaumferðinni
getað náð Hilmi að vinningum og
unnið á betri mótsstigum. En til
þess kom ekki því að Bárður tefldi
af óbifanlegu öryggi í þessari mik-
ilvægu skák, gerði jafntefli og það
tryggði Hilmi sigur.
Vignir var með kvefpest allt
mótið en lét það ekki hafa áhrif á
sig. Hann varð í 1.-2. sæti i B-
flokknum, sem skipaður var kepp-
endum fæddum 2002 og 2003. Jafn
honum að vinningum varð Norð-
maðurinn Noam Vitenberg en
Vignir var hærri á stigum. Það
skipti sköpum að Stephan Briem
vann mikilvæga skák í loka-
umferðinni og bætti með því við
stigatölu Vignis svo um munaði.
Þetta er þriðja árið í röð sem
Íslendingar vinna til tvennra gull-
verðlauna í fimm flokkum en
flokkarnir eru vel skipaðir. Þannig
státa Norðmenn, sem fengu flesta
vinninga samanlagt, af mikilli
breidd sem rekja má til hinnar
miklu uppsveiflu skákarinnar í í
Noregi. Hilmir Freyr hefur tvisv-
ar unnið sinn flokk á
Norðurlandamótunum en hóf
keppni á þessum vettvangi í Bif-
röst árið 2013. Vignir Vatnar hef-
ur einnig unnið tvisvar og byrjaði
einnig í Bifröst.
Bárður og Stephan Briem
deildu 3. sæti með öðrum í sínum
aldursflokkum. Íslenski hópurinn
taldi tíu keppendur þar af fjór-
anýliðar. Allir sýndu góða takta,
t.d. Ingvar Wu Skarphéðinsson
sem tefldi á efsta borði í næstsíð-
ustu umferð. Benedikt Briem átti
eina skemmtilegustu fléttu móts-
ins sem spratt upp úr þessari
stöðu í hinum sterka c-riðli:
NM ungmenna 2020; 2. umferð:
Oscar Veiergang ( Danmörk ) –
Benedikt Briem
Benedikt lék nú ...
35. ... Rge3!
Vinnur ekki með bestu tafl-
mennsku en er áhættunnar virði
því að svartur getur ekki tapað.
36. fxe3 Rxe3 37. Dc7??
Liggur beint við en best var 37.
De4! með hugmyndinni 37. ...
Rxc2+ 38. Kh1 og hvítur nær
þráskák því að riddarinn á c2 er í
uppnámi og einnig g6-peðið.
37. ... Dd4! 38. Hf2?
Tapar strax. Fyrstu athuganir
virtust benda til þess að hvítur
gæti varist með árangri með 38.
Hd2, t.d. 38. ... Da1 39. He2! og
vinnur. En svartur lumar á
kynngimögnuðum leik, 38. ... De4!
Nú dugar auðvitað ekki 39.
Bxe4 vegna 39. ... Hf1 mát en hót-
un svarts er jafnframt 39. ...
Dxg2+ 40. Hxg2 Hf1 mát. Hvítur
getur reynt 39. Bh3 en þá kemur
39. ... Rc4! 40. Hd1 De3+ 41. Kh1
Df3+ og hrókurinn á d1 fellur.
38. ... Hxf2! 39. Kxf3 Rxd5+
- og hvítur gafst upp því að
drottningin fellur.
Hannes efstur fyrir
lokaumferðina í Prag
Hannes Hlífar Stefánsson hefur
staðið sig með mikilli prýði í
áskorendaflokki skákhátíðarinnar
í Prag. Hann náði strax í upphafi
forystu í mótinu en fyrir síðustu
umferð sem fram fór í gær höfðu
þrír komist upp við hlið hans og
voru allir með 5 vinninga af átta
mögulegum. Í síðustu umferð átti
Hannes að tefla með svörtu við
Hollendinginn Jorden Van
Foreest.
Tvenn gullverðlaun
á NM ungmenna
í Fredericia
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Kjartan Briem
Norðurlandameistarar Vignir Vatnar Stefánsson t.v. og Hilmir Freyr
Heimisson t.h. með gullverðlaun sín á Norðurlandamóti ungmenna.
Guðmundur gríss Ámundason var
íslenskur höfðingi á 12. öld en ekki er
vitað hvenær hann var fæddur. For-
eldrar hans voru Ámundi Þorgeirsson
og Þóra Bjarnadóttir.
Guðmundur var allsherjargoði og
prestur á Þingvöllum. Hann var virtur
og vinsæll höfðingi og var sagt um
hann að hann hefði fleira veitt fyrir
guðs sakir en flestir menn aðrir. Hann
lét síðar frá sér allar eigur sínar og
gerðist munkur.
Kona Guðmundar var Solveig, f. um
1151, d. 1193, dóttir Jóns Loftssonar.
Dætur hans hétu báðar Þóra, sú eldri
giftist Jóni Sigmundssyni og var sonur
þeirra Ormur Svínfellingur. Þóra
yngri giftist Þorvaldi Gissurarsyni; og
var sonur þeirra Gissur Þorvaldsson.
Synir Guðmundar voru Magnús góði,
sem kjörinn var Skálholtsbiskup 1236
en fékk ekki vígslu, og Þorlákur, faðir
Staða-Árna Þorlákssonar biskups.
Guðmundur lést 22. febrúar 1210.
Merkir Íslendingar
Guðmundur gríss Ámundason
Þingvellir Guðmundur var
allsherjargoði og prestur þar.
Morgunblaðið/Júlíus
Hugtakið og hug-
myndin um þjóðar-
öryggi hefur jafnan
verið sveipað nei-
kvæðri merkingu
vegna hugrenninga-
tengsla við hernaðar-
uppbyggingu, varnir
gegn hryðjuverkum og
hvers kyns vernd gegn
hernaðarárásum á ríki.
Hugtakið er um leið
nátengt hugtakinu um fullveldi ríkja,
þ.e. rétt þeirra til að halda uppi stjórn
á tilteknu landsvæði og viðurkenn-
ingu annarra ríkja á þessu valdi. Ís-
land hefur sem þátttakandi í alþjóða-
samfélagi rétt til þess að tryggja
öryggi og efla varnir sínar gagnvart
ógnunum sem hugsanlega gætu
steðjað að borgurunum, efnahagslífi
og lykilstofnunum. Á síðustu árum
hefur orðið viss stefnubreyting í
skýringu á hugtakinu „þjóðaröryggi“.
Í stað hugleiðinga um hernaðarbrölt
snýr hugtakið nú fremur að rétti
ríkja til þess að tryggja borgurunum
öryggi, sjálfbærni og hagsæld til upp-
byggingar og framfara í landinu.
Hvernig verður það gert?
Veturinn hefur verið erfiður fyrir
marga íbúa landsbyggðarinnar.
Langvarandi rafmagnsleysi sem skall
á í fárviðrinu 10. og 11. desember var
fordæmalaust. Í langvarandi raf-
magnsleysi reynir á
varaafl og eftir að varaafl
þrýtur stöðvast almenn
fjarskiptaþjónusta. Við-
brögð íbúa á þeim svæð-
um sem urðu hvað verst
úti, forsvarsmanna lyk-
ilstofnana og stjórnmála-
manna staðfesta að fjöl-
margir þættir í
öryggiskerfi okkar
brugðust. Veikleikar raf-
orkuflutningskerfisins
okkar hafa verið afhjúp-
aðir, veikleikar sem Landsnet hefur
reyndar bent á árum saman.
Hlutverk Landsnets er að tryggja
hagkvæma uppbyggingu og rekstur
raforkukerfisins. Landsnet hefur
hins vegar ekki getað fylgt eftir áætl-
unum sínum um uppbyggingu flutn-
ingskerfisins í mörg ár, m.a. vegna
þess að regluverkið er flókið og óskil-
virkt og vegna margslunginna deilna
sem einungis lögmenn virðast hagn-
ast á. Ekki er þó lausnin á þeim
vanda að líta einungis til lagningar
jarðstrengja, þar sem einungis má
koma um 10% af rúmlega 1.000 km af
132 kV núverandi loftlínu í jörðu. Þá
er einungis sá möguleiki að koma 5%
af heildarlengd nýrrar 220 kV
byggðalínu í jörðu.
Skyldur ríkja að
tryggja þjóðaröryggi
Í kjölfar óveðursins 10. og 11.
desember 2019 skipaði ríkisstjórnin
sérstakan átakshóp um úrbætur á
innviðum. Hópnum er ætlað að meta
hvaða aðgerðir séu færar til að efla
innviði í flutnings- og dreifikerfi raf-
orku og fjarskiptum svo hægt sé að
takast á við öfgafullar aðstæður, s.s.
ofsaveður eða aðrar náttúruhamfarir.
Það verður því áhugavert að sjá
hvers konar tillögum átakshópurinn
skilar.
Brýnt er þó að hafa í huga að það
er skylda ríkisins að tryggja þjóðar-
öryggi. Þingsályktun um þjóðar-
öryggisstefnu fyrir Ísland sem sam-
þykkt var á Alþingi 13. apríl 2016 er
að mínu mati ekki nógu ítarleg hvað
varðar grunninnviði okkar, þ.e. sam-
göngur, raforku- og fjarskiptakerfi.
Ég hef því óskað eftir skýrslu stjórn-
valda um stöðu þessara mála en ná-
grannar okkar, t.d. Norðmenn, Svíar
og Finnar, hafa mótað yfir-
gripsmiklar stefnur um alla þætti
þjóðfélaga sinna með tilliti til öryggis,
viðbúnaðar og viðbragðsgetu.
Forgangsraða þarf í kerfinu þann-
ig að þjóðaröryggi og öryggi fjöldans
vegi þyngra en hagsmunir fárra. Það
gerum við með styrkingu flutnings-
og dreifkerfis raforku á landinu öllu,
öryggi fjarskipta og greiningu sam-
félagslegra innviða út frá þjóðarör-
yggi landsins og samfélagsins alls
með það að markmiði að tryggja ör-
yggi, sjálfbærni og hagsæld Íslands.
Þjóðaröryggi höfuð-
skylda stjórnvalda
Eftir Njál Trausta
Friðbertsson
Njáll Trausti
Friðbertsson
» Forgangsraða þarf
í kerfinu þannig að
þjóðaröryggi og öryggi
fjöldans vegi þyngra en
hagsmunir fárra.
Höfundur er þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins og formaður Íslandsdeildar
NATO-þingsins.