Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 Stærðir eru breytilegar og hægt að innrétta að vild. Umhverfið er í miðju fjölbreyttu miðborgarlífinu með mikla nálægð við ferðamenn. Möguleikarnir eru endalausir en rýmin henta vel ýmiskonar rekstri s.s. gullsmiði, snyrtistofu, hárgreiðslustofu, kaffihús, heilsubúð, mörkuðum af ýmsu tagi, listamönnum, einnig sem skrifstofur s.s lögfræðistofur, auglýsingastofur og arkitektar svo fátt eitt sé nefnt. Einnig gefst kostur á að tengja saman rekstur og búsetu í sama húsnæðinu. Brynjureitur afmarkast af Laugavegi 27 a og b og Hverfisgötu 40-44 og á milli þeirra liggur ný og skemmtileg göngugata sem getur skapað sér sérstöðu í hringiðu miðbæjarins og hefur fengið nafnið Kasthúsastígur. Við Laugaveg 27 a og b eru stærði í boði á bilinu 31 m² til 239 m² en við Hverfisgötu frá 60 m² til 255 m². Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteigna- sali í s. 897 7086 hmk@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali í s. 824 6703 olafur@jofur.is. Nýtt og spennandi verslunar- og þjónustuhúsnæði á Brynjureit TIL LEIGU Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Í skýrslu starfshóps forsætisráðherra frá 2018 um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu er vísað til OECD þar sem stjórn- völd eru hvött til að veita hagsmunaaðilum jafnan og sanngjarnan aðgang að opinberri stefnumótun til að tryggja heilindi í ákvörðunartöku og að almannahagsmunir séu hafðir að leið- arljósi. Skýrsla starfshóps sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi sem gefin var út þann 23. ágúst 2017 setti leikregl- urnar sem voru skjalfestar í lögum um fiskeldi árið 2019 og lagði grunn að fjárhagslegum ávinningi stjórnarfor- manna stærstu laxeldisfyrirtækjanna sem voru fulltrúar Landssambands fiskeldisstöðva í hópnum. Að koma sér í lykilstöðu Á árinu 2014 voru gerðar breyt- ingar á lögum um fiskeldi, en með stórtækum hugmyndum um upp- byggingu eldis laxfiska í sjókvíum, var umhverfið strax á árinu 2016 orðið allt annað en þá var. Leyfisveitingarkerfið var komið í uppnám fyrst og fremst vegna vinnubragða fyrirtækja stjórn- arformanna Arnarlax og Fiskeldis Austfjarða, með um 70% eldissvæða. Stjórnarformennirnir komu sér inn í stefnumótunarhópinn sem fulltrúar Landssambands fiskeldisstöðva og urðu helstu ráðgjafar stjórnvalda. Stefnumótunarskýrslan Í stefnumótunarskýrslunni var ekki nægilega vel tekið á þeim áskorunum sem voru fram undan á næstu árum og áratugum. Drifkrafturinn var að tryggja fjárhagslega hagsmuni laxeld- isfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila á kostnað annarra. Það sorglega er að tillögurnar í stefnumót- unarskýrslunni fela í sér að Íslend- ingar standa að baki ná- grannalöndum í umhverfismálum lax- eldis í sjókvíum. Til- lögur í stefnumót- unarskýrslunni hafa verið mjög umdeildar og skapa enga sátt eins og stefnt var að. Fiskeldisfrumvarpið Fiskeldisfrumvarpið sem fyrst var lagt fram á vorþingi 2018 byggðist á skýrslu starfshóps um stefnumótun í fiskeldi. Fjölmargir aðilar, undirritaður, minni fiskeldisfyrirtæki, veiðiréttareig- endur, sveitarfélög, samtök o.fl. komu með alvarlegar athugasemdir en lítið sem ekkert var tekið tillit til þeirra í þeim fjórum umsagnarferlum sem hafa verið í þessu máli. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kom með lít- ið breytt fiskeldisfrumvarp í byrjun ársins 2019. Það vakti athygli að ráð- herra tók ekki á leikreglum hönn- uðum af stjórnarformönnum Arnarlax og Fiskeldis Austfjarða til að tryggja þeim og þeirra fyrirtækjum fjárhags- legan ávinning. Þannig var látið hjá líða að taka á málunum við gerð fisk- eldisfrumvarpsins í ráðuneytinu sem vekur mann til umhugsunar. Afgreiðsla Alþingis Við afgreiðslu fiskeldisfrumvarps- ins á Alþingi vakti einnig athygli hags- munapot fulltrúa stærstu laxeldisfyr- irtækjanna sem höfðu verið í starfshópi um stefnumótun í fiskeldi. Því er e.t.v. best lýst með því að þeir fylgdu atvinnuveganefnd í skoð- unarferð alla leið í sjókvíaeldisstöðvar í Noregi enda miklir hagsmunir í húfi. Hér má velta því fyrir sér hvort skort- ur sé á leikreglum um aðgengi hags- munaaðila að alþingismönnum. Þegar fiskeldisfrumvarpið kom til Alþingis Íslendinga var það í raun ótækt til af- greiðslu og þurfti því fjölmargar breytingar að gera á því. Það má segja Alþingi Íslendinga til hróss að tekið var á ýmsum málum í fiskeld- isfrumvarpinu. Eftir standa þó fjöl- mörg viðfangsefni sem fjallað verður um í seinni greinum. Engin sátt Við útgáfu stefnumótunarskýrsl- unnar var sáttin eingöngu á meðal þeirra sem sátu við borðið, Lands- samband fiskeldisstöðva og Land- samband veiðifélaga. Ósáttir voru þeir sem sátu ekki við borðið s.s. minni fiskeldisfyrirtæki í eigu ís- lenskra aðila, veiðiréttareigendur ut- an Landssambands veiðifélaga, sveit- arfélög og umhverfissamtök. Við þennan hóp bætist síðan Lands- samband veiðifélaga í umsögn sinni við fiskeldisfrumvarpið árið 2019 en þar kemur m.a. fram: „Efni frum- varpsins gengur þvert á undirritað samkomulag hagsmunaaðila og full- rúa sjávarútvegs og landbúnaðar- ráðherra og umhverfis- og auðlinda- málaráðherra sem sæti áttu í starfshópi ráðherra um stefnumótun í fiskeldi“. Eftir standa hagsmuna- samtök fiskeldismanna sem af skilj- anlegum ástæðum stíga varlega til jarðar þar sem ráðandi félög innan samtakanna hafa náð verulegum fjár- hagslegum ávinningi. Það er engin sátt um þau vinnubrögð sem hafa ver- ið viðhöfð við undirbúning og gerð breytinga á lögum um fiskeldi, ósætti sem mun endurspegla vinnuna fram- undan á næstu árum og jafnvel ára- tugum. Eftir Valdimar Inga Gunnarsson » Stefnumótunar- skýrslan setti leik- reglurnar sem voru skjalfestar í lögum um fiskeldi og lagði grunn að fjárhagslegum ávinn- ingi stjórnarformanna Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. valdimar@sjavarutvegur.is Sjókvíaeldi laxfiska – Stefnu- mótunarskýrslan, fiskeldis- frumvarpið og vinnubrögðin Nýfædda barnið erósköp ósjálfbjarga þeg- ar það liggur á teppinu. En ekki líður á löngu þar til það getur velt sér um hrygg. Svo fer það að skríða. Þegar maður horfir á ung- barn á hröðu skriði læðist sú hugsun að hvort ekki hefði verið betra fyrir mann- skepnuna að nota alla fjóra útlimina til gangs, frekar en að staulast upp á afturlappirnar. En því verður víst ekki breytt héðan af og alla vega tekst flestum að notast við tvo jafn fljóta til að baslast uppréttir í gegn- um lífið. Vissulega getur fólk á bezta aldri misst jafnvægið og dottið, sér í lagi ef það hefir fengið sér of mikið neðan í því. Í því tilfelli verð ég að segja ykk- ur frá Gumma frænda. Hann bjó úti á landi, en hafði komið í bæinn, í op- inberum erindagjörðum, sagði hann, og gist á Hótel Borg. Eitt kvöldið hafði hann farið á veglegt átt- hagamót. Daginn eftir spurði ég hann, hvernig allt hefði gengið. Sagði hann að allt hefði verið í fínum gír þar til hann var á leiðinni upp á hótel. Þegar hann var að koma inn í Póst- hússtræti hefði einhver auli stigið á höndina á honum! En eftir starfsævina kemur ellin hjá þeim sem lifa nógu lengi. Út af fyrir sig er hún ekki slæm og talað er fjálglega um gullnu árin. Einhver gárunginn sagði þó að enginn þyrfti að óttast ellina því hún entist ekki. Í alls kyns auglýsingum eru sýndar myndir af voða sætum, gráhærðum hjónum í flottu formi sem brosa hvort fram í annað. Nú geta þau farið til Kanarí og dvalið eins lengi og þeim sýnist. Svo koma þau heim með gjafir fyrir barnabörnin. Hjá sumum má líkja ellinni við að komast í var eftir stormasama ævi. Nú þarf ekki lengur að brjótast áfram í atvinnulífinu eða troðast upp metorðastigann. Ekki lengur að berj- ast fyrir flottara húsnæði og nýrri bíl. Nú róast mestallt niður, hárið gránar eða hverfur, meltingin hægir á sér en blóðþrýstingurinn tekur upp á því að hækka. Ég reikna með að það sé líkamlega svipað að eldast á Íslandi og hérna í henni Ameríku. Þegar maður fylgist með Ís- lands fréttum á netinu er eftirtektarvert að lesa um óánægju eldri borgara í landinu. Þeir virðast sífellt vera að berjast fyrir bættum kjörum. Eitt sem ég hefi þar séð er að ellilífeyrir skerðist hjá þeim sem vilja halda áfram að vinna og þiggja laun. Hér í auðvalds- ríkinu geta menn unnið eins og þeim sýnist þótt þeir séu á fullum ellilíf- eyri. Fyrir okkur, gamlingjana í útlönd- um, sem viljum fylgjast með því, sem gerist á gamla ættlandinu, er á einn hængur. Kynslóðin sem nú rekur landið er númer tvö frá okkar kyn- slóð. Þegar einn eða annar leiðtoginn er í sviðsljósinu, vil ég eins og góður Íslendingur vita „hverra manna er hann eða hún?“ Hér get ég engan spurt. En oft á árum fyrr þegar mig vantaði slíkar upplýsingar, hringdi ég í vin minn og skólabróður, Kela Valda. Hann þekkti allt og alla. Dæmigert svar hans var: Þú varst nú ekki svo lítið hrifinn af ömmu hennar, henni Siggu Jóns!“ En nú er Keli horfinn af sjónarsviðinu og ég veit ekkert hver er hvað lengur. Nú á dögum er sífellt verið að vara gamalt fólk við því að detta. Orðtakið „fall er fararheill“ virðist ekki gilda um gamlingja. Sagt er að ein algeng- asta dánarorsökin hjá öldungum sé fall og beinbrot. Ég man ekki eftir í æsku að hafa heyrt mikið um að fólk dytti nema kannske í hálku. Svo duttu náttúrulega kallar í það en það er nú önnur saga. Aldrei heyrði ég um það að amma hefði dottið. En nú er tíðin önnur. Læknavís- indunum hefir fleygt fram og mann- fólkið lifir lengur. Gamlingjarnir taka helling af lyfjum og framleiðendur þeirra græða á tá og fingri. Og allt er fullt af sögum af fólki sem er alltaf að detta. Hjá sumum gefa lappirnar sig og hjá öðrum er það bölvaður svim- inn. Margir kenna lyfjunum um og séð hefi ég glas af blóðþrýstingslyfi þar sem stendur stórum stöfum: Get- ur orsakað svima. Öldruð nágranna- kona mín datt um daginn og lá á bak- inu í fjóra tíma áður en henni var hjálpað. Hún gat ekki einu sinni velt sér um hrygg. Ég bý hér í mjög fallegu hverfi og eru langflestir íbúarnir komnir af léttasta skeiði. Um daginn fór ég að gamni mínu yfir íbúalistann. Alls búa hér 220 manns og þar af eru einungis 55 karlar. Hér er því allt fullt af ekkj- um og öðrum einhleypum konum. Mjög margar þeirra eiga litla hunda eða kjölturakka sem þær þurfa að fara með út að labba reglulega. Þegar ég fer í mínar daglegu göngur hitti ég þessar konur og er orðinn þeim mál- kunnugur. Í síðustu viku rakst ég á nágranna- konu mína, Mörtu, sem var úti að labba með sinn rakka, Max, til gefa honum tækifæri til að ganga örna sinna. Sagði hún mér þá í óspurðum fréttum að hún hefði dottið daginn áður á veitingahúsi. Hún var þar með dóttur sinni og hafði staðið eitthvað of fljótt upp, sortnað fyrir augum og dottið á gólfið. Sem betur fer er Marta í góðum holdum svo engin bein brotnuðu. Varð mér þá á orði og hér verð ég að nota enskuna: „When you are young you fall in love. But when you are old, you just fall.“ Eftir Þóri S. Gröndal Þórir S. Gröndal »Nú á dögum er sífellt verið að vara aldrað fólk við því að detta. Orðtakið „fall er far- arheill“ virðist ekki gilda um gamlingja. Höfundur er fyrrverandi fisksali og ræðismaður í Suður-Flórída. floice9@aol.com Ekki detta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.