Morgunblaðið - 22.02.2020, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 22.02.2020, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 Ég hef verið íbúi við Laugaveginn í tuttugu ár. Nú er svo komið að ég get vart orða bundist mikið lengur. Þess vegna rita ég þetta opna bréf til þín Dagur B. Eggertsson, borgar- stjóri í Reykjavík. Það er nefnilega svo Dagur, að ég hef fengið nóg og er virkilega óttasleginn fyrir hönd míns nærumhverfis. Til að útskýra aðeins aðstæður mínar, þá er ég einhleypur karl- maður, og kominn til ára minna. Ég bý á yndislegum stað fyrir miðju Laugavegar. Ég er enn sem komið er á vinnumarkaði og sé ekki fyrir mér að hætta svo fremi sem guð gefur mér það að vakna á morgnana. Ég kem heim úr vinnu flesta daga milli fimm og sex en ég er farinn af stað klukkan fimm á morgnana. Klukkustund að finna stæði Þegar ég legg af stað úr vinnu ek ég rakleiðis heim, sem tekur mig langan tíma enda berð þú ábyrgð á, herra borgarstjóri, einni verstu um- ferðarstjórnun sögunnar í borginni minni, Reykjavík. Það tekur u.þ.b. klukkustund að komast heim frá vinnu. Og ekki er hægt að skrifa neinn annan en þig fyrir þeirri staðreynd. Eftir að heim er komið á ég eftir að finna stæði en ég er einn af þeim heppnu sem eru með svokallað íbúakort, sem veitir réttindi til að leggja án þess að borga í stöðu- mæli. Hins vegar tekur það mig mjög langan tíma að finna stæði en það hefur lengst tekið mig tvær klukkustundir. Þetta er ekki boðlegt, herra borg- arstjóri og nágranni. Óðinstorg Ég veit svo sem til þess að við heimili þitt að Óðinsgötu, þar sem nú víkja bílastæði fyrir fallegu torgi, svokölluðu Óðinstorgi, ert þú með einkastæði enda legg ég mína leið stundum að veitingastaðnum Snaps við Óðinsgötu. Kannski þykir þér ekkert tiltökumál, hr. borgarstjóri, að eyða þrjú hundruð milljónum af skattfé borgaranna til að ryðja burtu stæðum fyrir aðra íbúa en sjálf- an þig og hrekja um leið rekstraraðila frá svæðinu til þess eins að fegra umhverfið í kringum híbýli þitt. Fasteignaverð fast- eignar þinnar hlýtur að hækka mikið við þessa framkvæmd, enda ert þú sjálfur með einka- bílastæði, sem verður enn verðmætara við fækkun bílastæða í kringum húsið þitt. Lokun Laugavegar Nú er svo komið að þú ætlar að loka Laugaveginum og hrekja í burtu síðustu kaupmennina frá svæðinu. Þvílík ósvífni, herra borgarstjóri. Borg án atvinnulífs mun deyja út. Það er alveg ljóst og ekki þarf frekari vitnanna við en t.d. Detroit í Banda- ríkjunum. Það er einkennilegt með þig að þú virðist ákveða hvað er rekstraraðilum á Laugaveginum fyr- ir bestu. Og gerir það án nokkurs samráðs við þá. Ég sjálfur sæki alla mína þjónustu til þessara aðila og býður við því, miðað við vandamál mín við að finna bílastæði, að þurfa að leita annað eftir þjónustu. Verslun minnkar Þessir aðilar sjá það mælanlega að verslun minnkar þegar Laugaveg- inum er lokað. Þetta sést á bókhaldi þessara verslana. Við verðum líka að taka með í reikninginn að við búum á Íslandi, ekki á Kanaríeyjum. Best færi á því að ef hið svokallaða Ak- ureyrarmódel yrði tekið upp en sú ráðstöfun, að mér skilst, felst í því að leyfa rekstraraðilum sjálfum að loka, t.d. á góðviðrisdögum. Þá er auðvitað sjálfsagt að loka Laugaveginum á Þorláksmessu og öðrum hátíð- ardögum, t.d. 17. júní ef því er að skipta. Fyrirhuguð undirskriftasöfnun íbúa Ég hef rætt við íbúa á svæðinu sem eru alveg kolbrjálaðir yfir fram- göngu þinni. Þessir íbúar eru að íhuga að setja af stað undirskrifta- söfnun til stuðnings kaupmönnunum á Laugavegi, enda eru þeir í sömu sporum og ég. Að lokum vil ég benda þér á að þetta mun á endanum lækka fast- eignaverð okkar íbúana við Lauga- veg og því skora ég á þig að endur- skoða þessa ákvörðun þína. Það er skylda þín að hugsa um velferð allra borgarbúa sem borgarstjóri í Reykjavík. Opið bréf til borgarstjóra Eftir Þórarin Stefánsson Þórarinn Stefánsson »Kannski þykir þér ekkert tiltökumál, hr. borgarstjóri, að eyða þrjú hundruð milljónum af skattfé borgaranna til að ryðja burtu stæðum fyrir aðra íbúa en sjálf- an þig og hrekja um leið rekstraraðila frá svæð- inu til þess eins að fegra umhverfið í kringum híbýli þitt. Höfundur er íbúi við Laugaveg. TILBOÐ Á OPEL ATVINNUBÍLUM FRAMLENGT TIL 29. FEBRÚAR Frábær vinnukraftur! Birtm eð fyrirvara um verð-og textabrengl. benni.is Opel á Íslandi Reykjavík Krókhálsi 9 590 2000 Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 420 3330 Opið virka daga frá 9 til 18 Laugardaga frá 12 til 16 Verið velkomin í reynsluakstur 2.870.000kr. VIVARO VAN Listaverð 3.890.000 kr. Tilboðsverð án vsk. 3.742.000kr. VIVARO COMBI - 9 manna Listaverð 4.990.000 kr. Tilboðsverð án vsk.2.145.000kr. COMBO CARGO Listaverð 2.990.000 kr. Tilboðsverð án vsk. Halldór Jónsson fjár- málastjóri ritar grein í Morgunblaðið 18. febr- úar sl. undir fyrirsögn- inni „Kært til fortíðar, kulda og myrkurs“. Þar sem greininni er vísað í starf Landverndar er mér bæði ljúft og skylt að leiðrétta nokkrar af þeim alvarlegu villum sem má finna í grein- inni. Í greininni fjallar Halldór meðal annars um samgöngubætur á lands- byggðinni og þar á meðal um umdeild- ar áætlanir um vegagerð um Teigs- skóg. Landvernd telur að farsælasta leiðin til samgöngubóta á svæðinu sé svokölluð jarðgangaleið. En ólíkt Halldóri viljum við hjá Landvernd hlusta á sjónarmið heimafólks í Reyk- hólahreppi sem lét gera sjálfstæða út- tekt á mögulegri veglagningu í sveit- arfélaginu þar sem farsælasta leiðin var talin liggja um þéttbýlið Reyk- hóla. Sú leið hefur marga kosti um- fram Teigsskógarleið- ina og er aðeins örlítið dýrari en hún. Hún fel- ur í sér sambærilegar samgöngubætur en því til viðbótar yrði byggð í Reykhólasveit styrkt umtalsvert og Teigs- skógi yrði hlíft. Þrátt fyrir þetta vill Halldór Jónsson að áfram verið haldið með Teigsskóg- arleiðina. Þar með glat- ast tækifæri til að styrkja byggð í Reyk- hólasveit sem og vernd- un Teigsskógar og fjörunnar við hann. Landvernd hefur einnig bent á að helsti farartálminn á leiðinni á þessu landsvæði er Klettsháls en vegagerð um Teigsskóg tekur alls ekki á þessum vanda. Forgangröðun framkvæmda virðist því vera á villi- götum. Frá þessu sjónarhorni er það grát- broslegt að Halldór grípur í grein sinni til þeirrar klassísku og mjög þreyttu ræðumennskuaðferðar að setja málin upp sem landsbyggð gegn höfuðborgarsvæðinu. Halldór fullyrðir að ríkið fjármagni Landvernd og að á bak við Land- vernd standi 10-15 einstaklingar. Halldór hefur greinilega ekki kynnt sér hvernig starf Landverndar er fjármagnað eða hvernig því er háttað. Um það má lesa í árlegri ársskýrslu samtakanna sem er birt á netinu. Staðreyndin er sú að sex þúsund manns greiða félagsgjöld til Land- verndar, þar sem þeim finnst rödd Landverndar nauðsynleg viðbót í um- ræðunni um þjóðþrifamál. Þessi framlög félaga standa undir meiri- hluta rekstrarkostnaðar. Landvernd hefur fengið styrk til rekstrar frá um- hverfis- og auðlindaráðuneytinu sem sótt er um árlega. Hann nam 4,7% af heildartekjum Landverndar árið 2018. Ekki er um önnur fjárframlög frá ríki til Landverndar að ræða nema þau sem ætluð eru til sérstakra verk- efna eins og verkefnisins Skólar á grænni grein. Það er því alrangt sem Halldór heldur fram að ríkið fjár- magni Landvernd eða að á bak við Landvernd standi 10-15 ein- staklingar; samtökin hafa 6.000 fé- laga. Grein Halldórs er reyndar öll full af slíkum rangfærslum og mótsögnum og væri of langt mál að rekja þær hér allar. Skilaboð okkar hjá Landvernd til Halldórs eru að við viljum að á Íslandi búi ein þjóð við góð kjör og til langs tíma litið verður það ekki gert nema með því að koma fram af virðingu við einstæða náttúru landsins, sem er mikilvæg auðlind fyrir komandi kyn- slóðir Íslendinga, ekki síst þá sem velja að búa á landsbyggðinni um skemmri eða lengri tíma. Og í nátt- úrunni erum við öll heimamenn. Í náttúrunni eru allir Íslendingar heimamenn Eftir Auði Önnu Magnúsdóttur » Staðreyndin er að sex þúsund manns greiða félagsgjöld til Land- verndar, þar sem þeim finnst rödd Landverndar nauðsynleg viðbót í um- ræðu um þjóðþrifamál. Auður Önnu Magnúsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Landverndar. audur@landvernd.is Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morg- unblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.