Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020
✝ Katrín Elías-dóttir fæddist
á býli móðurfor-
eldra sinna, Tungu
í Gaulverjabæj-
arhreppi, 25. mars
1923, en flutti það-
an til Reykjavíkur
með fjölskyldu
sinni þriggja mán-
aða gömul. Hún
lést á Droplaugar-
stöðum 2. febrúar
2020.
Katrín ólst upp á Grettisgötu
og Njálsgötu, en árið 1937
byggði Elías, faðir hennar, hús-
ið á Njálsgötu 94 sem fjöl-
skyldan átti allt til ársins 2005.
Foreldrar Katrínar voru hjónin
Ingibjörg Guðmundsdóttir
(1894-1977) húsmóðir í Reykja-
vík og Elías Hjörleifsson (1899-
1938) múrarameistari.
Systkini Katrínar voru Hjör-
leifur (1922-1988), Guðmundur
(1925-1998), Elías Ingibergur
(1926-1997), Margrét (1928-
2013) og Baldur (1937). Auk
þess átti Katrín hálfbróður í
móðurlegg, Guðmund sem
fæddist 1920 en lést sama ár.
Þann 5. júlí 1947 giftist Katr-
ín Ólafi Björnssyni (1915-1968)
er síðar varð hér-
aðslæknir á Hellu á
Rangárvöllum.
Þeim Katrínu og
Ólafi varð fjögurra
barna auðið, en
þau eru: Björn, f.
1951, Elísas, f.
1953, Örn, f. 1956,
og Ingibjörg, f.
1958. Barnabörnin
eru þrjú og barna-
barnabörnin tvö
talsins.
Á unglingsárum sínum
stundaði Katrín nám í Verzl-
unarskólanum og lauk þaðan
prófi árið 1941. Eftir það starf-
aði hún um tíma á skrifstofu
Gísla Jónssonar alþingismanns,
sem auk þingmennskunnar
lagði stund á viðskipti. Síðar
starfaði hún við embætti toll-
stjóra.
Eftir lát Ólafs flutti Katrín
með börnin til Reykjavíkur.
Vann hún þá upphaflega hálfa
vinnu hjá Tryggingastofnun og
hálfa vinnu sem ritari á Land-
spítalanum. Síðar starfaði hún í
fullri vinnu sem ritari á Land-
spítalanum til ársins 1985.
Útför hennar hefur farið
fram í kyrrþey.
Katrín Elíasdóttir gekk ekki
þær slóðir, sem aðrir höfðu troð-
ið, frekar en títt er um bohema.
Hún valdi sér sjálf leið að settu
marki og sást lítt fyrir gagnvart
sjálfri sér. Rétt tæplega hálf-
fimmtug að aldri stóð hún uppi
sem ekkja með fjögur börn, eftir
lát manns síns, Ólafs Björnsson-
ar, héraðslæknis á Hellu. Á þeim
árum voru eftirlaun lækna ekki
há, enda hugur stéttarinnar
bundinn við heilbrigðismál en
ekki „bisness“, eins og síðar varð
algengt.
Eftir andlát Ólafs flutti Katrín
til Reykjavíkur. Þar festi hún
kaup á íbúð í fjölbýlishúsi við
Háaleitisbraut. Hún vann myrkr-
anna á milli til að sjá sér og börn-
um sínum farborða. Og ekki nóg
með það, árið 1978 lauk hún stúd-
entsprófi frá öldungadeild
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Aldrei var um það rætt, að börnin
gengju menntaveginn, eins og
það kallast; það var einfaldlega
séð til þess að sú yrði raunin.
Missir Ólafs var ekki fyrsti
harmurinn sem að Katrínu var
kveðinn. Föður sinn, Elías Hjör-
leifsson, byggingarmeistara,
missti hún þegar hún var á ung-
lingsárunum og hann í blóma lífs-
ins. En tilfinningar voru ekki
bornar á torg þar á bæ, frekar en
annars staðar á þeim tímum. Þær
átti hver fyrir sig, ef til vill stöku
manni að skaðlausu, en flestum
til meins.
Katrín Elíasdóttir var kona
þeirrar gerðar, að hún gat farið
fyrir brjóstið á þeim, sem krefj-
ast skilyrðislauss tilbreytingar-
leysis í mannlegri tilveru. Hún
hafði sínar skoðanir á mönnum
og málefnum og lá ekki á þeim.
Hún var fróðleiksfús, sem meðal
annars lýsti sér í lestri mannlífs-
rita, svo sem endurminninga og
ævisagna. Tæpast getur það tal-
ist óalgengt í fámenninu á landi
hér. Hins vegar þekki ég þess
ekki önnur dæmi úr okkar sam-
tíð, þótt þekkst hafi fyrr á öldum,
að menn hafi notað saurblöð, tit-
ilsíður, spássíur bóka og jafnvel
kaflaskil, til að auka við efnið frá
eigin brjósti og bæta jafnvel
stundum óviðkomandi hugrenn-
ingum við. Þetta gerði Katrín
Elíasdóttir af stakri natni. Þann-
ig fann ég í eintaki hennar af ævi-
sögu Sigurðar Thoroddsen, verk-
fræðings, handskrifaða
fróðleiksmola um þann óforbetr-
anlega Englending, Samuel
Johnson. Þar er því skilmerki-
lega haldið til haga, hvernig hann
vó mann og annan í kaffihúsa-
samræðum með rökin ein að
vopni. Það þarf frjóan hug til að
pára þetta inn í ævisögu verk-
fræðings norður undir póli. Og þó
er þetta auðvitað rökrétt, sé bet-
ur að gætt.
Í fyrrnefnda bók hefur Katrín
einnig skrifað orðin „Að trufla
þögnina“. Hún átti það til, bless-
unin, að gera það. En veitir nokk-
uð af því, á þeim tímum þegar
þögnin og hugleysið leiðast hönd
í hönd?
Ég lét þess getið fyrr í þessu
hugarflakki mínu, að Katrín hefði
keypt íbúð í fjölbýlishúsi eftir að
hún flutti sem ekkja til Reykja-
víkur. En hún lét ekki þar staðar
numið. Einn góðan veðurdag,
þegar hún var 82 ára að aldri,
hafði hún makaskipti á þessari
íbúð og einbýlishúsi í Grafarvogi.
Hún var af Kaldaðarneskyninu,
gamla konan, og vildi hafa vítt um
sig.
Skömmu eftir að Katrín flutti í
Grafarvoginn sat ég með henni í
boði. Meðal gesta voru hjón á
sextugsaldri. Þau höfðu frá því að
segja, að þau væru í þann veginn
að flytja í fjölbýlishús, sem sér-
staklega var byggt fyrir fimm-
tuga og þaðan af eldri og var lyfta
í húsinu, fótfúnum til nokkurs
lífsléttis. „Nú“, sagði nýbakaður
einbýlishúseigandi í Grafarvogin-
um, „hvers vegna farið þið ekki
bara á elliheimili“?
Katrín hafði lengi haft til-
hneigingu til að einangra sig frá
öðru fólki. Þetta ágerðist eftir að
hún flutti í Grafarvoginn. Og eins
og oft vill verða þegar ellin sækir
að, tók hún að hirða lítt um
heilsusamlega fæðu. Þá reyndust
synir hennar, þeir Björn og Örn,
móður sinni þeir haukar í horni
að ekki varð betur gert.
Síðustu tvö árin á fjölbreyti-
legri og að ýmsu leyti storma-
samri ævi, dvaldi Katrín á hjúkr-
unarheimilinu Droplaugarstöð-
um. Og viti menn, þar steig hún
úr sinni skel og blómstraði sem
aldrei fyrr. Hún leit að vísu ekki á
staðinn sem sitt heimili, heldur
dvalarstað, enda voru synir henn-
ar, sem fyrr eru nefndir, óþreyt-
andi að fara með hana á Kald-
aðarnessetrið í Grafarvogi; þar
var hennar heimili, Droplaugar-
staðir voru þrátt fyrir allt aðeins
tímabundinn dvalarstaður.
Ég kveð tengdamóður mína,
Katrínu Elíasdóttur, með sökn-
uði, en harma ekki dauða hennar;
hún var hvíldinni fegin og verð-
skuldaði hana, rétt tæpra 97 ára
gömul. Og jafn litla trú og ég hef
á dauðanum sem endalokum til-
verunnar, hlakka ég til að setjast
með henni í góðu tómi og spjalla
við hana um tengslin milli Sig-
urðar Thoroddsen og Samuels
Johnson.
Pjetur Hafstein Lárusson.
Katrín Elíasdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
ERLING SÖRENSEN,
umdæmisstjóri Pósts og síma á
Ísafirði,
lést miðvikudaginn 19. febrúar á
hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði.
Útför fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 29. febrúar
klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Blindravinafélag Íslands.
Arnfríður V. Hermannsdóttir
S. Svanhildur Sörensen Unnar Þór Jensen
Sveinn H. Sörensen Guðbjörg Jónsdóttir
Árni Sörensen Guðný Snorradóttir
Hrafnhildur Sörensen Gestur Í. Elíasson
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir,
afi og langafi,
JAKOB BJÖRNSSON
fyrrv. orkumálastjóri,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir, Reykjavík,
laugardaginn 15. febrúar. Jarðarförin fer
fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. febrúar klukkan 15.
Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim sem vilji minnast hans er
bent á Alzheimer-samtökin, alzheimer.is
Sigrún Birna Jakobsdóttir Magnús Óskarsson
Stefán Þór Hermannsson
Björn Arnar Kárason Hanna Lára Baldvinsdóttir
Eva Karen Magnúsdóttir María Helen Magnúsdóttir
Kamilla Nótt B. Sævarsdóttir Nadía Nótt B. Arnarsdóttir
Baltasar Jakob Arnarsson Margrét Dís Arnarsdóttir
Alexía Lind Arnarsdóttir
Ástkær sonur minn, bróðir okkar og frændi,
HAFSTEINN KJARTANSSON,
lést á Tenerife fimmtudaginn 6. febrúar.
Útför hans fer fram frá Grindavíkurkirkju
miðvikudaginn 26. febrúar klukkan 14.
Þakkir eru færðar þeim sem sýna hlýju og
samhug. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Draumasetrið.
Antonía Björg Steingrímsdóttir
Hallgrímur E. Vébjörnsson Judith Haas
Steingrímur E. Kjartansson Grachille A. Baligod
Hilmar Kjartansson Svava Kristinsdóttir
Valdimar Kjartansson Inga Tirone
Ósk Kjartansdóttir Ragnar T. Atlason
og systkinabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGURLAUG STEFÁNSDÓTTIR,
lést á öldrunarheimilinu Lögmannshlíð
18. febrúar. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju miðvikudaginn 26. febrúar
klukkan 13.30.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Kollugerði fyrir einstaka
umönnun.
Stefán Steinþórs Jakobsson Soffía Sveinsdóttir
Sigurjón Jakobsson Charlotte Hannine
Sigurður Ómar Jakobsson Eva Kristjánsdóttir
Gunnar Jakobsson Margrét Kristjánsdóttir
Sunna Ósk Jakobsdóttir
ömmu- og langömmubörn
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
HELGI K. HJÁLMSSON,
viðskiptafræðingur og fyrrverandi
forstjóri,
lést laugardaginn 15. febrúar.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
föstudaginn 28. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent
á styrktarsjóð Garðasóknar.
Ingibjörg Stephensen
Björn Helgason
Sigríður Helgadóttir Åke Jonviken
Helgi Steinar Helgason
afa- og langafabörn
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
BORGHILDUR B. FENGER,
Sóltúni 11, Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum 18. febrúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 5. mars klukkan 13.
John Fenger Rósa Fenger
Kristín Fenger Vermundsd. Helgi Benediktsson
Björg Fenger Jón Sigurðsson
Ari Fenger Helga Lilja Gunnarsdóttir
Hilmar Bragi Fenger Kerri Gilday
Ármann Örn Fenger Katie Fenger
Ingi Rafn Fenger Deven Greene
og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR KRISTJANA
KRISTJÁNSDÓTTIR,
Austurbyggð 17, Akureyri,
andaðist á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
laugardaginn 15. febrúar.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. febrúar
klukkan 13.30.
Kristín Þ. Matthíasdóttir Stefán Friðrik Ingólfsson
Ragnheiður Gísladóttir
Ólöf Matthíasdóttir Kristján Elís Jónasson
Aðalheiður Matthíasdóttir Ingimar Ólafsson Waage
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AUÐBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR
frá Eskifirði,
lést fimmtudaginn 20. febrúar á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 2. mars
klukkan 13.
Þorvarður Kári Ólafsson Anna Kristín Sigurðardóttir
Sólrún Ólafsdóttir Kristján Örn Karlsson
Bryndís Ólafsdóttir Björn Harðarson
Svanhildur Ólafsdóttir Magnús Arnar Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍN S. JÓNSDÓTTIR,
Hraunvangi 3, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 15. febrúar.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 24. febrúar
klukkan 13.
Sveinn H. Georgsson
Jón Kr. Sveinsson Katrín Ólafsdóttir
Albert Sveinsson Elísabet Guðmundsdóttir
Ásmundur Sveinsson Vilborg Benediktsdóttir
ömmu- og langömmubörn