Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 38

Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 40 ára Lára er Reyk- víkingur, ólst upp í Seljahverfinu en býr í Laugardalnum. Hún er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Há- skóla Íslands, MSc.- gráðu í fjárfestinga- stjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og er löggiltur verðbréfamiðlari frá Háskólanum í Reykjavík. Lára er verð- bréfaráðgjafi í Íslandsbanka. Maki: Lárus Bollason, f. 1974, verð- bréfamiðlari í Íslandsbanka. Dóttir: Halla María Lárusdóttir, f. 2011. Foreldrar: Sigþrúður Zóphóníasdóttir, f. 1944, kennari og kenndi í Öldusels- skóla, hún er búsett í Kópavogi, og Björn Björnsson, f. 1933, d. 2008, flugvirki hjá Flugmálastjórn. Lára Björg Björnsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ef þú veist ekki hvað þú vilt gera ættirðu að bíða átekta. Þér verður boðið í brúðkaup í sumar. Ekki tefla í tvísýnu með ástarsamband þitt. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú sérð nú möguleika á því að geta gengið að samningaborði. Líttu á daginn í dag þann besta í þínu lífi hingað til. Sumir skilja ekki fyrr en skellur í tönnum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ýmsar breytingar sem nú eru að ganga yfir fara í taugarnar á þér. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ekki hanga heima í dag. Hluti af því að vera mennskur er að viðurkenna að stundum þarf að þiggja hjálp. Eitthvað fer úrskeiðis í skipulagningu veislu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Nú er nauðsynlegt að þú takir af skarið og sýnir forystuhæfileika þína. Mundu að ekki er allt gull sem glóir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú gætir fundið til efasemda um eigið ágæti í dag og löngunar til að fela þig fyrir umheiminum. Kannski færðu gull- hamra úr óvæntri átt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þér finnst brotið á þér áttu ekki að hika við að láta til þín heyra. Þú átt eftir að kikna í hnjáliðunum í kvöld. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sambönd við ólíklegasta fólk munu færa þér mikla gleði. Það eru mörg ljón á veginum en þú ert seigari en allt sem seigt er. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hættu að vantreysta sjálfri/ sjálfum þér því þú ert fullfær um að takast á við hlutina og hefur nægilega þekkingu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það eru ekki gallar sem þú sérð í speglinum, heldur einstakir eiginleikar sem gera þig að því sem þú ert. Ef þú vilt hraða á hlutunum þá þarft þú að vinna hraðar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Sköpunarkraftur þinn er mikill um þessar mundir jafnvel svo að þú átt erfitt með að velja og hafna. Einhver er þurr á manninn en ekki hafa áhyggjur af því, þú hefur ekkert gert af þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nú er ekki rétti tíminn til þess að vera óframfærinn. Hunsaðu efasemd- araddirnar innra með þér og kýldu á hlut- ina. Sem leikari hefur Erlendur unnið að fjölda verkefna í sjónvarpi, kvik- myndum og leikhúsum hér á landi sem og erlendis til dæmis í leikverk- unum Rómeó og Júlía, Woyzeck, Titus og Lykill um hálsinn með leik- félaginu Vesturporti. „Við fórum víða meðfram því er hann að þróa vegan ostagerð hér á landi. „Ég fékk styrk frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands og er að reyna að heimfæra vegan ostagerð yfir á íslenskt hráefni og stefnan er að setja framleiðslu í gang á þessu ári.“ E rlendur Eiríksson er fæddur 22. febrúar 1970 í Reykjavík og ólst upp í Sundunum og Breiðholti. Hann gekk í Langholtsskóla, Breiðagerðisskóla, Breiðholtsskóla og Hólabrekkuskóla. „Svo var sofið mikið í Fjölbrautaskólanum í Breið- holti í félagsmiðstöðinni Undir- heimum. Ég byrjaði þar í grunndeild rafiðnaðar og fór svo á matvælasvið og hætti eftir að grunnnámi lauk. Þá fór ég að vinna sem uppvaskari og pitsugerðarmaður, keyra hjá Kóka kóla, vinna í fiski, byggingarvinnu og afgreiða í sjoppum.“ Erlendur útskrifaðist sem einka- flugmaður frá Quonset State Airport í Rhode Island í Bandaríkjunum 1991, matreiðslumaður frá Hótel- og veitingaskóla Íslands 1995, leikari frá Arts Educational Schools í London 2001, meistaranám í sönglist á vegum Complete Vocal Institute, mat- reiðslumeistari frá Meistaraskóla Menntaskólans í Kópavogi 2007, lauk B.Sc.-gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst 2010 og M.L.- gráðu lögfræði frá Háskólanum á Bif- röst 2012. Erlendur hefur unnið sem mat- reiðslumaður og yfirmaður á fjöl- mörgum veitingastöðum frá árinu 1989 ásamt því að hafa verið til sjós sem kokkur í nokkur skipti. Helstu staðir sem hann hefur unnið á eru Veiðikofinn, Pisa, þar sem hann var meðeigandi, Hótel Natura, Tapas barinn, Café Opera, Lækjarbrekka, Sólon, Hótel Edda, Restaurant Her- cegovina í Kaupmannahöfn og Orku- veita Reykjavíkur. Hann kenndi í Salt eldhúsi 2015–2016. „Þar var ég að kenna útlendingum að búa til íslensk- an mat og Íslendingum að búa til út- lendan mat.“ Hann var síðan yfirmat- reiðslumeistari, rekstrarstjóri og umsjónarmaður skyrframleiðslu í Skyrgerðinni í Hveragerði 2016– 2018. „Um áramótin 2018–2019 fór ég að vinna sjálfstætt sem leikari og við að talsetja, vann sem kokkur hér og þar og fór til Þýskalands að læra vegan ostagerð.“ Hann er núna matreiðslu- meistari á Sólheimum í Grímsnesi en um heim með sýningarnar og það var mjög skemmtilegur tími.“ Hann hef- ur einnig leikið í kvikmyndunum Sveitabrúðkaup, Börn, Mýrin, Svart- ur á leik og Duggholufólkið, heimild- arháðmyndinni Mjóddinni og nokkr- um áramótaskaupum svo fátt eitt sé nefnt. „Ég hef meðvitað menntað mig og starfað við áhugamál mín svo ég þurfi aldrei að vinna.“ Fjölskylda Eiginkona Erlends er Fjóla Ein- arsdóttir, f. 25.1. 1978, svæðisfulltrúi Rauða krossins á Suðurlandi og Suð- urnesjum. Þau eru búsett í Hvera- gerði. Foreldrar Fjólu eru Einar Sæ- berg Helgason, f. 12.10. 1951, búfræðingur, og Þórfríður Kristín Grímsdóttir, f. 22.2. 1957, starfs- maður Bæjaráss í Hveragerði. Þau hafa verið gift frá 26.12. 1976 og eru búsett í Hveragerði. Stjúpsonur Erlends og sonur Fjólu er Óðinn Páll Tjörvason, f. 7.2. 1994, nemi í rafvirkjun. Maki er Lelíta Rós Ycot, nemi í hátækniverkfræði. Óðinn Erlendur Eiríksson, leikari, matreiðslumeistari, einkaflugmaður og lögfræðingur – 50 ára Fjölskyldan Andrea, Erlendur, Óðinn, Natan Elí, Fjóla og Eiríkur Sæberg. Fjölhæfur og glaðlyndur Leikarinn Erlendur, Björn Hlynur Haraldsson og Ólafur Darri Ólafsson í kvikmyndinni Sveitabrúðkaup frá 2008 sem Valdís Óskarsdóttir leikstýrði. Kokkurinn Froðunni fleytt. 30 ára Borgar ólst upp í Innri-Hjarðardal í Önundarfirði en býr í Reykjavík. Hann lauk skipstjórnarnámi frá Stýrimannaskólanum og húsasmíðanámi frá Menntaskólanum á Ísafirði. Hann er háseti á Helgu Maríu hjá Brim. Maki: Thelma Björk Guðmundsdóttir, f. 1987, félagsráðgjafi á Landspítalanum og í Kvennaathvarfinu. Sonur: Sölvi Hrafn, f. 2019 og stjúpson- ur er Birkir Leó Hlynsson, f. 2012. Foreldrar: Sólveig Bessa Magnúsdóttir, f. 1962, vinnur í Fræðslumiðstöðinni á Ísafirði, og Björgvin Sveinsson, f. 1958, troðaramaður á skíðasvæðinu á Ísafirði. Þau eru með æðarvarp í Innri-Hjarðardal og reka rútubíl og leigubíl. Borgar Björgvinsson Til hamingju með daginn Reykjavík Sölvi Hrafn Borgarsson fæddist 11. janúar 2019 kl. 1.04 á Akranesi. Hann vó 3.678 g og var 52,5 cm langur. Foreldrar hans eru Borgar Björgvinsson og Thelma Björk Björgvinsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.