Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020
Lengjubikar karla
A-deild, 1. riðill:
Afturelding – Breiðablik ........................ 1:3
Georg Bjarnason 82. – Höskuldur Gunn-
laugsson 4., 18., Viktor Karl Einarsson 7.
Þýskaland
Bayern München – Paderborn .............. 3:2
Samúel Kári Friðjónsson kom inn á hjá
Paderborn á 81. mínútu.
Ítalía
Brescia – Napoli....................................... 1:2
Birkir Bjarnason lék fyrstu 65 mínút-
urnar með Brescia.
Danmörk
Hobro – Midtjylland ................................ 0:2
Mikael Anderson lék seinni hálfleikinn
með Midtjylland.
Frakkland
B-deild:
Grenoble – Chateauroux ........................ 0:1
Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á hjá
Grenoble á 82. mínútu.
Holland
B-deild:
Excelsior – Den Bosch ............................ 6:4
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior, skoraði eitt mark og krækti
í vítaspyrnu.
Belgía
B-deild:
OH Leuven – Union St. Gilloise ............. 3:5
Aron Sigurðarson lék fyrstu 86 mínút-
urnar með St. Gilloise, skoraði eitt mark og
lagði annað upp.
England
B-deild:
Derby – Fulham ....................................... 1:1
Wayne Rooney skoraði mark Derby í sín-
um 500. deildaleik á Englandi.
Meistaradeild N/M-Ameríku
16-liða úrslit, fyrri leikur:
San Carlos – New York City .................. 3:5
Guðmundur Þórarinsson sat á vara-
mannabekk New York allan tímann.
Grill 66-deild karla
Valur U – Grótta................................... 27:27
Víkingur – Þróttur ............................... 26:25
Stjarnan U – FH U .............................. 26:39
Fjölnir U – Þór ..................................... 23:35
Staða efstu liða:
Þór Ak. 14 12 2 0 432:359 26
Valur U 14 8 2 4 408:398 18
Haukar U 13 8 1 4 380:341 17
Grótta 14 8 1 5 408:387 17
FH U 14 7 1 6 424:404 15
Þróttur 14 6 2 6 413:392 14
Grill 66-deild kvenna
Víkingur – Valur U............................... 23:28
Fylkir – Fram U................................... 20:40
ÍR – Stjarnan U.................................... 32:25
Staða efstu liða:
Fram U 18 18 0 0 607:402 36
FH 17 14 1 2 480:369 29
Selfoss 17 12 2 3 407:359 26
Grótta 17 11 1 5 439:405 23
ÍR 18 10 1 7 470:442 21
ÍBV U 17 8 1 8 417:415 17
Danmörk
Ribe-Esbjerg – Kolding ...................... 26:26
Rúnar Kárason skoraði 10 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson 2 en
Daníel Þór Ingason komst ekki á blað.
Ólafur Gústafsson og Árni Bragi Eyj-
ólfsson skoruðu ekki hjá Kolding.
Frakkland
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Bourg-de-Péage – Chambray............ 23:26
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor-
aði 1 mark fyrir Bourg-de-Péage.
1. deild karla
Höttur – Breiðablik.............................. 93:81
Hamar – Snæfell................................. 108:79
Sindri – Álftanes................................... 82:91
Staðan:
Höttur 19 17 2 1664:1408 34
Hamar 19 17 2 1872:1648 34
Breiðablik 19 15 4 1882:1600 30
Vestri 17 10 7 1498:1372 20
Álftanes 20 10 10 1702:1744 20
Selfoss 17 6 11 1309:1375 12
Skallagrimur 18 3 15 1458:1706 6
Sindri 16 2 14 1292:1482 4
Snæfell 19 2 17 1514:1856 4
NBA-deildin
Detroit – Milwaukee ........................ 106:126
Atlanta – Miami ................................ 129:124
Chicago – Charlotte ........................... 93:103
Philadelphia – Brooklyn.......... (frl.) 112:104
Sacramento – Memphis ................... 129:125
Golden State – Houston................... 105:135
UNGSTIRNI
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Westfalenstadion hefur eignast nýja
hetju, svo mikið varð endanlega ljóst
á þriðjudaginn þegar Guli vegg-
urinn, suðurstúka Signal Iduna Park
sem gnæfir yfir þá leikmenn sem
spila á hinum magnaða leikvangi
Dortmund, sýndi Norðmanninum þá
lotningu sem frammistaða hans fyrr
um kvöldið verðskuldaði.
Það var bara nú um síðustu ára-
mót að Haaland valdi þýska félagið
framyfir stórveldi á borð við Man-
chester United, eflaust að hluta til
að spila fyrir framan einhverja
mögnuðustu stuðningsmenn Evrópu
en sennilega fyrst og fremst vegna
þess að hvergi annars staðar getur
jafn ungur leikmaður leikið stórt
hlutverk í þetta mikilvægum leikj-
um. Ekkert félag er jafn fúst til að
gefa ungum leikmönnum tækifæri á
sama tíma og það keppir um stærstu
titlana heima fyrir sem og í
Meistaradeildinni sjálfri.
Og einmitt á þriðjudaginn hélt
ævintýrabyrjun norska táningsins
áfram. Hann er búinn að vera leik-
maður Dortmund í 51 dag og þarna
var hann nýbúinn að skora bæði
mörkin í 2:1-sigri á risaliði PSG í
Meistaradeild Evrópu. Hann er bú-
inn að skora átta mörk í fimm leikj-
um í þýsku deildinni. Hann er 19
ára.
Lærði af Solskjær
Norðmaðurinn ungi er sonur Alf-
Inge Håland, sem spilaði með Nott-
ingham Forest, Leeds og Manchest-
er City á Englandi. Erling fæddist
einmitt í Leeds á Englandi árið 2000
þegar faðir hans spilaði þar en fjöl-
skyldan fluttist svo til bæjarins
Bryne í Noregi þegar hann var
þriggja ára. Hann var byrjaður að
spila með liði Bryne í norsku fyrstu
deildinni aðeins fimmtán ára gamall
en í febrúar 2017 tók hann fyrsta
stóra skrefið á atvinnumannaferl-
inum. Hann gekk til liðs við úrvals-
deildarlið Molde og var þar undir
handleiðslu norskrar knattspyrnu-
goðsagnar, Ole Gunnar Solskjær.
Eftir erfitt fyrsta tímabil tók hann
að blómstra á seinna árinu í efstu
deild. Hann var markahæsti leik-
maður Molde árið 2018 með 16 mörk
í 30 leikjum, valinn efnilegasti leik-
maður deildarinnar og iðulega bár-
ust fregnir þess efnis að njósnarar á
vegum Manchester United kæmu til
Noregs til að fylgjast með honum.
Enda hefur það eflaust verið ágætur
skóli að spila fyrir Solskjær, sigur-
sælasta knattspyrnumann sem Nor-
egur hefur alið af sér. Sá var með
markanef og skoraði upp undir
hundrað mörk, mörg þeirra mikil-
væg, á tíu ára ferli hjá Manchester
United þar sem hann varð bæði
Englands- og Evrópumeistari.
Allt kom þó fyrir ekki og Haaland
gekk til liðs við RB Salzburg í Aust-
urríki í janúar 2019. Eftir aðeins eitt
mark í tveimur leikjum á fyrstu
mánuðunum átti hann heldur betur
eftir að blómstra á næsta tímabili.
Hann skoraði 17 mörk í fyrstu 16
deildarleikjum sínum og ef það var
ekki nóg til að vekja athygli stærstu
klúbba í Evrópu, þá dugði frammi-
staða hans í Meistaradeildinni til.
Hann skoraði átta mörk í sex leikj-
um í riðlakeppninni og varð fyrstur
leikmanna undir tvítugt til að skora í
fyrstu fimm leikjum sínum í keppn-
inni. Það var ekki fyrr en hann
mætti Liverpool í annað sinn, að
honum mistókst að skora! Það var
því ekki við öðru að búast en að öll
stærstu félög Evrópu yrðu á hött-
unum eftir undrabarninu þegar fé-
lagsskiptaglugginn var opnaður
fyrsta janúar síðastliðinn. Og auðvit-
að horfðu allir í sömu átt, til Sol-
skjær og Manchester United.
Allt stefndi í eina átt
Fréttaflutningur af yfirvofandi fé-
lagsskiptum Haaland var lengi allur
á einn veg, að hann myndi endurnýja
kynnin við samlanda sinn og gamla
læriföðurinn og það hjá stórveldi á
borð við Manchester United. Sol-
skjær sjálfur gerði lítið til að slökkva
í orðrómnum. Hann staðfesti að þeir
hefðu hist og rætt málin, snemma í
desember.
„Hann veit hvað hann vill og veit
hvað hann ætlar að gera. Ég þarf
ekki að gefa leikmönnum annarra
liða ráð,“ sagði hann útsmoginn á
einum blaðamannafundinum um jól-
in.
Ekki lækkaði rostinn í íþrótta-
miðlum þegar norsku feðgarnir
stigu um borð í flugvél í Stavanger
sem var sögð á leiðinni til Manchest-
er. Í raun reyndist ferðin mun
styttri, þeir feðgar kíktu til Kaup-
mannahafnar og ekkert varð úr hin-
um óumflýjanlegu félagsskiptum til
United. Áramótin gengu í garð og
Dortmund í Þýskalandi hreppti efni-
legasta framherja fótboltans fyrir
um 20 milljónir evra.
Borgar sig að veðja á Dortmund
Á meðan United, bæði á vellinum
sem og utan hans, virðist í óreiðu og
með allt á öðrum endanum hefur
Dortmund sannað sig sem félag sem
ungir leikmenn eiga að veðja á. Ef-
laust höfðu stuðningsmenn Dort-
mund grun um að þeir væru að kló-
festa sérstakan leikmenn, rétt eins
og stuðningsmenn Manchester Unit-
ed höfðu sennilega áhyggjur af því
að þarna hefði þeim runnið úr greip-
um einhver náttúrulegasti marka-
skorari sem Old Trafford hefur séð
síðan Ruud van Nistelrooy lék listir
sínar á leikvangi draumanna. Öll
þessi tortryggni hefur nú breyst í
örvæntingu eða kæti, eftir því hvar
maður er. Í Manchester virðist mar-
tröðin ætla að verða að veruleika en
á Westfalenstadion hafa menn fund-
ið nýja hetju og ef einhverjir efa-
semdamenn voru enn í Gula veggn-
um, eftir átta mörk í fimm leikjum,
snerist þeim hugur á þriðjudaginn.
Mörkin gegn PSG
Fyrra mark Haalands gegn
stjörnum prýddu stórliði PSG var
senteramark eins og þau gerast
best. Eðlishvötin sem aðeins þeir
bestu eru gæddir, að vera á hár-
réttum stað á hárréttum tíma til að
gera það sem erfiðast er að gera í
fótboltaleik, skora mörk. En seinna
markið, eftir að stórstjarnan Neym-
ar hafði jafnað metin, var mjög sér-
stakt. Haaland, sem er tæpir tveir
metrar á hæð, þaut framhjá snögg-
um varnarmönnum PSG til að ná til
sendingar frá 17 ára Giovanni
Reyna, tók eina snertingu til að
leggja boltann fyrir sig áður en hann
skoraði með þvílíku bylmingsskoti,
með vinstri, upp í bláhornið. Guli
veggurinn nötraði og þessi 19 ára
Norðmaður á heldur betur eftir að
hrista upp í knattspyrnunni um
ókomin ár.
Dortmund frekar en United
og Guli veggurinn gleðst
Norski strákurinn Erling Braut Haaland skorar og skorar en Manchester
United missti af honum Hefur skorað í sex leikjum af sjö í Meistaradeildinni
AFP
Nítján Erling Braut Haaland hefur slegið rækilega í gegn eftir að
Dortmund keypti hann af Salzburg í Austurríki um áramótin.
Erling Braut Haaland
» Hann breytti nafni sínu úr
Håland í Haaland fyrir tveimur
árum til að það væri auðveld-
ara fyrir erlenda stuðnings-
menn og fjölmiðla.
» Hann hefur skorað 11 mörk
fyrir Dortmund þrátt fyrir að
spila aðeins 440 mínútur, eða
mark á 40 mínútna fresti.
Þessi 11 mörk hafa komið úr
aðeins 13 markskotum.
» Hann var valinn leikmaður
mánaðarins í janúar í þýsku
efstu deildinni þótt hann spil-
aði aðeins í 59 mínútur.
» Hann hefur skorað fleiri
mörk í Meistaradeildinni á
þessu tímabili (10) heldur en
allt lið Barcelona (9).
» Enginn hefur verið fljótari að
skora tíu Meistaradeildarmörk,
en Håland gerði það í sjö leikj-
um.
Jordan Henderson, fyrirliði Liver-
pool, verður frá keppni næstu þrjár
vikurnar eftir að hafa tognað aftan
í læri í leik liðsins gegn Atlético Ma-
drid í Meistaradeild Evrópu á
þriðjudagskvöldið.
Einnig er ljóst að N’Golo Kanté
verður ekki með Chelsea í næstu
leikjum en knattspyrnustjórinn
Frank Lampard staðfesti þetta á
fréttamannafundi í gær. Kanté fór
af velli snemma leiks gegn Man-
chester United á mánudagskvöldið
vegna tognunar og verður frá í um
þrjár vikur.
Lykilmenn frá
næstu vikurnar
AFP
Tognun Jordan Henderson verður
frá næstu þrjár vikurnar.
Handknattleikskappinn Ólafur Gúst-
afsson er á förum frá Kolding í sum-
ar en það er Handbollskanalen sem
greinir frá þessu. Ólafur er þrítugur
en hann hefur leikið með Kolding frá
árinu 2017 og meðal annars verið
fyrirliði liðsins. Þá greinir JV.dk frá
því að framtíð Árna Braga Eyjólfs-
sonar sé einnig í óvissu hjá félaginu.
Landsliðsmarkvörðurinn Ágúst Elí
Björgvinsson mun ganga til liðs við
Kolding næsta sumar en liðið er í
þriðja neðsta sæti dönsku úrvals-
deildarinnar með 10 stig eftir tutt-
ugu umferðir.
Ólafur á förum
frá Kolding
AFP
Á förum Ólafur Gústafsson yfirgef-
ur Kolding eftir leiktíðina.